Bændablaðið - 18.11.2021, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 47
sauðfjárbúskaparins alls staðar vera
grunnurinn.
Annað markmið bænda með
uppgræðslustarfi er að ná árangri.
Árangurinn felst í því að landið lokist
af gróðri, að gróðurinn verði sem fjöl-
breyttastur og að gróðurinn lifi. Menn
vilja stöðva rof og gróðureyðingu.
Aukinn gróður og beit telst ótvírætt
merki um árangur.
Þriðja markmið bænda með upp-
græðslustarfi er beitarhagræði, það
er að græða land undir beit eða til
beitarstjórnunar.
Yfirleitt velja bændur svæði
til uppgræðslu í samráði við
Landgræðsluna. Vel gengur með það
samstarf þar sem landgræðslufulltrú-
ar og bændur leggja sömu atriði til
grundvallar við svæðavalið.
Svæði eru valin til uppgræðslu til
að ná árangri og að hluta vegna beit-
arhagræðis. Menn hafa engan áhuga
fyrir starfi sem ekki ber árangur,
svæðin eru valin eftir væntanlegum
árangri og hætt er við svæði þar sem
aðstæður eru erfiðar og vinnan ber
ekki árangur. En mismunandi mark-
mið vegast á, þannig að valið er ekki
alltaf augljóst. Á að græða upp moldir
eða vikra? Á að græða upp börð eða
mela?
Aðgengi, kostnaður og fyrirhöfn
skipta sköpum þegar kemur að því
að velja verkefnin. Góður árangur er
nokkurrar fyrirhafnar virði en bændur
kæra sig ekki um að kosta til mik-
illi vinnu eða fjármunum fyrir lítinn
eða óvissan árangur. Landfræðilegar
aðstæður á hverjum stað ráða miklu
um hvaða svæði og hvernig svæði eru
tekin til uppgræðslu, svo sem gróður-
far, landrými, jarðvegur og færð. Þær
hefðir sem fyrir eru á svæðinu hafa
einnig áhrif.
Uppgræðsluaðferðir
Áburðardreifing er meginúrræðið við
beittu uppgræðslurnar á hálendinu.
Áburðarskammtar eru frá 100
kg/ha til 300 kg/ha. Algengustu
áburðarskammtar eru 200 kg/ha af
tvígildum áburði en skammtastærðir
eru tilkomnar vegna leiðbeininga frá
Landgræðslunni.
Áburðinum er dreift eins snemma
sumars og hægt er.
Menn taka fyrir ákveðið svæði
og dreifa á það í nokkur ár. Síðan er
sleppt úr ári eða árum í dreifingu, þar
sem gróður hefur tekið vel við sér
og þekja er orðin góð. Áburðurinn
sem sparast er notaður til að dreifa á
nýjum stað og svæðið þannig stækkað
smám saman.
Þegar komin er ákveðin reynsla af
uppgræðslustarfinu, vilja menn ráða
sér meira sjálfir, hvar þeir dreifa og
hve oft. Að dreifa eftir auganu er
aðferðin sem bændur nota til að mæta
breytileika og óvissu án þess að missa
sjónar á markmiðunum.
Fræsáning. Þar sem einhver gróður
er fyrir, nægir að nota áburð og yfir-
borðsdreifing á fræi bætir þar litlu við
árangurinn. Í alveg gróðurlaust land,
til dæmis aldauðan vikur, þarf að nota
fræ. Til að sáningin komi að tilætluð-
um notum er best að fella fræið niður,
til dæmis með raðsáðvél. Túnvingull
vex vel niðurfelldur í vikur og mela.
Uppgræðsla vikurs. Vikur er
áburðarfrekur. Í hreinan vikur eða
vikursand þarf að nota fræ og helst
að fella það niður. Annar jarðvegur,
sem ekki er svo einsleitur og laus í
sér, tekur betur við sér í uppgræðslu.
Uppgræðsla rofabarða. Áburður
getur dugað ágætlega einn og sér til
að græða lægri börð og þar sem er
hlýtt og skýlt og gróður er í framför af
sjálfsdáðum. Hey er borið í há börð og
áburður borinn á í nokkur eða allmörg
ár á eftir. Áburði er dreift í lægri börð
eða jaðra. Uppgræðsla barða kostar
nær alltaf margar áburðardreifingar
og tekur langan tíma.
Við sáningu í rofabörð er best að
fella fræið niður. Fræ af vallarfoxgrasi
hefur reynst vel í rofabörð með öðru
fræi. Snarrót dafnar vel sums staðar
en beringspuntur miður.Menn láta
erfiðustu börðin eiga sig.
Árangur uppgræðslustarfs
Eitt meginmarkmið bænda með
uppgræðslum er að ná fullri þekju af
gróðri sem getur lifað hjálparlaust.
