Fréttablaðið - 12.02.2022, Qupperneq 33
Umsjón með starfinu hafa Hilmar G.
Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs
og stjórnvalda. Íslandsstofa sinnir mörkun
og markaðssetningu fyrir Ísland og íslenskar
útflutningsgreinar, styður íslensk fyrirtæki
í sókn á erlenda markaði og greiðir götu
erlendrar fjárfestingar í íslensku atvinnulífi.
Framtíðarsýn langtímastefnu fyrir íslenskan
útflutning er að Ísland verði þekkt sem leiðandi
land á sviði sjálfbærni.
Svið Útflutnings- og fjárfestinga er kjarnasvið Íslandsstofu og ber ábyrgð á þjónustu Íslandsstofu
við fyrirtæki og hagaðila. Sviðið vinnur eftir útflutningsstefnu Íslands og veitir ráðgjöf og þjónustu til
allra útflutningsgreina í því skyni að greiða fyrir markaðssetningu og útflutningi á vörum og þjónustu.
Þjónusta er veitt innan sex áherslusviða:
1. Orka og grænar lausnir.
2. Hugvit, nýsköpun og tækni.
3. Listir og skapandi greinar.
4. Ferðaþjónusta.
5. Sjávarútvegur.
6. Matvæli og náttúruafurðir
Fagstjórar starfa við hverja áherslu og leiða faglega vinnu verkefnahópa um áherslurnar. Að auki
starfa fagstjóri útflutningsþjónustu og fagstjóri fjárfestinga innan sviðsins, þvert á áherslur.
Svið útflutnings og fjárfestinga veitir þjónustu til útflutningsfyrirtækja í formi ráðgjafar og annarrar
þjónustu. Slík ráðgjöf getur falist í ábendingum um heppilega markaði, veita upplýsingar um
markaðssvæði, koma á tengslum við sérhæfða ráðgjafa, benda á kaupstefnur, veita aðgang að
gagnasöfnum og efla viðskiptatengsl íslenskra fyrirtækja erlendis.
Starfsfólk sviðsins skipuleggur einnig þátttöku íslenskra fyrirtækja í kaupstefnum, vörusýningum eða
viðskiptasendinefndum og sér um framkvæmd viðburða erlendis í samvinnu við viðskiptafulltrúa og
markaðssamskiptasvið.
Á sviðinu er unnið að framkvæmd á sértækum og almennum markaðsverkefnum í samvinnu við svið
markaðssamskipta. Meðal verkefna má nefna:
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af stjórnun og 5 ára reynsla af erlendu markaðs- og kynningarstarfi og útflutningi
á vöru og/eða þjónustu.
• Leiðtogafærni, hæfni til að leiða breytingar og virkja aðila til samstarfs.
• Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og framúrskarandi samskiptafærni.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur málakunnátta er æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
• Inspired by Iceland
• Seafood from Iceland
• Horses of Iceland
• SeaTech by Iceland
• Green by Iceland
• Saman í sókn
• Reykjavik Science City
• Skapandi Ísland
• Datacenters by Iceland
• Meet in Reykjavík, Iceland
Convention Bureau
• Film in Iceland
Sérfræðingar sviðsins veita upplýsingar og aðstoða erlenda fjárfesta sem hafa áhuga á beinni
erlendri fjárfestingu á Íslandi.
Starfsfólk sviðsins á samstarf við utanríkisráðuneytið um ýmis viðskiptatengd málefni er varða
þjónustu Íslandsstofu við hagaðila og fyrirtæki og annast einnig samstarf við systurfyrirtæki
erlendis um þjónustu við íslensk fyrirtæki m.a. Business Sweden.
Forstöðumaður leiðir starf sviðsins og er hluti af yfirstjórn Íslandsstofu.
ÍSLANDSSTOFA LEITAR AÐ ÖFLUGUM STJÓRNANDA
Í STARF FORSTÖÐUMANNS ÚTFLUTNINGS OG FJÁRFESTINGA
Forstöðumaður
útflutnings og fjárfestinga
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára