Fréttablaðið - 26.03.2022, Qupperneq 30
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
verður þú eiginlega gömul
þegar hún fermist?“ Ég svaraði bara
að mér væri alveg sama.“
Christina: „Ég dett stundum í að
pæla hvað við verðum gömul þegar
við fermum en annars skiptir það
engu máli, aldur er bara tala.“
Berglind: „Ég held að fólk gleymi
stundum í þessari umræðu að þó að
við séum eldri foreldrar og eigum
kannski ekki eftir að upplifa eitt-
hvað, að þá sé það í raun ekkert
sjálfsagt fyrir neinn að lifa lengi.
Maður veit ekkert hversu mörg ár
maður á, jafnvel þótt maður eignist
börn ungur. Maður á bara að vera
þakklátur og gefa eins mikla ást og
maður getur.“
Aðstæður …
Það er oftast mikill aðstöðumunur á
tvítugum og fertugum, upplifa þær
að það skipti máli?
Þórunn Högna: „Finnið þið ekki
að nú þegar maður er búinn að
koma sér ágætlega fyrir og harkið að
mestu að baki og maður er ekki að
flýta sér að henda barninu til dag-
mömmu til þess að fara að vinna
og halda áfram. Mér finnst það stór
breyta.“
Christina: „Ég eignaðist börn
rúmlega tvítug, tæplega þrítug og
fertug svo ég hef samanburðinn.
Ég myndi mæla með 40 ef maður
hugsar um hvað við getum gefið
barninu. Við erum með au-pair
og það er aldrei stress á heimilinu,
okkur finnst við ekki vera að missa
af neinu djammi og setjum hana
sjaldan í pössun. Við erum mikið
meira heima. En líkamlega er maður
mikið betri tvítugur – þrítugur. Ég
er rétt að geta hreyft mig núna og
hún er að verða tveggja ára. En ég
elska þetta rólega „vibe“, lífið er bara
fjölskyldan.“
Dísella: „Já, það var auðvelt að
komast aftur í form eftir fyrstu tvö
en erfiðara eftir þriðja, allt í einu er
ég komin með einhvern mjaðma-
verk. Svo hefur maður minni tíma
til að hugsa um sjálfan sig.“
Christina: „En auðvitað, þegar
maður er vanur frelsinu og krakk-
arnir orðnir stórir, þá er þetta pínu
frelsissvipting. Maður þarf að venj-
ast því og minna sig á að það þarf
einhver að vera heima.“
Berglind: „Maður áttar sig betur
á því hvað tíminn líður hratt og
reynir því að njóta hverrar stundar
betur.“
Christina: „Við fengum oft að
heyra að nú ættum við að vera að
njóta, en við njótum þess einmitt
að hafa hana með.“
Dísella: „Mér finnst einmitt svo
gaman að lifa og njóta í gegnum
börnin. Allt önnur upplifun.“
Þórunn: „Mér finnst yndislegt
að vita til þess að við eigum eftir
að upplifa svo margt skemmtilegt
með henni og finnst ég ná að staldra
betur við og njóta þess núna.“
Þakklætið og framtíðin …
Christina: „Ég upplifi mikið þakk-
læti og segi reglulega við manninn
minn: „Horfðu á hana, hvernig
gátum við búið til svona flott ein-
tak?“ Því eldri sem við erum, því
meira vitum við að þetta er ekki
sjálfgefið. Maður veit svo innilega að
það eru ekki allir sem geta átt börn
– hvað þá að börnin séu heilbrigð.“
Dísella: „Ætli ég hafi ekki aðeins
meiri áhyggjur af framtíðinni. Að
ég haldi mér í formi til að geta leikið
með og verið við fulla heilsu. Mig
langar enn þá að nenna á fótbolta-
mótin og hinar tómstundirnar
sem munu vera. Mér finnst það í
rauninni erfiðast við að vera eldri
mamma – ég held að allt annað sé
jákvætt. Maður er vitsmunalega
meira tilbúinn til að hugsa um
þessi kríli og vonandi þolinmóðari
þegar þarf. Maður er líka fjárhags-
lega á betri stað en heilsan er stórt
umhugsunarefni – maður vill geta
verið fjörugur og skemmtilegur en
maður er klárlega ekki jafn liðugur
og sterkur og maður var á þrítugs-
aldri.“
Þórunn Clausen: „Ég er sammála.
Enda ekki sanngjarnt að hún fái
ekki þetta allt, því hún er yngst.“
Christina: „Maður vill geta haldið
í við þau, við höfum alltaf hugsað
frekar vel um okkur en ég hætti til
að mynda að drekka enda finnst
mér leiðinlegt að vera þunn og vil
vera til staðar á morgnana.“
Berglind: „Lífið hefur tekið alveg
nýja stefnu og í raun ótrúlegt hversu
mikil áhrif það hefur haft að fá hana
inn í lífið okkar. Hún hefur einhvern
veginn gefið framtíðinni nýjan
tilgang sem gerir lífið svo miklu
skemmtilegra.“ ■
Það var
handagangur í
öskjunni í ljós-
myndastúdíónu
enda ekki á
hverjum degi
sem tíu konur
prýða forsíðu
Fréttablaðsins.
Ég var alltaf alveg
ákveðin í að halda
áfram og gefast ekki
upp, sérstaklega eftir
að ég kynntist einni
konu sem fór í tólf
skipti, hún var mér
hvatning um að halda
áfram.
Berglind
Stórstjörnur sem urðu mæður eftir fertugt
■ Leikkonan Julianne Moore var 41 árs þegar hún eignaðist
dótturina Liv.
■ Leikkonan Halle Berry eignaðist sitt fyrsta barn 41 árs, dótturina
Nahla og svo soninn Maceo þegar hún var orðin 47 ára.
■ Leikkonan Susan Sarandon var 42 og 45 ára þegar hún átti synina
Jack og Miles.
■ Fyrirsætan Christie Brinkley var 44 ára þegar hún átti dótturina
Sailor Lee.
■ Leikkonan Nicole Kidman var 41 árs þegar hún eignaðist dóttur-
ina Sunday Rose.
■ Leikkonan Mery Streep eignaðist dóttur rétt fyri 42 ára afmælið.
■ Leikkonan Salma Hayek eignaðist dótturina Valentinu, 41 árs.
■ Söngkonan Celine Dion var 42 þegar tvíburasynirnir komu í
heiminn.
■ Leikkonan Kim Basinger eignaðist einkadótturina, Ireland, 41 árs.
■ Söngkonan Gwen Stefani eignaðist soninn Apollo 44 ára.
■ Leikkonan Uma Thurman var 42 ára þegar dóttirin Altaluna fædd-
ist.
■ Söngkonan Madonna var 42 þegar sonurinn Rocco kom í heiminn.
■ Söngkonan Janet Jackson var fimmtug þegar sonur hennar Eissa
fæddist.
■ Leikkonan Geena Davis eignaðist öll þrjú börnin sín eftir fer-
tugt. Dóttirin fæddist þegar hún var 46 ára og tveimur árum síðar
komu tvíburadrengir.
■ Beverly D’Angelo og eiginmaður hennar Al Pacino eignuðust tví-
burasyni rétt fyrir fimmtugt.
■ Söngkonan Geri Halliwell var 44 þegar sonur hennar fæddist.
■ Fyrirsætan Naomi Campbell var 51 árs þegar dóttir hennar kom í
heiminn.
■ Leikkonan Cameron Diaz var 47 þegar hún eignaðist dótturina
Raddix.
30 Helgin 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