Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 16

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 16
Margir félagar í Sjálfsbjörg taka ekki þátt í öðru félagsstarfi og sækja ekki al- mennar skemmtanir. Öflugt félagsstarf Sjálfsbjargarfélag- anna er því mjög veigamikill þáttur í starf- semi þeirra. Flest Sjálfsbjargarfélögin hafa líka haldið uppi þróttmiklu félags- starfi og 7 félög eiga eigið húsnæði. Vinnu- stofu hafa 6 félög rekið um lengri eða skemmri tíma. Sjálfsbjörg á Akureyri rekur plastverk- smiðjuna Bjarg og endurhæfingarstöð í eigin húsnæði, sem fyrir löngu er orðið allt of lítið, og er nú að byggja framtíðar- húsnæði fyrir starfsemi sína. Sjálfsbjargarfélögin mynduðu með sér landssamband árið 1959 og hefur lands- sambandið rekið skrifstofu frá því haust- ið 1960. Á skrifstofunni eru nú 4 starfs- menn. Eitt af verkefnum landssambandsins er bygging Sjálfsbjargarhússins að Hátúni 12 í Reykjavík. Þangað leita líka fjöl- margir einstaklingar, allsstaðar að af landinu, til þess að fá upplýsingar og að- stoð. Þá annast skrifstofan verkefni fyrir félögin og fleira. Sjálfsbjargarfélögin hafa notið góðs stuðnings bæjarfélaga og almennings á þeim stöðum, þar sem þau starfa. Nafn félaganna ,,Sjálfsbjörg“ skýrir vel tilgang þeirra. Við væntum stuðnings til þess að geta lifað sjálfstæðu lífi: Stuðnings til þess að hafa sömu möguleika og aðrir þjóð- félagsþegnar, til menntunar, atvinnu, menningarlífs og tómstundaiðkana. Það vantar ennþá mikið á að fatlað fólk hafi sömu möguleika og ófatlaðir, en góð- ur skilningur og stuðningur almennings vekur hjá okkur vonir um ennþá betri ár- angur af starfi Sjálfsbjargarfélaganna í framtíðinni. BÓKAGERÐ ÍSLENDINGA . . . FRAMHALD ai bls. 31. hnjánum og fjöðurstaf í hendi og ljós- gjafinn tólgarkerti eða lýsislampi. Miðað við annað færi alls ekki illa á því, að „reka brillur upp á nasir“ Snorra Sturlusonar og starfsbræðra hans — svona á mynd. En, hvað um konurnar, er það alveg úti- lokað að konur, jafnvel nunnur, hafi verið liðtækar við bókagerðina? Margur er kviks voðinn, er gamalt orð- tak og sannmæli fyrr og nú. Svo er lækna- vísindunum fyrir að þakka, að slys, sem áður hefðu haft alvarlegar afleiðingar, verulega fötlun, í för með sér, valda nú ekki nema e.t.v. tímabundnum óþægind- um. Það virðist ekki fjarri lagi að ætla, að fyrr á öldum hafi, eins og nú, verið margir fatlaðir á fslandi, og í þeirra hópi margir góðum gáfum gæddir, með trausta og haga hönd og skarpa sjón. En þeir gátu ekki gengið til almennra verka. Bókagerð var næsta almennur heimilisiðnaður á íslandi, þar til prent- listin breytti öllu í því efni. Þar hefur stór hópur fatlaðra fengið störf við sitt hæfi og ekki aðeins við skriftir, heldur einnig sem kennarar og leiðbeinendur. Eftir því, sem nánar er hugað að þess- um málum, verður sú tilgáta æ magn- aðri og áleitnari, að fatlaðir hafi lagt meira en lítið af mörkum til þess, sem Palladíus biskup lýsti með orðunum: „Þetta er máttugur og dýrlegur hlutur .. STOFNUN SJÁLFSBJARGAR . . . FRAMHALD af bls. 41. Öll þessi starfsemi sýnir glöggt, að fatl- aða fólkið finnur vel hvar skórinn kreppir og beinir örvum sínum að þeim málefn- um, sem mest þörfin er á hverju sinni. Með þessu hugarfari höldum við ótrauð áfram baráttunni fyrir betra heimi og framtíðaraðbúnaði fatlaðs fólks í landinu. 14 SJÁLFSBJÖHG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.