Bændablaðið - 18.11.2021, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202154
Fyrir nokkru síðan var mér boðið
að prófa nýjasta Nissan Qashqai
bílinn sem er með 1332 cc bensín-
vél sem á að skila 158 hestöflum.
Nissan Qashqai er í boði í 8 mis-
munandi útfærslum, ýmist bara
framhjóladrifinn eða með drif á
öllum fjórum.
Ódýrasti Qashqai-bíllinn
er beinskiptur og bara með
framhjóladrif og kostar frá
4.690.000, en bíllinn sem prófaður
var heitir N-Connecta og kostar
6.290.000.
Hljóðlátur og þægilegur í akstri
Eins og með flesta bíla sem ég prófa
þá byrjaði ég á að finna hvernig bíll-
inn væri í innanbæjarakstri og hver
eyðsla mín væri á um 20-25 km
akstri. Ég var ánægður með snerpuna
í akstrinum, vélin er skemmtilega
kraftmikil og bíllinn fljótur að ná
umferðarhraða, lipur í snúningum
og gott að leggja í stæði þar sem
bæði hliðarspeglar og bakkmynda-
vél koma vel út í bílnum.
Innanbæjareyðsla mín mældist
8,7 lítrar miðað við 100 km, en
uppgefin eyðsla í blönduðum akstri
er 6,2 þannig að ég var vel sáttur með
eyðsluna.
Næst var það hávaðamælingin á
90 km hraða og mældist bíllinn ekki
nema 67,4 db., en mér telst til að það
sé í lægri kantinum af mælingu á bíl
með bensínvél.
Fjórhjóladrifið virkar
vel á lausum malarvegi
Í langkeyrslu mældi ég eyðsluna og
samkvæmt aksturstölvunni var ég að
eyða 6,6 lítrum á hundraðið sem mér
fannst mjög gott þar sem ég var ekkert
að reyna að spara eldsneyti.
Á malarvegi var fjöðrunin að
taka hefðbundnar holur vel, en 18
tommu dekkin voru ekki að gefa
mikla fjöðrun í holunum. Ég hefði
viljað prófa þennan bíl á 16 eða 17
tommu felgum sem ég myndi halda að
væru þægilegri undir bílnum á malar-
vegum. Steinahljóð var aðeins yfir
meðallagi undir bíl, en fjórhjóladrifið
hélt bílnum mjög stöðugum á lausum
malarveginum.
Góður ferðabíll en farangursrými
mætti vera meira
Að ferðast í bílnum er gott, fótapláss
gott í framsætum, en aðeins síðra í
aftursætum. Hægt er að keyra bílinn í
fjórum mismunandi akstursstillingum,
standard, eco, sport eða snow.
Skemmtilegast fannst mér að
keyra bílinn í sport stillingunni,
sérstaklega í innanbæjarakstrinum.
Viðbragð var frekar „letilegt“ í snow
og eco stillingunum, en bíllinn var
jafnastur og þægilegastur í standard
stillingunni sem ég var með stillt á
megnið af akstrinum.
Varadekkið er það sem ég kalla
„aumingja“, er vissulega skárra en
ekkert varadekk eins og boðið er upp
á í mörgum bílum. Farangursrýmið er
í minna lagi, sérstaklega ef maður er
að hugsa um langt frí með farangur
fyrir fimm manns.
Ýmsar upplýsingar,
plúsar og mínusar
Áður en ég skilaði bílnum núllaði
ég aksturstölvuna og setti bílinn í
sport-stillinguna. Mig langaði að sjá
hvort ég gæti verið svo óþekkur á
gjöfinni að á 5 km mundi eyðslan fara
yfir 20 lítra miðað við 100 km (hef
gert þetta áður við nokkra bíla). Þrátt
fyrir einbeittan „bensíneyðsluvilja“
tókst það ekki, eyðslan var bara 18,1,
en miðað við akstur hefði ég haldið
eyðsluna átt að vera á milli 20 og 22
lítrar á hundraðið.
Undir bílinn er frekar hátt upp í
lægst punkt. Hann er líka vel búinn
öryggislega séð með blindhornsvara,
akreinalesara og margt fleira gott,
fimm ára ábyrgð eða 160.000 km
akstur. Gott að keyra, kraftur fínn,
bakkmyndavél er að þeirri gerð sem
mér líkar best, aksturstölvan með
margar gagnlegar upplýsingar.
Mínusarnir eru fáir, lítið
farangursrými, varadekkið mætti
vera eins og önnur dekk undir
bílnum. Verðið er gott, sá ódýrasti
framhjóladrifni er á verði frá
4.690.000 og sá dýrasti (Tekna) er
á 7.390.000.
Á Nissan Qashqai er óvenju mikið
af aukabúnaði í boði, s.s. hjólafestingar,
skíðabogar, farangursbox, fast eða
laust dráttarbeisli og ýmislegt fleira.
Hægt er að fræðast meira um Nissan
Qashqai á vefsíðunni www.bl.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Nissan Qashqai
Nissan Qashqai 4X4. Myndir / HLJ
Lengd 4.425 mm
Hæð 1.665 mm
Breidd 2.625 mm
Helstu mál og upplýsingar
Hægt að velja um fjórar mismunandi ökustillingar í skiptingunni.
Er mjög hrifinn af þessari uppsetningu á bakkmyndavél, en myndgæðin
hefðu mátt vera betri þegar dimmt var orðið.
Til að fyrirbyggja að maður fái sekt fyrir afturljósaleysi hefur maður ljósa-
takkann alltaf kveiktan.
18 tommu felgunum er vel hægt að skipta út fyrir 17 eða 16 til að fá meiri
fjöðrun út úr dekkjunum á vondum vegum.
Með einbeittum brotavilja er hægt
að láta bílinn eyða miklu bensíni, en
mér tókst ekki að koma honum yfir
20 lítra í eyðslu.
Farangursrýmið frekar lítið, en vara
dekkið er það sem ég kalla aumingja.
Hávaðinn rétt undir meðaltali í
bensínbíl á 90 km hraða.