Fréttablaðið - 12.02.2022, Side 33

Fréttablaðið - 12.02.2022, Side 33
Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda. Íslandsstofa sinnir mörkun og markaðssetningu fyrir Ísland og íslenskar útflutningsgreinar, styður íslensk fyrirtæki í sókn á erlenda markaði og greiðir götu erlendrar fjárfestingar í íslensku atvinnulífi. Framtíðarsýn langtímastefnu fyrir íslenskan útflutning er að Ísland verði þekkt sem leiðandi land á sviði sjálfbærni. Svið Útflutnings- og fjárfestinga er kjarnasvið Íslandsstofu og ber ábyrgð á þjónustu Íslandsstofu við fyrirtæki og hagaðila. Sviðið vinnur eftir útflutningsstefnu Íslands og veitir ráðgjöf og þjónustu til allra útflutningsgreina í því skyni að greiða fyrir markaðssetningu og útflutningi á vörum og þjónustu. Þjónusta er veitt innan sex áherslusviða: 1. Orka og grænar lausnir. 2. Hugvit, nýsköpun og tækni. 3. Listir og skapandi greinar. 4. Ferðaþjónusta. 5. Sjávarútvegur. 6. Matvæli og náttúruafurðir Fagstjórar starfa við hverja áherslu og leiða faglega vinnu verkefnahópa um áherslurnar. Að auki starfa fagstjóri útflutningsþjónustu og fagstjóri fjárfestinga innan sviðsins, þvert á áherslur. Svið útflutnings og fjárfestinga veitir þjónustu til útflutningsfyrirtækja í formi ráðgjafar og annarrar þjónustu. Slík ráðgjöf getur falist í ábendingum um heppilega markaði, veita upplýsingar um markaðssvæði, koma á tengslum við sérhæfða ráðgjafa, benda á kaupstefnur, veita aðgang að gagnasöfnum og efla viðskiptatengsl íslenskra fyrirtækja erlendis. Starfsfólk sviðsins skipuleggur einnig þátttöku íslenskra fyrirtækja í kaupstefnum, vörusýningum eða viðskiptasendinefndum og sér um framkvæmd viðburða erlendis í samvinnu við viðskiptafulltrúa og markaðssamskiptasvið. Á sviðinu er unnið að framkvæmd á sértækum og almennum markaðsverkefnum í samvinnu við svið markaðssamskipta. Meðal verkefna má nefna: Menntunar- og hæfniskröfur: • Reynsla af stjórnun og 5 ára reynsla af erlendu markaðs- og kynningarstarfi og útflutningi á vöru og/eða þjónustu. • Leiðtogafærni, hæfni til að leiða breytingar og virkja aðila til samstarfs. • Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og framúrskarandi samskiptafærni. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur málakunnátta er æskileg. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar næstkomandi. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. • Inspired by Iceland • Seafood from Iceland • Horses of Iceland • SeaTech by Iceland • Green by Iceland • Saman í sókn • Reykjavik Science City • Skapandi Ísland • Datacenters by Iceland • Meet in Reykjavík, Iceland Convention Bureau • Film in Iceland Sérfræðingar sviðsins veita upplýsingar og aðstoða erlenda fjárfesta sem hafa áhuga á beinni erlendri fjárfestingu á Íslandi. Starfsfólk sviðsins á samstarf við utanríkisráðuneytið um ýmis viðskiptatengd málefni er varða þjónustu Íslandsstofu við hagaðila og fyrirtæki og annast einnig samstarf við systurfyrirtæki erlendis um þjónustu við íslensk fyrirtæki m.a. Business Sweden. Forstöðumaður leiðir starf sviðsins og er hluti af yfirstjórn Íslandsstofu. ÍSLANDSSTOFA LEITAR AÐ ÖFLUGUM STJÓRNANDA Í STARF FORSTÖÐUMANNS ÚTFLUTNINGS OG FJÁRFESTINGA Forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.