Bændablaðið - 18.11.2021, Side 47

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 47 sauðfjárbúskaparins alls staðar vera grunnurinn. Annað markmið bænda með uppgræðslustarfi er að ná árangri. Árangurinn felst í því að landið lokist af gróðri, að gróðurinn verði sem fjöl- breyttastur og að gróðurinn lifi. Menn vilja stöðva rof og gróðureyðingu. Aukinn gróður og beit telst ótvírætt merki um árangur. Þriðja markmið bænda með upp- græðslustarfi er beitarhagræði, það er að græða land undir beit eða til beitarstjórnunar. Yfirleitt velja bændur svæði til uppgræðslu í samráði við Landgræðsluna. Vel gengur með það samstarf þar sem landgræðslufulltrú- ar og bændur leggja sömu atriði til grundvallar við svæðavalið. Svæði eru valin til uppgræðslu til að ná árangri og að hluta vegna beit- arhagræðis. Menn hafa engan áhuga fyrir starfi sem ekki ber árangur, svæðin eru valin eftir væntanlegum árangri og hætt er við svæði þar sem aðstæður eru erfiðar og vinnan ber ekki árangur. En mismunandi mark- mið vegast á, þannig að valið er ekki alltaf augljóst. Á að græða upp moldir eða vikra? Á að græða upp börð eða mela? Aðgengi, kostnaður og fyrirhöfn skipta sköpum þegar kemur að því að velja verkefnin. Góður árangur er nokkurrar fyrirhafnar virði en bændur kæra sig ekki um að kosta til mik- illi vinnu eða fjármunum fyrir lítinn eða óvissan árangur. Landfræðilegar aðstæður á hverjum stað ráða miklu um hvaða svæði og hvernig svæði eru tekin til uppgræðslu, svo sem gróður- far, landrými, jarðvegur og færð. Þær hefðir sem fyrir eru á svæðinu hafa einnig áhrif. Uppgræðsluaðferðir Áburðardreifing er meginúrræðið við beittu uppgræðslurnar á hálendinu. Áburðarskammtar eru frá 100 kg/ha til 300 kg/ha. Algengustu áburðarskammtar eru 200 kg/ha af tvígildum áburði en skammtastærðir eru tilkomnar vegna leiðbeininga frá Landgræðslunni. Áburðinum er dreift eins snemma sumars og hægt er. Menn taka fyrir ákveðið svæði og dreifa á það í nokkur ár. Síðan er sleppt úr ári eða árum í dreifingu, þar sem gróður hefur tekið vel við sér og þekja er orðin góð. Áburðurinn sem sparast er notaður til að dreifa á nýjum stað og svæðið þannig stækkað smám saman. Þegar komin er ákveðin reynsla af uppgræðslustarfinu, vilja menn ráða sér meira sjálfir, hvar þeir dreifa og hve oft. Að dreifa eftir auganu er aðferðin sem bændur nota til að mæta breytileika og óvissu án þess að missa sjónar á markmiðunum. Fræsáning. Þar sem einhver gróður er fyrir, nægir að nota áburð og yfir- borðsdreifing á fræi bætir þar litlu við árangurinn. Í alveg gróðurlaust land, til dæmis aldauðan vikur, þarf að nota fræ. Til að sáningin komi að tilætluð- um notum er best að fella fræið niður, til dæmis með raðsáðvél. Túnvingull vex vel niðurfelldur í vikur og mela. Uppgræðsla vikurs. Vikur er áburðarfrekur. Í hreinan vikur eða vikursand þarf að nota fræ og helst að fella það niður. Annar jarðvegur, sem ekki er svo einsleitur og laus í sér, tekur betur við sér í uppgræðslu. Uppgræðsla rofabarða. Áburður getur dugað ágætlega einn og sér til að græða lægri börð og þar sem er hlýtt og skýlt og gróður er í framför af sjálfsdáðum. Hey er borið í há börð og áburður borinn á í nokkur eða allmörg ár á eftir. Áburði er dreift í lægri börð eða jaðra. Uppgræðsla barða kostar nær alltaf margar áburðardreifingar og tekur langan tíma. Við sáningu í rofabörð er best að fella fræið niður. Fræ af vallarfoxgrasi hefur reynst vel í rofabörð með öðru fræi. Snarrót dafnar vel sums staðar en beringspuntur miður.Menn láta erfiðustu börðin eiga sig. Árangur uppgræðslustarfs Eitt meginmarkmið bænda með uppgræðslum er að ná fullri þekju af gróðri sem