Bændablaðið - 18.11.2021, Qupperneq 44

Bændablaðið - 18.11.2021, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202144 LÍF&STARF Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin nýverið en ekki reyndist unnt að halda hátíð árið 2020 vegna heimsfaraldurs.Að þessu sinni var farið um vestan- verðan Eyjafjörð, fyrirtæki voru heimsótt á Dalvík og Ólafsfirði áður en haldið var í Fljótin og þaðan á Siglufjörð. Á Kaffi Rauðku var slegið upp veislu um kvöldið en þar voru, venju samkvæmt, veittar viðurkenningar fyrir störf sem tengjast ferðaþjónustu. Fyrirtæki ársins 2021 er SBA Norðurleið. Þessa viðurkenningu fá fyrirtæki sem hafa skapað sér sterka stöðu á markaði og hafa unnið að uppbyggingu, vöruþróun og nýsköp- un í ferðaþjónustu á Norðurlandi. SBA Norðurleið sérhæfir sig í útleigu hópferðabifreiða og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Akureyri og starfs- stöð í Hafnarfirði og er með flota af 80 vel útbúnum bifreiðum til sumar- og vetraraksturs. Góð þjónusta hefur ávallt verið í fyrirrúmi hjá fyrirtækinu og hefur það verið mjög öflugt í að nýta þau tækifæri sem gefast til að byggja upp aukna starfsemi á Norðurlandi. SBA er enda þekkt fyrir að geta tekist á við hvaða aðstæður sem er. Sproti ársins er 1238: Battle of Iceland. Þessi viðurkenning er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eft- irtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. 1238: Battle of Iceland var stofnað árið 2019 og býður upp á frábæra aðstöðu fyrir bæði minni og stærri hópa. Sögusetrið 1238 er gagnvirk sýning sem færir viðskipta- vini nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar. Með hjálp nýjustu tækni í miðlun og sýndarveruleika er þeim boðið að taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar og beinlínis stíga inn í sögu Sturlungaaldar. Fyrirtækið hefur sýnt mikinn metnað í stafrænni markaðssetningu og verið mjög sýni- legt á öllum helstu boðleiðum. Í fyrra þurfti fyrirtækið að aðlaga þá markaðs- setningu í meiri mæli að Íslendingum og tókst það vel. Sýningin hefur fyrir vikið vakið mikla athygli innanlands en einnig á erlendum mörkuðum. Þetta starf ýtir undir uppbyggingu á öflugri ferðaþjónustu í Skagafirði allt árið og vekur athygli bæði á nærsvæði fyrir- tækisins en einnig Norðurlandi öllu. Viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu hlaut Linda María Ásgeirsdóttir. Sú viðurkenning er veitt einstaklingi sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Linda María hefur unnið af heilindum fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi í fjölda ára. Hún hefur verið í forsvari fyrir Ferðamálafélag Hríseyjar og rekur núna veitingastaðinn Verbúð 66 í Hrísey. Einnig hefur hún setið í svæðis- ráði Hríseyjar fyrir Akureyrarbæ og starfað með okkur á Markaðsstofunni í hópi ferðamálafulltrúa. Linda María hefur unnið þétt með fyrirtækjum og einstaklingum sem byggja upp ferðir til Hríseyjar og haldið utan um skipulag ferða og heimsókna með ýmsum aðil- um í gegnum árin. Hún á því stóran þátt í að halda úti ferðaþjónustunni í eynni en mjög mikilvægt er fyrir okkur á Norðurlandi að gestir okkar geti farið þangað í heimsókn og notið góðrar þjónustu og veitinga. Í ár var ákveðið að bæta fjórðu viður- kenningunni við. Hvatningarverðlaun ársins 2021 voru veitt Fairytale at Sea. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og býður upp á þjónustu sem byggir vel undir ímynd Norðurlands og er orðið þekkt meðal innlendra og erlendra ferðamanna fyrir einstaka upplifun. Markaðsstofa Norðurlands fær reglu- lega fyrirspurnir um möguleika á alls konar ævintýraferðum þar sem náttúran er í fyrirrúmi og fyrirtækið nær að sinna þeim verkefnum einstaklega vel með sæþotuferðum frá Ólafsfirði sem siglt er meðal annars að fossinum Míganda og til móts við miðnætursólina. /MÞÞ Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Landbúnaðarleikföng Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi: Fjórar viðurkenningar veittar fyrir góð störf Þátttakendur komu við á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík og fræddust um starfsemi þess. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, ásamt þeim sem tóku við viðurkenningum. Halldór Guðmundsson frá Fairytale at Sea, Freyja Rut Emilsdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd 1238: Battle of Iceland, Ingibjörg Elín Jónasdótir tók við viðurkenningunni fyrir hönd SBA og Linda María Ásgeirsdóttir, sem hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar. Myndir / Markaðsstofa Norðurlands Geiturnar á Brúnastöðum í Fljótum vöktu athygli þátttakenda.Litið var inn á Síldarminjasafnið á Siglufirði. Mikið var um að vera á Dalvík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.