Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 4
Árin 2020 og 2021 var meira byggt en í mörg ár þar á undan og þriðjungur var vegna þessara ákvarðana stjórnvalda. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU BJÓÐUM UPP Á 37”-40” BREYTINGAPAKKA ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 R A M BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM Forsætisráðherra hefur skipu- lagt fundaröð Þjóðhagsráðs og endurvakið átakshóp um húsnæðismál í aðdraganda kjarasamninga. Hún telur að hugsanlegar sviptingar sveitarstjórnarkosninga muni ekki trufla þessa vinnu. kristinnhaukur@frettabladid.is K JARAMÁL Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er búin að skipa átakshóp til þess að finna leiðir til að örva framboð á húsnæði. Skip- unin er gerð í tengslum við kom- andi kjarasamninga, en sambæri- legur hópur var skipaður árið 2019 í aðdraganda Lífskjarasamninganna. „Þessi hópur skilaði tillögum sem skiluðu miklum árangri,“ segir Katrín. „Árin 2020 og 2021 var meira byggt en í mörg ár þar á undan og þriðjungur var vegna þessara ákvarðana stjórnvalda. Það er stuðnings við almenna íbúðakerfið og hlutdeildarlánin sem gerðu að verkum að hlutur fyrstu kaupenda var mikill.“ Að auki hefur Katrín skipulagt fundaröð hjá Þjóðhagsráði og eru tveir fundir nú þegar búnir. Annars vegar var fundað um húsnæðismál- in og hins vegar efnahagsmálin. En í Þjóðhagsráði sitja fulltrúar aðila vinnumarkaðarins, ríkisins, sveitar- félaganna og Seðlabankans. Katrín segir að allir sem sitja við þetta borð séu sammála um að hús- næðismálin séu stærsta viðfangs- efnið. „Þetta snýst um lóðir, skipu- lag og uppbyggingu. Allir þessir aðilar þurfa að taka þátt,“ segir hún. Viðbúið er líka að húsnæðismálin verði eitt stærsta málið í sveitar- stjórnarkosningunum, ekki síst í þremur stærstu sveitarfélögunum, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. „Ég ímynda mér að húsnæðis- málin verði stórmál í sveitarstjórn- arkosningunum sem fram undan eru en ég trúi því að það muni ekki trufla þessa vinnu,“ segir Katrín um kosningarnar. Allir sjái að það þurfi að byggja meira, því að frá hruni hafi aðeins verið byggðar 3.000 íbúðir árlega en þörfin sé 3.500. Kjarasamingagerðin hefst seint í vor eða sumar og búist er við því að hún verði f lókin og erfið. Bæði vegna stöðunnar á húsnæðismark- aði og yfirvofandi dýrtíðar, en einn- ig vegna þess hversu misvel atvinnu- greinar komi undan faraldrinum. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni hafa forsvarsmenn verka- lýðsfélaga kallað eftir aðgerðum frá ríkinu til þess að liðka fyrir, svo sem stuðningi við þá verst settu í gegnum bótakerfið. Katrín segir kjarasamningagerð fyrst og fremst vera verkefni og skyldu aðila vinnumarkaðarins. Þjóðhagsráð leysi þá ekki undan þeirri skyldu. „Við viljum samt eiga gott samráð við þessa aðila til þess að geta tekið þátt í því að efla lífs- kjör almennings,“ segir Katrín. Ríkisstjórnin hefur verið gagn- rýnd fyrir að hafa ekki efnt allt sem hún lofaði fyrir síðustu kjarasamn- ingagerð. Meðal þess voru aðgerðir eða lagasetning um húsaleigu, starfskjör, takmarkanir á verð- tryggðum lánum og kennitöluflakk. „Það hefur ekki allt verið klárað en samt ótrúlega stór hluti af þessum aðgerðum,“ segir Katrín. Nefnir hún að sumar aðgerðanna hafi ekki klárast vegna óeiningar milli aðila vinnumarkaðarins. Aðeins hand- fylli af málum standi eftir ókláruð. ■ Virkjar átakshóp í húsnæðismálum á ný og boðar fundaröð Þjóðhagsráðs Katrín Jakobs­ dóttir forsætis­ ráðherra telur húsnæðismálin verða eitt af stærstu við­ fangsefnum í aðdraganda næstu kjara­ samninga­ gerðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK adalheidur@frettabladid.is DÓMSMÁL Flugvirki sem starfar hjá Samgöngustofu hafði betur gegn ríkinu, þegar Héraðsdómur Reykja- víkur viðurkenndi að tími starfs- manns sem fer í ferðalög á vegum vinnuveitanda utan dagvinnutíma teljist til vinnutíma. Jón Sig u rðs son, lög maðu r mannsins, telur málið fordæmis- gefandi hvort tveggja fyrir opin- bera starfsmenn og starfsmenn á almennum vinnumarkaði. Fréttablaðið f jallaði um mál f lugvirkjans árið 2020 en aflað var ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna þess. Í málinu voru tilteknar tvær ferðir f lugvirkjans, til Ísraels og til Sádi-Arabíu. Ferðatíminn í seinna tilvikinu náði frá klukkan 4.15 að morgni til klukkan 2.40 tæpum sólarhring síðar, en aðeins tíminn frá klukkan 8 til 16 taldist til vinnu- tíma. Um er að ræða prófmál sem var rekið fyrir hönd hóps f lugvirkja sem starfa hjá Samgöngustofu. Aflað var ráðgefandi álits EFTA- dómstólsins vegna málsins. Það var niðurstaða hans að sá tími, sem varið væri í ferðalög utan hefðbundins vinnutíma til annars áfangastaðar en fastrar eða hefð- bundinnar starfstöðvar í því skyni að inna að hendi störf eða skyldur að kröfu vinnuveitanda, teljist vinnutími í skilningi vinnutíma- tilskipunar ESB. Var þessi niðurstaða lögð til grundvallar í málinu og að mati héraðsdóms var f lugvirkinn að sinna skyldum í þágu vinnuveit- anda síns þegar hann fór umrædd- ar ferðir utan hefðbundins vinnu- tíma. Því er viðurkennt af hálfu dómsins að ferðirnar teljist til vinnutíma. ■ Ferðatími talinn vinnutími að fengnu áliti EFTA-dómstóls Lögmaður mannsins telur málið fordæmis- gefandi fyrir alla ríkis- starfsmenn. bth@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð- herra hefur í ljósi góðrar reynslu af þjónustu geðheilsuteymis fanga ákveðið að tryggja rekstur teymis- ins til frambúðar með föstu fjár- magni. Teymið var sett á fót sem nýsköp- unarverkefni á sviði geðheilbrigðis- mála til eins árs árið 2020 og síðan framlengt um eitt ár. Á vef Stjórnarráðsins segir að algjör stakkaskipti hafi orðið á geð- heilbrigðisþjónustu við fólk sem afplánar dóma í fangelsum með til- komu teymisins. Árlegur kostnaður nemur um 84 milljónum króna og verður hluti af föstu framlagi inn í rekstrargrunn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins. ■ Fast fé í bætta geðheilsu fanga Willum Þór Þórsson, heilbrigðis­ ráðherra birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Rúmlega 408 milljón til- felli af Covid-19 hafa verið staðfest í heiminum. Tæplega sex milljónir manna hafa látið lífið vegna sjúk- dómsins. Hér á landi var 10.241 einstakling- ur í einangrun með Covid í gær og 34 lágu á sjúkrahúsi. 54 hafa látist hér á Íslandi vegna Covid-19. ■ Tæplega sex milljónir látist 4 Fréttir 12. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.