getur lifað hjálparlaust. Við uppgræðslu barða og rofjaðra er stefnt að því að sár lokist og grói upp, rof hætti og gróður þeki moldir og börð. Bændur vinna að uppgræðslum á hverjum stað þar til þessum mark- miðum er náð. Aðstæður ráða hvað það tekur langan tíma og hve mikið það kostar. Yfirleitt er mjög gróður- lítið fyrir á þessum stöðum, þannig að uppgræðslurnar hljóta að teljast árangursríkar, þar sem þær heppnast á annað borð. Mjög fátítt er að bændur hafi þurft frá að hverfa og hætta við aðgerðir, þar sem þeir vita nokkuð vel fyrir hvað þýðir að reyna með þeim úrræðum sem þeir búa yfir. Erfitt að meta að ákveðnar aðgerð- ir leiði til ákveðins árangurs vegna þess flókna samspils sem leiðir til vistheimtar, en landið sjálft hefur þar mikil áhrif. Stöðugur, grýttur jarðvegur er kostur sem kemur fram í tegundafjöl- breytni. Grýttari jarðvegur gefur ekki endilega meiri þekju, því þar myndast yfirleitt lítil eða engin jarðvegsskán. Meirihluti þekju á fíngerðum jarð- vegi, vikri eða sandi virðist vera skán og plöntutegundir eru fáar. Blandaður jarðvegur gefur af sér fjölbreyttari gróður. Einsleitur gjóskujarðvegur er erfiður í uppgræðslu. Ef hraungrýti eða aur er samanvið vikurinn, ganga uppgræðslurnar miklu betur. Þar er gjarnan gróður fyrir, jarðvegur stöð- ugri og lífsskilyrði betri. Moldarblandinn jarðvegur og raki eru ótvíræðir kostir. Besta vís- bendingin um væntanlegan árangur er að þar sé einhver gróður fyrir, grastoddar, gróðurteygingar eða skán. Skjól getur haft afgerandi áhrif á árangur uppgræðslu, sem birtist meðal annars í tegundafjölbreytni. Jarðvegur á sandhellu eða moldarklöpp hefur tekið vel við sér í uppgræðslu. Hreinn hvítur vikur og mýrarauði virðast vera jarðvegsgerðir sem gróður getur ekki lifað í. Af öllum þeim niðurstöðum sem eru teknar saman hér að framan, sést að grjót í jarðvegi, hraun og aur í jarð- vegi, sandhella undir og skjól eru allt kostir þegar kemur að uppgræðslu. Allt dregur þetta úr hreyfingu í jarð- veginum og megin niðurstaðan er sú að hreyfing á jarðvegi standi gróðri helst fyrir þrifum við uppgræðslu á hálendinu. Lúpína hefur ekki verið notuð í beittu uppgræðslurnar á hálendinu en hún breiðist þar út engu að síður. Bændur eru ekki hrifnir af lúpínu þar sem hún þrífst illa og þar sem hún á ekki að vera en annars staðar hafa menn ekki á móti henni. Lúpína lifir vel á Suðurlandi og leggur þar undir sig landgræðslu- girðingar. Hún breiðist enn meira út þegar girðingin er tekin og getur jafnvel breiðst útfyrir girðingar sem standa enn. Tilraunir til að eyða lúpínu, sem hefur jafnvel vaxið upp af aðeins einni plöntu, hafa mistekist. Lúpína þrífst illa á Norðausturlandi, hugsanlega vegna þurrks. Þar fer lúpínan aðallega yfir gróður sem fyrir er, en þekur ekki ógróið land eins og gerist á Suðurlandi. Samspil viðhorfa, aðferða og árangurs við aðstæður Hæð yfir sjó, skjólsæld, jarðvegur, úrkoma og gróðursæld áður en ráð- ist er í uppgræðsluna, ræður því hversu mikið þarf til að græða upp viðkomandi land. Bændur bregðast við þessum breytileika og jafna hann út með mismunandi stærð áburðar- skammta, fjölda áburðardreifinga, með því að nota fræ eða ekki, fella fræið niður, dreifa kjötmjöli, dreifa heyi. Aðstæðurnar valda mismun- inum en bændurnir minnka hann með aðgerðum sínum. Niðurstaða mín er að samspil bændanna, lands- ins og umhverfisins ráði hvernig uppgræðslurnar taka við sér, en að landið og umhverfið ráði mestu um hvaða gróður lifir til langframa og hvernig landið þróast eftir að upp- græðslustarfinu telst lokið. Árangur af uppgræðslum bænda er góður, þó að þær séu beittar og ekki lakari en á friðuðum uppgræðslum, enda