Bændablaðið - 18.11.2021, Page 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202150
Á hverju ári taka NMSM samtök
in, sem eru samstarfsvettvangur
Norðurlandanna um ýmis málefni
sem snerta mjólkurframleiðslu,
saman margvíslegar áhugaverðar
upplýsingar sem tengjast þróun
mjólkurframleiðslu Norður
landanna.
Helstu upplýsingar má sjá hér
í meðfylgjandi töflu en þar kemur
m.a. fram að mjólkurframleiðsla
Norðurlandanna jókst á milli ára
um 1,3% og var alls 12,4 milljarðar
kílóa. Á sama tímabili, þ.e. frá árinu
2019 til 2020, fækkaði kúabúum
landanna fimm um 804 bú, eða um
4,1%, og var fjöldi þeirra í árslok
2020 kominn í 18.833.
Ísland eina landið
með minni framleiðslu
Líkt og undanfarin ár þá er
danska mjólkurframleiðslan lang
umsvifamest innan Norður landanna
en dönsku kúabúin framleiddu í fyrra
5,7 milljarða kílóa, eða um 46%
allrar mjólkur þessara fimm landa.
Landsframleiðsla mjólkur jókst þó
mest í Svíþjóð síðasta ár, eða um 68
milljónir kílóa, en sú danska um 57
milljónir kílóa, og þá bættu Finnland
og Noregur við sína framleiðslu um
alls 41 milljón kílóa. Ísland var eina
Norðurlandið þar sem varð fram
leiðslusamdráttur á síðasta ári.
72,3 kýr að meðaltali
Undanfarin ár hefur meðalbústærð
á Norðurlöndunum aukist jafnt og
þétt og virðist á engan hátt vera að
hægjast á þeirri þróun. Um síðustu
áramót var meðalbúið komið í 72,3
kýr og jókst bústærðin á milli ára
um 4,3%, eða um 3 kýr að meðaltali.
Breytingin innan Norðurlandanna
er þó gjörólík og bæði á Íslandi og
í Noregi breyttist meðalbústærðin
mun hægar en hjá hinum löndunum
þremur. Ekkert land kemst þó nærri
hinni geysihröðu þróun sem á sér
stað í Danmörku. Þar stækkaði með
albúið um 11,1 kú að meðaltali og
voru búin þar með 212,7 kýr um
áramótin. Þess má geta að þegar
þetta er skrifað, í nóvember 2021,
er bústærðin í Danmörku komin
yfir 220 kýr! Næststærstu búin eru
svo sem fyrr í Svíþjóð en í fyrsta
skipti í sögunni er meðalbústærðin
þar komin yfir 100 kýr. Sem fyrr eru
minnstu búin í Noregi en þar voru
28,8 kýr að jafnaði í árslok 2020.
Meðalbúið að framleiða 656 tonn
Ársframleiðsla norrænu kúabúanna
er auðvitað nátengd bústærðinni en
að jafnaði lagði hvert bú inn 656
þúsund kíló á síðasta ári, sem er
aukning um 35 þúsund kíló á einu
ári. Rétt eins og undanfarin ár bera
dönsku búin höfuð og herðar yfir
önnur bú á Norðurlöndunum og
raunar í allri Evrópu. Þar var hvert
bú að leggja inn að jafnaði 2,1
milljón kílóa sem er nærri 11föld
meðalframleiðsla norskra kúabúa
eins og sjá má við lestur töflunnar.
Næstafurðamestu búin eru í Svíþjóð,
þar sem meðalinnleggið nam 917
þúsund kílóum.
Kúm Norðurlandanna fjölgaði!
Þrátt fyrir að kúabúum Norður
landanna hafi fækkað um 804 þá
fækkaði kúnum ekki. Þetta hefur
ekki gerst í mörg ár og oftast hefur
kúnum fækkað nokkuð jafnt og þétt
samhliða fækkun kúabúanna. Mikil
eftirspurn eftir mjólk, og aukning
heildarframleiðslu Norðurlandanna,
gæti skýrt þessa þróun en fjöldi
kúnna í árslok síðasta árs var 1.362
þúsund sem er þó ekki nema 0,1%
aukning á milli ára.
Meðalkýrin að skila
9.074 kg í afurðastöð
Þegar horft er til afurðasemi kúnna
á milli landanna er staðan nokkuð
ólík eftir því hvaða land á í hlut
enda hefur þar áhrif bæði kúakynið
sem er notað við framleiðsluna og
það umhverfi sem kúabúin starfa
við. Oftast er það svo að þegar
meðalafurðir eru metnar, er oft not
Á FAGLEGUM NÓTUM
Lengi hefur sú hefð verið við
lýði hjá garðeigendum að laða
fugla að heimilisgarðinum á
veturna þegar sem minnst er af
aðgengilegri fæðu í náttúrunni.
Sumar fuglategundir komast
ágætlega af án þess háttar
inngripa en aðrar komast upp á
lag með að nýta þessa gjafmildi
garðeigenda. Fuglarnir njóta
matargjafanna og mannfólkið fær
ómælda ánægju af heimsóknum
þeirra. Fjölbreyttur garðagróður
getur á sama hátt laðað fugla að
garðinum, bæði til skjóls og sem
fæðugjafi. Í greni lifir nokkuð
af skordýrum allan veturinn
og er kærkomin fæða handa
hinum smáa en knáa glókolli og
krossnefurinn sækir í fræ sem
hann nær úr könglum barrtrjáa.
