Bændablaðið - 18.11.2021, Side 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202144
LÍF&STARF
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar
á Norðurlandi var haldin nýverið
en ekki reyndist unnt að halda hátíð
árið 2020 vegna heimsfaraldurs.Að
þessu sinni var farið um vestan-
verðan Eyjafjörð, fyrirtæki voru
heimsótt á Dalvík og Ólafsfirði
áður en haldið var í Fljótin og
þaðan á Siglufjörð.
Á Kaffi Rauðku var slegið upp
veislu um kvöldið en þar voru, venju
samkvæmt, veittar viðurkenningar fyrir
störf sem tengjast ferðaþjónustu.
Fyrirtæki ársins 2021 er SBA
Norðurleið. Þessa viðurkenningu fá
fyrirtæki sem hafa skapað sér sterka
stöðu á markaði og hafa unnið að
uppbyggingu, vöruþróun og nýsköp-
un í ferðaþjónustu á Norðurlandi.
SBA Norðurleið sérhæfir sig í útleigu
hópferðabifreiða og er eitt það stærsta
sinnar tegundar á Íslandi. Fyrirtækið er
með höfuðstöðvar á Akureyri og starfs-
stöð í Hafnarfirði og er með flota af
80 vel útbúnum bifreiðum til sumar-
og vetraraksturs. Góð þjónusta hefur
ávallt verið í fyrirrúmi hjá fyrirtækinu
og hefur það verið mjög öflugt í að nýta
þau tækifæri sem gefast til að byggja
upp aukna starfsemi á Norðurlandi.
SBA er enda þekkt fyrir að geta tekist
á við hvaða aðstæður sem er.
Sproti ársins er 1238: Battle of
Iceland. Þessi viðurkenning er veitt
ungu fyrirtæki sem hefur skapað eft-
irtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á
Norðurlandi. 1238: Battle of Iceland
var stofnað árið 2019 og býður upp
á frábæra aðstöðu fyrir bæði minni
og stærri hópa. Sögusetrið 1238 er
gagnvirk sýning sem færir viðskipta-
vini nær sögulegum stóratburðum
en hefðbundnar fræðslusýningar.
Með hjálp nýjustu tækni í miðlun
og sýndarveruleika er þeim boðið
að taka þátt í átakamestu atburðum
Íslandssögunnar og beinlínis stíga
inn í sögu Sturlungaaldar. Fyrirtækið
hefur sýnt mikinn metnað í stafrænni
markaðssetningu og verið mjög sýni-
legt á öllum helstu boðleiðum. Í fyrra
þurfti fyrirtækið að aðlaga þá markaðs-
setningu í meiri mæli að Íslendingum
og tókst það vel. Sýningin hefur fyrir
vikið vakið mikla athygli innanlands
en einnig á erlendum mörkuðum. Þetta
starf ýtir undir uppbyggingu á öflugri
ferðaþjónustu í Skagafirði allt árið og
vekur athygli bæði á nærsvæði fyrir-
tækisins en einnig Norðurlandi öllu.
Viðurkenningu fyrir störf í þágu
ferðaþjónustu hlaut Linda María
Ásgeirsdóttir. Sú viðurkenning er
veitt einstaklingi sem hefur haft góð
áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í
heild sinni og hefur starfað beint eða
óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.
Linda María hefur unnið af heilindum
fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi í
fjölda ára. Hún hefur verið í forsvari
fyrir Ferðamálafélag Hríseyjar og
rekur núna veitingastaðinn Verbúð 66 í
Hrísey. Einnig hefur hún setið í svæðis-
ráði Hríseyjar fyrir Akureyrarbæ og
starfað með okkur á Markaðsstofunni
í hópi ferðamálafulltrúa. Linda María
hefur unnið þétt með fyrirtækjum og
einstaklingum sem byggja upp ferðir til
Hríseyjar og haldið utan um skipulag
ferða og heimsókna með ýmsum aðil-
um í gegnum árin. Hún á því stóran
þátt í að halda úti ferðaþjónustunni í
eynni en mjög mikilvægt er fyrir okkur
á Norðurlandi að gestir okkar geti farið
þangað í heimsókn og notið góðrar
þjónustu og veitinga.
Í ár var ákveðið að bæta fjórðu viður-
kenningunni við. Hvatningarverðlaun
ársins 2021 voru veitt Fairytale at Sea.
Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og
býður upp á þjónustu sem byggir vel
undir ímynd Norðurlands og er orðið
þekkt meðal innlendra og erlendra
ferðamanna fyrir einstaka upplifun.
Markaðsstofa Norðurlands fær reglu-
lega fyrirspurnir um möguleika á alls
konar ævintýraferðum þar sem náttúran
er í fyrirrúmi og fyrirtækið nær að sinna
þeim verkefnum einstaklega vel með
sæþotuferðum frá Ólafsfirði sem siglt
er meðal annars að fossinum Míganda
og til móts við miðnætursólina. /MÞÞ
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi:
Fjórar viðurkenningar veittar fyrir góð störf
Þátttakendur komu við á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík og fræddust um starfsemi þess.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, ásamt þeim sem tóku við viðurkenningum. Halldór Guðmundsson frá Fairytale at Sea, Freyja Rut Emilsdóttir tók við
viðurkenningunni fyrir hönd 1238: Battle of Iceland, Ingibjörg Elín Jónasdótir tók við viðurkenningunni fyrir hönd SBA og Linda María Ásgeirsdóttir, sem hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu
ferðaþjónustunnar. Myndir / Markaðsstofa Norðurlands
Geiturnar á Brúnastöðum í Fljótum vöktu athygli þátttakenda.Litið var inn á Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Mikið var um að vera á Dalvík.