Við uppgræðslu barða og rofjaðra er
stefnt að því að sár lokist og grói upp,
rof hætti og gróður þeki moldir og
börð. Bændur vinna að uppgræðslum
á hverjum stað þar til þessum mark-
miðum er náð. Aðstæður ráða hvað
það tekur langan tíma og hve mikið
það kostar. Yfirleitt er mjög gróður-
lítið fyrir á þessum stöðum, þannig
að uppgræðslurnar hljóta að teljast
árangursríkar, þar sem þær heppnast á
annað borð. Mjög fátítt er að bændur
hafi þurft frá að hverfa og hætta við
aðgerðir, þar sem þeir vita nokkuð vel
fyrir hvað þýðir að reyna með þeim
úrræðum sem þeir búa yfir.
Erfitt að meta að ákveðnar aðgerð-
ir leiði til ákveðins árangurs vegna
þess flókna samspils sem leiðir til
vistheimtar, en landið sjálft hefur þar
mikil áhrif.
Stöðugur, grýttur jarðvegur er
kostur sem kemur fram í tegundafjöl-
breytni. Grýttari jarðvegur gefur ekki
endilega meiri þekju, því þar myndast
yfirleitt lítil eða engin jarðvegsskán.
Meirihluti þekju á fíngerðum jarð-
vegi, vikri eða sandi virðist vera skán
og plöntutegundir eru fáar. Blandaður
jarðvegur gefur af sér fjölbreyttari
gróður.
Einsleitur gjóskujarðvegur er
erfiður í uppgræðslu. Ef hraungrýti
eða aur er samanvið vikurinn, ganga
uppgræðslurnar miklu betur. Þar er
gjarnan gróður fyrir, jarðvegur stöð-
ugri og lífsskilyrði betri.
Moldarblandinn jarðvegur og
raki eru ótvíræðir kostir. Besta vís-
bendingin um væntanlegan árangur
er að þar sé einhver gróður fyrir,
grastoddar, gróðurteygingar eða skán.
Skjól getur haft afgerandi áhrif á
árangur uppgræðslu, sem birtist meðal
annars í tegundafjölbreytni. Jarðvegur
á sandhellu eða moldarklöpp hefur
tekið vel við sér í uppgræðslu. Hreinn
hvítur vikur og mýrarauði virðast vera
jarðvegsgerðir sem gróður getur ekki
lifað í.
Af öllum þeim niðurstöðum sem
eru teknar saman hér að framan, sést
að grjót í jarðvegi, hraun og aur í jarð-
vegi, sandhella undir og skjól eru allt
kostir þegar kemur að uppgræðslu.
Allt dregur þetta úr hreyfingu í jarð-
veginum og megin niðurstaðan er sú
að hreyfing á jarðvegi standi gróðri
helst fyrir þrifum við uppgræðslu á
hálendinu.
Lúpína hefur ekki verið notuð í
beittu uppgræðslurnar á hálendinu
en hún breiðist þar út engu að síður.
Bændur eru ekki hrifnir af lúpínu þar
sem hún þrífst illa og þar sem hún á
ekki að vera en annars staðar hafa
menn ekki á móti henni.
Lúpína lifir vel á Suðurlandi og
leggur þar undir sig landgræðslu-
girðingar. Hún breiðist enn meira
út þegar girðingin er tekin og getur
jafnvel breiðst útfyrir girðingar sem
standa enn. Tilraunir til að eyða
lúpínu, sem hefur jafnvel vaxið upp
af aðeins einni plöntu, hafa mistekist.
Lúpína þrífst illa á Norðausturlandi,
hugsanlega vegna þurrks. Þar fer
lúpínan aðallega yfir gróður sem fyrir
er, en þekur ekki ógróið land eins og
gerist á Suðurlandi.
Samspil viðhorfa, aðferða og
árangurs við aðstæður
Hæð yfir sjó, skjólsæld, jarðvegur,
úrkoma og gróðursæld áður en ráð-
ist er í uppgræðsluna, ræður því
hversu mikið þarf til að græða upp
viðkomandi land. Bændur bregðast
við þessum breytileika og jafna hann
út með mismunandi stærð áburðar-
skammta, fjölda áburðardreifinga,
með því að nota fræ eða ekki, fella
fræið niður, dreifa kjötmjöli, dreifa
heyi. Aðstæðurnar valda mismun-
inum en bændurnir minnka hann
með aðgerðum sínum. Niðurstaða
mín er að samspil bændanna, lands-
ins og umhverfisins ráði hvernig
uppgræðslurnar taka við sér, en að
landið og umhverfið ráði mestu um
hvaða gróður lifir til langframa og
hvernig landið þróast eftir að upp-
græðslustarfinu telst lokið.