Berjarunnar koma mörgum
fuglategundum að gagni og
fjölærar plöntur gefa margar
hverjar fræ sem fuglar geta nýtt
sér. Á nokkrum rósategundum
vaxa síðla sumars
myndarleg orkurík
aldin sem geta
staðið langt fram
eftir hausti og fuglar
sækja í. Af öðrum
berjarunnum má
nefna skriðmispil,
úlfareyni og ylli.
Haustlauf sem
liggur á flötinni
og beðunum fram
eftir hausti er skjól
fyrir ýmis smádýr
sem fuglarnir sækja
í, sérstaklega skógarþrestir.
Almenna reglan er að garðar
með fjölbreyttum gróðri eru
eftirsóttastir af fuglum, bæði
sumar og vetur.
Haldið áfram fóðrun
allan veturinn
Garðfuglarnir muna vel eftir þeim
stöðum sem gefa örugga fæðu og
reiða sig á fóðurgjafir þar sem
þær eru stundaðar. Það getur
verið afdrifaríkt fyrir fuglana ef
fóðrun þeirra er hætt skyndilega
um miðjan vetur. Gerum því
ráð fyrir að hefja fuglafóðrun
snemma hausts og halda henni
áfram sleitulaust þar til vorar á
ný. Vatn er fuglum nauðsynlegt
og þarf að huga að því. Þá þarf
að útbúa grunna skál með volgu
vatni sem reglulega er fylgst með,
sérstaklega í frostum. Svo er rétt
að þrífa fóðurbretti, fóðrara og
vatnsskálar öðru hvoru svo ekki
sé hætt við að fuglarnir smitist af
sjúkdómum.
Alls konar útbúnaður er til
þegar kemur að fóðurbrettum eða
annars konar útbúnaði sem hentar
fuglunum. Sumar tegundir, til
dæmis snjótittlingar, kjósa að
tína fæðu af jörðinni og vilja
gjarnan hafa gott útsýni því þeir
huga vel að öryggi sínu. Starar,
skógarþrestir og svartþrestir
geta líka tínt fæðu af jörðinni
en þeir sækja líka í fóðurbretti
af ýmsu tagi. Gráþrestir og
svartþrestir geta verið styggir
og felugjarnir. Þeim ætti að
gefa fóður á afviknari stöðum
eins og undir rifsberjarunnum
o.þ.h. Auðnutittlingar tína
fræ af birkitrjám meðan þau
er að finna en sækja mikið í
fóðrara sem komið er fyrir í
trjám. Músarrindlar geta litið
í heimsókn en þeir sækja lítið
í fóðurgjafa. Hrafnar gera sig
að jafnaði ekki heimakomna í
görðum en geta átt það til og
taka þá vel til matar síns.
Og hvað er svo í matinn?
Fuglarnir sem sækja garðinn
heim hafa þörf fyrir ólíka fæðu.
Sumar tegundir sem geta birst í
garðinum eru aðallega sólgnar
í ávexti og ber, til dæmis hin
litfagra silkitoppa, sem stundum
má sjá bregða fyrir á veturna.
Þrestir sækja líka í slíka fæðu.
Epli eru sérlega vinsæl meðal
þrasta. Það er gott að skera
þau í tvennt og koma þeim
fyrir í krónum trjánna eða á
fóðurbretti. Auðnutittlingar
og margar aðrar fuglategundir
sækja í sólblómafræ, með eða
án skurnsins. Auðnutittlingum
þykir líka gott að hafa aðgang
að smáu fræi sem er ætlað
búrfuglum eins og gárum. Af og
til birtast sjaldgæfari fuglar eins
og hettusöngvarar í garðinum.
Þeir eru harðir af sér en sækja
talsvert í fuglafóður.
Orkuríkt fóður eins og
rúsínur og kjötsag er fyrirtaks
fuglafæða. Kurlaður maís er
ofarlega á vinsældalistanum
og fita kemur að góðu gagni í
kuldatíð. Varast ætti að bera út
æti sem er bleytt í fitu því hún
getur valdið fuglum erfiðleikum
við að þrífa fiðrið. Það er þó í
lagi að bleyta brauðmola í
jurtaolíu þegar kalt er í veðri.
Ágætt er að halda fuglafóðr
un áfram þangað til fer að líða
að varptíma fuglanna.
Ingólfur Guðnason
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Garðfuglar gleðja
Skógarþrestir eru meðal þeirra fuglategunda sem sólgnir eru í ávexti.
Myndir / Örn Óskarsson
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Mjólkurframleiðsla Norðurlandanna í góðum vexti:
Fjöldi mjaltaþjóna
nálgast 10.000
– Ísland og Noregur í sérflokki þar sem yfir 60% kúabúa eru með mjaltaþjóna
Noregur og Ísland tróna efst Norðurlanda í hlutfallslegum fjölda kúabúa með mjaltaþjón. Þar hefur Ísland átt óopin-
bert heimsmet, en nú er hlutfallið í Noregi orðið 0,3 prósentustigum hærra. Ísland er með 60,3%, en Noregur 60,6%.
Mynd / HKr.
Starar eru staðfuglar sem má finna víða.