Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 30
„Ég er Reykvíkingur í húð og hár, alin upp í Smáíbúðahverfinu, og hef alltaf verið upptekin af hreyfingu og heilsu. Eftir að ég eignaðist dóttur mína árið 1994 ákvað ég að skella mér á námskeið í Stúdíói Ágústu og Hrafns og vissi hreint ekkert hvað ég væri að ana út í, en eróbikkið, sem þá var allsráðandi, varð að fíkn. Hrafn Friðbjörnsson, blessuð sé minning hans, sá fljótt hversu mikill stuðbolti ég var og er. Hann sá í mér einhverja ham- hleypu og harðjaxl og dró mig yfir í kennslu hjá þeim Ágústu. Ég var því fljótt farin að kenna í hóptímum og einn mánuðinn yfir 100 tíma! Þá var ekkert spáð í hvort maður brynni út, því þetta var svo hrika- lega gaman og mikið æði í þá daga. Hrafn var yndislegur maður og sannarlega örlagavaldur í mínu lífi, hann átti afmæli degi á undan mér, 8. febrúar, svo ég hugsaði einmitt hlýtt til hans í vikunni.“ Þetta segir Ellen Elsa Sigurðar- dóttir, leikfimikennari í World Class og ritari í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ. Ellen Elsa hefur um árafjöld kennt heilsurækt í opnum og lokuðum tímum í World Class, og vel þekkt eru sívinsæl námskeið hennar, Súperform. „Ég stend nú á fimmtugu og er því ekki alveg jafn skafin eða í sama súperforminu og ég var yngri, þegar ég keppti í fitness og var „all in“ í ræktinni, en ég er í mjög góðu formi miðað við aldur,“ segir Ellen Elsa hress. „Ég hef alltaf viljað vera vel á mig komin og skráði mig strax sem barn, eða fimmtán ára, í líkams- rækt hjá Bjössa í World Class, Skeifunni. Þar sótti ég eróbikktíma hjá sjálfum Magga Scheving og er búin að lifa og hrærast í þessu allar götur síðan, þekki allar þessar stóru fyrirmyndir sem ruddu brautina þegar líkamsræktaræðið hófst á Íslandi,“ segir Ellen Elsa. Hún hefur lengst af starfað við einka- og hópþjálfun hjá World Class, en líka hjá Hreyfingu, JSB og Betrunarhúsinu. Margir muna eftir Ellen Elsu úr leikfimiþáttum sem Stöð 2 sýndi síðdegis hér áður fyrr og á undanförnum árum hefur hún dæmt í fitness-keppnum hérlendis. „Ég er hætt öllu keppnisstandi í dag en dóttir mín, Kristjana Huld Kristinsdóttir, tók við keflinu og er á fullu í bikiní-fitness. Hún er tvöfaldur Íslandsmeistari og hefur keppt erlendis og gengið vel. Hún er sú í fjölskyldunni sem er í sannköll- uðu súperformi,“ segir Ellen Elsa með stolti. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Ellen Elsa er spennt að prófa fleiri fæðubótarefni frá Eylíf og ætlar næst að prófa Active Joints fyrir liðheilsuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Úr hreinum, íslenskum hráefnum Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og Stronger LIVER; allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukefnum er bætt við og framleiðslan er á Íslandi. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún Tryggvadóttir, stofnandi vörulínunnar. n Active JOINTS er sérhönnuð blanda sem inniheldur kalkþörunga, smáþörunga, GeoSilica kísil og birkilauf. Margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif næringarefnanna á bein, liði, meltingu og húð. Auk þess inniheldur bætiefnið C- og D3-vítamín. n Stronger LIVER er nýjasta varan frá Eylíf. Hún inniheldur fjögur íslensk næringar- efni frá sjálfbærum auðlindum til sjávar og sveita. Innihaldsefnin eru kítósan, sem bindur fituefni í meltingavegi, ætihvönn sem hefur verið notuð frá örófi alda við meltingartruflunum, kísill og kalkþör- ungar úr hafinu. Blandan er styrkt með C-vítamíni, kólíni sem stuðlar að eðli- legum fituefnaskiptum, og mjólkurþistli, sem er þekktur fyrir að hafa góð áhrif á meltinguna og starfsemi lifrar. Ólöf Rún stofnaði Eylíf vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi á sjálf- bæran hátt frá náttúrulegum auðlindum landsins og auka þannig aðgengi fólks að þeim hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt og stuðla að sveigjanlegri líkama, þá erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum að heilsan er dýrmætust, því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsuvandamál. Heil- brigð melting er grunnurinn að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á gæðavöru fyrir meltinguna,“ segir Ólöf Rún. Laus við uppþembu Ellen Elsa hefur síðan í október tekið inn fæðubótarefnið Stronger Liver frá Eylíf með góðum árangri. „Ólöf Rún Tryggvadóttir, stofn- andi Eylífar, hefur verið í tímum hjá mér og var svo elskuleg að leyfa mér að prófa Stronger Liver. Ég hafði verið með uppþembu sem nú hefur lagast á undraskömmum tíma. Ég var ekki slæm að öðru leyti, en finn engu að síður mikinn og góðan mun á meltingunni. Lifrin fjarlægir eiturefni og síar blóð sem kemur frá meltingarfærum og það leynir sér ekki að Stronger Liver gerir henni gott í þeim starfanum. Ég finn hvað mér líður vel og er stabíl í magan- um. Ég er ekki lengur uppþembd en mestan mun finn ég á hægðunum, sem eru súpergóðar með Stronger Liver,“ segir Ellen Elsa. Hún er spennt fyrir að prófa fleiri fæðubótarefni frá Eylíf. „Næst ætla ég að prófa Active Joints því það er afar vel af því látið fyrir liðheilsuna og með aldrinum verður maður stirðari í liðum. Ég hef tröllatrú á þessum vörum og mæli hiklaust með þeim. Ég veit að Eylíf stendur fyrir gæðum, og hreinum og náttúrlegum vörum, og eflaust fá þau verðlaun fyrir þau fyrr en síðar.“ n Eylíf-vörurnar fást í öllum apó- tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Mela- búðinni og Nettó. Ókeypis heim- sending af eylif.is Fæðubótarefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. 2 kynningarblað A L LT 12. febrúar 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.