Árangur af uppgræðslum bænda er
góður, þó að þær séu beittar og ekki
lakari en á friðuðum uppgræðslum,
enda telja bændur að beit og upp-
græðslur fari vel saman. Friðun ein
og sér gagnast ekki til að græða upp
land á hálendinu, umfram það sem
gerist með hóflegri beit, en undan-
farna áratugi hefur gróður á afréttum
verið í framför með þeirri sauðfjárbeit
sem þar hefur verið.
Bændur þurfa að gæta bæði að
hagsmunum búfjárins og landsins
sem þeir eru að nýta. Fénu er hleypt
á afréttinn, þegar það hentar bæði
landinu og búfénu í samræmi við
tíðarfar og árstíma. Menn fylgjast
með vorkomunni á afréttinum til að
sjá hvenær óhætt er að sleppa fénu.
Þeir sem eiga sauðfé á afrétti, fylgjast
auk þess með því að einhverju leyti
yfir sumarið. Bændur, sem sjálfir fara
til fjalls árum saman, fylgjast með
ástandi afrétta að hausti ár frá ári og
ástand fjárins fer ekki fram hjá þeim
heldur. Þetta fólk lifir í náttúrunni,
nýtur kosta náttúrunnar og gætir
hagsmuna hennar. Heimamaðurinn
er talandi hluti náttúrunnar á viðkom-
andi stað og frá sínu sjónarhorni talar
hann máli hennar.
Tillögur
Uppgræðslustarf bænda á hálendinu
er umfangsmikið og árangursríkt. Ég
fæ ekki séð að meiri árangur næðist
eftir öðrum leiðum. Að mínu mati eru
þessar uppgræðslur dæmi um gagn-
virkni milli búskapar og náttúru, þar
sem athafnir manna styrkja vistkerfið
og koma landi og náttúru til góða.
Tilkostnaður og fyrirhöfn dreifist á
bæði heimamenn og opinbera aðila
og er haldið í lágmarki. Vegna beitar-
afnotanna hafa bændur raunverulega
hagsmuni af því að ná árangri. Með
því móti er engin hætta á að fjármunir
sem ætlaðir eru í uppgræðslurnar,
hverfi í annað bruðl.
Hagsmunir bænda eru ómissandi
drifkraftur fyrir uppgræðslustarfið,
sem mikilvægt er að viðurkenna.
Samstarf og samráð landgræðslu-
fulltrúa og bænda hefur gengið vel
og verið árangursríkt, þar sem sjón-
armið bændanna hafa verið virt og
höfð að leiðarljósi við ákvarðanir og
framkvæmd. Í ljósi sögunnar tel ég
heillavænlegast að ákvarðanir verði
teknar á vettvangi heimamanna og
að yfirráð þeirra á afréttunum verði
ekki skert umfram það sem orðið er.
Uppgræðsla lands á hálendinu
er langtímaverkefni. Markmið með
uppgræðslustarfinu þurfa að vera
skýr, sanngjörn, framkvæmanleg og
raunsæ og liggja fyrir til lengri tíma.
Ég tel mjög óráðlegt að stofna þessu
starfi í hættu með breytingum eða
valdboðum sem miða að öðru en því
sem bændur telja skynsamlegt og geta
fallist á.
Uppgræðsluverkefnin gætu styrkst
enn frekar með meiri þekkingaröfl-
un, fræðslu og samráði þeirra sem
að þeim standa. Bændur hafa áhuga
fyrir meiri þekkingu, svo fremi sem sú
þekking byggi á öðru og meira en inn-
antómum slagorðum. Meiri og betri
fagleg aðstoð við gerð landbótaáætl-
ana væri örugglega vel þegin víða.
Enn vantar aðgengilegar og hand-
hægar aðferðir til að meta árangur
við uppgræðslur, sem bændur gætu
notað við áætlanagerð og eftirfylgni.
Samband uppgræðsluaðgerða,
tíma, aðstæðna og árangurs þarf að
rannsaka enn frekar til að byggja
undir landbótaáætlanir og fleira. Ég
tel að kröftum okkar væri betur varið
til margs annars en að agnúast enda-
laust út í sauðfjárbeit, í ljósi gróð-
urframfara undanfarinna áratuga og
þess góða árangurs sem náðst hefur
við uppgræðslu afréttarlands á vegum
bænda.
Sigríður Jónsdóttir
Arnarholti
MÓ ÐIR JÖRÐ - LÍFRÆN RÆK TUN Í VALL ANESI
HRÖKKVI
brakandi hrökkbrauð
úr íslensku korni.
Mathvammsbörð á Austurafrétti Bárðdæla eftir allmörg
ár í uppgræðslu.
Ógrætt barð í Svartártorfum á Biskupstungnaafrétti. Barð í Svartártorfum á Biskupstungnaafrétti eftir allmörg
ár í uppgræðslu.
Undir Valafellsöldu á Landmannaafrétti. Eldri uppgræðsla
í forgrunni (græn), yngri uppgræðsla fjær (rauð).