telja bændur að beit og upp- græðslur fari vel saman. Friðun ein og sér gagnast ekki til að græða upp land á hálendinu, umfram það sem gerist með hóflegri beit, en undan- farna áratugi hefur gróður á afréttum verið í framför með þeirri sauðfjárbeit sem þar hefur verið. Bændur þurfa að gæta bæði að hagsmunum búfjárins og landsins sem þeir eru að nýta. Fénu er hleypt á afréttinn, þegar það hentar bæði landinu og búfénu í samræmi við tíðarfar og árstíma. Menn fylgjast með vorkomunni á afréttinum til að sjá hvenær óhætt er að sleppa fénu. Þeir sem eiga sauðfé á afrétti, fylgjast auk þess með því að einhverju leyti yfir sumarið. Bændur, sem sjálfir fara til fjalls árum saman, fylgjast með ástandi afrétta að hausti ár frá ári og ástand fjárins fer ekki fram hjá þeim heldur. Þetta fólk lifir í náttúrunni, nýtur kosta náttúrunnar og gætir hagsmuna hennar. Heimamaðurinn er talandi hluti náttúrunnar á viðkom- andi stað og frá sínu sjónarhorni talar hann máli hennar. Tillögur Uppgræðslustarf bænda á hálendinu er umfangsmikið og árangursríkt. Ég fæ ekki séð að meiri árangur næðist eftir öðrum leiðum. Að mínu mati eru þessar uppgræðslur dæmi um gagn- virkni milli búskapar og náttúru, þar sem athafnir manna styrkja vistkerfið og koma landi og náttúru til góða. Tilkostnaður og fyrirhöfn dreifist á bæði heimamenn og opinbera aðila og er haldið í lágmarki. Vegna beitar- afnotanna hafa bændur raunverulega hagsmuni af því að ná árangri. Með því móti er engin hætta á að fjármunir sem ætlaðir eru í uppgræðslurnar, hverfi í annað bruðl. Hagsmunir bænda eru ómissandi drifkraftur fyrir uppgræðslustarfið, sem mikilvægt er að viðurkenna. Samstarf og samráð landgræðslu- fulltrúa og bænda hefur gengið vel og verið árangursríkt, þar sem sjón- armið bændanna hafa verið virt og höfð að leiðarljósi við ákvarðanir og framkvæmd. Í ljósi sögunnar tel ég heillavænlegast að ákvarðanir verði teknar á vettvangi heimamanna og að yfirráð þeirra á afréttunum verði ekki skert umfram það sem orðið er. Uppgræðsla lands á hálendinu er langtímaverkefni. Markmið með uppgræðslustarfinu þurfa að vera skýr, sanngjörn, framkvæmanleg og raunsæ og liggja fyrir til lengri tíma. Ég tel mjög óráðlegt að stofna þessu starfi í hættu með breytingum eða valdboðum sem miða að öðru en því sem bændur telja skynsamlegt og geta fallist á. Uppgræðsluverkefnin gætu styrkst enn frekar með meiri þekkingaröfl- un, fræðslu og samráði þeirra sem að þeim standa. Bændur hafa áhuga fyrir meiri þekkingu, svo fremi sem sú þekking byggi á öðru og meira en inn- antómum slagorðum. Meiri og betri fagleg aðstoð við gerð landbótaáætl- ana væri örugglega vel þegin víða. Enn vantar aðgengilegar og hand- hægar aðferðir til að meta árangur við uppgræðslur, sem bændur gætu notað við áætlanagerð og eftirfylgni. Samband uppgræðsluaðgerða, tíma, aðstæðna og árangurs þarf að rannsaka enn frekar til að byggja undir landbótaáætlanir og fleira. Ég tel að kröftum okkar væri betur varið til margs annars en að agnúast enda- laust út í sauðfjárbeit, í ljósi gróð- urframfara undanfarinna áratuga og þess góða árangurs sem náðst hefur við uppgræðslu afréttarlands á vegum bænda. Sigríður Jónsdóttir Arnarholti MÓ ÐIR JÖRÐ - LÍFRÆN RÆK TUN Í VALL ANESI HRÖKKVI brakandi hrökkbrauð úr íslensku korni. Mathvammsbörð á Austurafrétti Bárðdæla eftir allmörg ár í uppgræðslu. Ógrætt barð í Svartártorfum á Biskupstungnaafrétti. Barð í Svartártorfum á Biskupstungnaafrétti eftir allmörg ár í uppgræðslu. Undir Valafellsöldu á Landmannaafrétti. Eldri uppgræðsla í forgrunni (græn), yngri uppgræðsla fjær (rauð).

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.