Bændablaðið - 18.11.2021, Síða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021
BÆKUR& MENNING
Guðni
Í bókinni fer Guðni með lesand-
ann í ferðalag um hinar dreifðu
byggðir Íslands og heimsækir
fólk af öllu tagi. Fyrir utan að
vera skemmtilegir og forvitni-
legir viðmælendur fæst það við
spennandi og oft og tíðum nýstár-
leg viðfangsefni sem styrkja lífið í
sveitunum. Í þessum heimsóknum
er Guðni yfir og allt um kring og
hin landskunna „guðníska“ skýtur
hvað eftir annað upp kollinum.
Guðjón Ragnar Jónasson fylgdi
Guðna á þessum ferðum og hefur
skrásett á aðgengilegan og grípandi
hátt það sem á daga þeirra dreif.
Jólabók sveitamannsins
Aðspurður segir Guðni að þetta sé
jólabók sveitamannsins og allra þeirra
sem unna sveitinni sem og þeirra sem
finnst gaman að lesa um skemmtilegt
fólk. „Við Guðjón Ragnar, skrásetjari
bókarinnar, fórum víða, bæði á miklar
uppistandshátíðir og skemmtilega
vinafundi. Til dæmis á Vopnaskak á
Vopnafirði og í mjólkurhúsið á Stóru-
Ásgeirsá. Ekki má heldur gleyma
ferðunum í fjörið í Vestmannaeyjum
sem og í Grindavík þar sem eru miklir
sauðfjárbændur.
Guðni segir að líf fylgi sauð-
kindinni, hún er eiginlega hin félags-
lega tenging sveitanna. Rauði þráð-
urinn í þessari bók eru sögur af sauð-
kindinni, sagðar af fólki sem miðlar
til okkar lífssýn sinni. Við hittum
til dæmis fyrir verkalýðsleiðtogann
mikla, Aðalstein Árna Baldursson,
á Húsavík sem jafnframt er bóndi
í Grobbholti en nafnið er flott og
lýsandi fyrir Þingeyinga. Gleðin er
nefnilega við völd í Grobbholti.“
Guðni telur að bókin sé rennandi
læsileg, hún sé í stuttum köflum,
viðmælendurnir eru 50-60 og t.a.m.
fá lesendur innsýn í litríka lífssögu
Axels Rúnars, bónda á Valdarási í
Vestur-Húnavatnssýslu. Fundum
þeirra Guðna bar að fyrir algöra til-
viljun. Axel hefur áður sagt hluta af
sögu sinni en hér segir hann okkur
hluti sem aldrei hafa komið fram
áður. Axel lýsir því í bókinni hve
mikill velgjörðarmaður séra Róbert
Jack var honum, tók hann að sér
þegar að hann átti erfitt, sá allt í
honum sem góður fótboltasnilling-
ur þarf að búa yfir og kom honum
til Manchester United. Axel er eini
Íslendingurinn sem leikið hefur með
liðinu og tókst meira að segja að
skora mark í leiknum. Guðni árétt-
aði að endingu að saga
Axels sé mergjuð lífssaga
sem lærði það af Róbert
heitnum Jack að leikn-
um sé aldrei lokið fyrr
en seinni hálfleikurinn
sé búinn. Altént rímar sú
lífskenning við Guðna
sem aldrei hefur verið
hressari en nú, nýfluttur
aftur í Árnessýsluna og
unir nú hag sínum vel
í nýja miðbænum á
Selfossi.
Hér á eftir fer stuttur
kafli úr bókinni.
Guðni fundar með
sauðfjárbændum í
Vestmannaeyjum
Ólafur Týr Guðjóns-
son, kennari við
Fram halds skólann
í Vestmanna eyjum,
var einn fundar-
manna, Hann veiðir
lunda í Suðurey og
segir að eftir að
kindurnar hurfu um
stund úr eynni hafi
hún orðið erfið yfir-
ferðar og örðugt að
fóta sig þar, einnig
vegna þess hve
mikið var af hvönn og baldursbrá.
