Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 35
Ég tek alltaf mín
vítamín inn í formi
munnúða en mér finnst
vítamínúðar mjög þægi-
legir.
Auður Helga Halldórsdóttir
var valin efnilegasti iðkandi
á Evrópumóti í hópfim-
leikum aðeins 16 ára gömul
og þykir munnúðar og magn-
esíum nauðsyn á löngum
æfingadögum.
Einstakur árangur Auðar Helgu
Halldórsdóttur hefur ekki leynt sér
undanfarið, en þessi unga stúlka
hefur afkastað afar miklu á sínum
íþróttaferli gegnum tíðina. Auður
Helga er aðeins 16 ára gömul og
er búsett í Þorlákshöfn en íþróttir
einkenna líf hennar. Þrátt fyrir
ungan aldur hefur Auður Helga náð
ótrúlegum árangri á íþróttasviðinu
en til að mynda er hún margfaldur
Íslandsmeistari í frjálsíþróttum og
fimleikum ásamt því að hún hefur
verið valin leikmaður ársins í fót-
bolta þónokkrum sinnum. Hún var
jafnframt valin íþróttakona Ölfuss
árið 2020. Auður Helga er sérlega
metnaðarfull og samviskusöm og
stendur sig vel í hverju því sem hún
tekur sér fyrir hendur.
Fyrst Íslendinga að hlotnast
slíkur heiður
Frá unga aldri hefur Auður Helga
æft fimleika af miklum áhuga. Í
desember síðastliðnum keppti
hún á Evrópumóti með stúlknaliði
Íslands, sem fór fram í Portúgal,
en þar höfnuðu þær í 2. sæti með
frábærum árangri. Á mótinu hlaut
Auður Helga verðlaun sem efni-
legasti keppandi úr hópi þeirra sem
kepptu í unglingaflokki allra landa
sem komu til keppni. Auður Helga
er fyrst Íslendinga til að hlotnast
slíkur heiður með frábærum
árangri sínum og má með sanni
segja að hún sé þjóðinni til mikils
sóma.
Auður Helga hefur verið að
notast við bætiefni frá Better You og
deilir hér með okkur sinni reynslu
af einstökum vörum sem hafa
hjálpað henni að komast í gegnum
langa æfingadaga.
Munnúðar góð leið til að muna
eftir daglegum vítamínum
„Ég tek alltaf mín vítamín inn í
formi munnúða en mér finnst víta-
mínúðar mjög þægilegir. Ég er alltaf
mikið á ferðinni og stoppa stutt
heima og því er þetta mjög fljótlegt
og ég gef mér því frekar tíma til að
nota úðana en að taka töflur. Ég
finn að ég er mun orkumeiri og tel
þetta hjálpa mér í skammdeginu
til að auka við vítamínforða. Mér
finnst algjör snilld að það sé hægt
að uppfylla daglega skammta af
mikilvægum vítamínum með
munnúðum,“ segir Auður, sem
hefur verið að nota vítamín-munn-
úðana frá Better You upp á síðkastið
og þykkir þeir frábærir í amstri
dagsins. Munnúðarnir frá Better
You eru einföld leið til að taka inn
nauðsynleg vítamín og steinefni
fyrir þá sem eiga erfitt með að
gleypa töflur. Munnúðarnir eru sér-
staklega hannaðir þannig að þeir
frásogist beint inn í blóðrásina og
fara fram hjá meltingarveginum og
tryggja þannig hámarks upptöku.
Magnesíumflögur í baðið eftir
langa æfingadaga
Magnesíum er eitt af mikilvægustu
steinefnum líkamans og er m.a.
nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi
hjarta, vöðva og taugakerfis. Ásamt
því er magnesíum talið geta dregið
úr stífleika og flýtt fyrir endur-
heimt vöðva eftir álag sem og haft
jákvæð áhrif á svefn. Allt eru þetta
góðir kostir fyrir íþróttafólk en
Auður Helga hefur verið að notast
við flögurnar frá Better You með
frábærum árangri.
„Ég æfi flesta daga vikunnar og
stundum tvisvar á dag og þá þykir
mér mjög gott að geta látið leka í
bað, sett magnesíumflögurnar út
í vatnið og láta þreytuna líða úr
líkamanum. Ég finn að ég er betur
undirbúin fyrir æfingu daginn eftir
og ég finn því síður fyrir þreytu
í líkamanum.“ Flögurnar henta
afar vel í baðið eða heita pottinn
og koma í sex tegundum, Original,
Muscle og Sleep ásamt vinsælu
nýjungunum; Relax, Mind og
Revive sem hafa notið mikilla vin-
sælda. Því geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi. ■
Munnúðar og
magnesíum
nauðsyn á löngum
æfingadögum
Auður Helga æfir flesta daga og finnst gott að fara í bað með magnesínumflögum í lok dags. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Munnúðar frá Better You eru einföld leið til að taka inn vítamín og steinefni.
Magnesíum er
eitt af mikilvæg-
ustu steinefn-
um líkamans.
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 26. mars 2022