Víða voru þúfurnar orðnar stórar
og miklar, en þó ótraustar í miðju,
þannig að ef göngufólk gekk ofan á
þeim hrundu þær einfaldlega saman,
en ef gengið var á milli þeirra hefði
jarðvegurinn verið svo þunnur að
gengið var í gegn í hverju spori.
Þetta hefði síðan breyst til batnaðar
eftir að fé kom aftur út í eyjuna – þá
komu troðnar götur sem auðvelduðu
einnig mjög alla umferð manna.
Ólafur Týr sagði okkur enn
fremur að eftir að bærinn tók yfir
eyjarnar og lögbýlin týndu tölunni
hefðu verið stofnuð veiðifélög.
Veiðifélagið í Suðurey hefði yfir-
ráð yfir lundaveiðinni, eggjatökunni
og beitinni en í öðrum eyjum sæju
félögin bara um veiðina og bjarg-
nytjar. Telur Ólafur það til bóta
að nýting eyjarinnar sé öll á sömu
hendi því þá sé hægt að tryggja beit
í eynni. Bætti hann við í gamni að
Suðureyjar sósíalisminn væri eini
sósíalisminn sem vitað er um að
hafi virkað í veröldinni því að
félagarnir geri allt saman og hver
og einn geri það sem hann gerir best.
Uppskar hann vitaskuld skellihlátur
fundargesta, enda sagði hugboðið
okkur að flestir fundargestanna
væru harðir sjálfstæðismenn (þótt
Guðni teldi líklegt að inni á milli
mætti finna einstaka framsóknar-
mann). En Guðna var, ekki síður en
öðrum, skemmt yfir ummælunum
og sagði að Suðureyingar væru bara
eins og lærisveinar Jesú Krists sem
hefðu verið fyrstu samvinnumenn
á jörðinni.
Sem fyrr segir kennir Ólafur Týr
við Framhaldsskólann í Vestma-
nnaeyjum. Hefur hann skráð
örnefni í Vestmannaeyjum og
skoðað fjárfjölda þar í tengsl-
um við skráninguna, en tölur
um fjölda sauðfjár, nautgripa
og hrossa hafa varðveist allt frá
1704 og fram til dagsins í dag.
Sagði Ólafur frá því að þegar
hann var að kenna um örnefni
í sögu Vestmannaeyja hafi hann
rýnt í fjárfjöldatölurnar og séð að
eftir stóratburði á borð við móðu-
harðindin og meiri háttar náttúru-
hamfarir, þegar fjárfellir varð á
öllu landinu, hafi fjárfjöldinn í
Vestmannaeyjum stigið mjög hratt
upp aftur. Telur Ólafur líklegt að
fólk hafi við þessar kringumstæður
komið ofan af landi út í Eyjar og
tekið með sér það fé sem það átti
og fjárstofn eyjanna því stækkað
mjög hratt. Hins vegar fengu
Ólafur og nemendur hans illa
skilið hvers vegna fé fækkaði
svo mikið árið 1947, en þá
snarfækkaði sauðfé – og samt
var hvorki stríð né frostavet-
ur. Fljótlega sáu nemendurn-
ir þó samhengið. Árið 1947
var gerð eignakönnun til að
stemma stigu við undanskotum
frá skatti. Þar með hvarf stór
hluti af fjárstofni Eyjamanna.
Höfðu gárungarnir á orði að
Eyjamenn hefðu komið honum
í var þegar ný vinstri stjórn
komst til valda þetta ár.
Kindur í Álsey.
Myndir / Sigurgeir Jónasson
Fé flutt í Álsey.
Féð flutt aftur út í Heimaey eftir gosið haustið 1973. Mynd / Sigurgeir Jónasson
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á
Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun@haverslun.is
haverslun.is
Þjónustuverkstæði og varahlutir
Husqvarna K970
15,5 cm sögunardýpt
Husqvarna K3600
Vökvasög
Sögunardýpt 27cm
Mynd / Aðalsteinn Árni Baldursson