Fréttablaðið - 26.03.2022, Qupperneq 36
Danshópurinn DASS er
hópur af hæfileikaríkum
krökkum á aldrinum 12-14
ára sem nú eru á leið á
heimsmeistaramót í dansi í
San Sebastian á Spáni í júní
og hlakka mikið til.
elin@frettabladid.is
DASS-hópurinn samanstendur af
níu dönsurum sem flestir eru nem-
endur við Listdansskóla Íslands.
Þau stofnuðu sinn eigin danshóp
undir nafninu DASS. Þá æfa þau
flest undir stjórn Auðar Bergdísar
Snorradóttur hjá Listdansskóla
Íslands. Í hópnum eru átta stúlkur
og einn drengur. Hópurinn lenti í
fyrsta sæti í sínum flokki í undan-
keppni alþjóðlegu danskeppninn-
ar Dance World Cup sem fram fór í
Borgarleikhúsinu um miðjan mars.
Keppnin á Spáni fer fram 24. júní
til 2. júlí og þar sem fyrirvarinn er
stuttur þurfa krakkarnir að safna
sér peningum fyrir ferðina og for-
eldrar þeirra að hjálpa til við það.
Stór hópur íslenskra dansara mun
keppa á heimsmeistaramótinu,
sem sýnir hversu mikill áhugi er
á dansi hér á landi. Sigurvegari
keppninnar verður heimsmeistari
í dansi 2022.
DASS-danshópurinn hefur
dansað saman í tæpt ár og komið
fram á ýmsum viðburðum og segja
að það sé einstaklega skemmti-
legt. Um þessar mundir eru þau að
útbúa myndband sem þau ætla að
sýna í fermingarveislum sínum. En
öll nema eitt fermast í ár.
Krakkarnir hafa verið dugleg
að æfa sig, en þau sýndu hrekkja-
vökudans í Borgarleikhúsinu sem
leiddi þau til sigurs. „Atriðið var
rosalega flott,“ segja þau. „Við
höfðum sýnt þetta atriði áður, en
breyttum því fyrir keppnina,“ segir
Snæfríður. „Við ætlum að reyna
að safna okkur fyrir ferðinni til
Spánar með því að selja alls konar
vörur. Þau eru með síðu á Insta-
gram undir #danshopurinndass
þar sem hægt er að fylgjast með
ferðum þeirra og skoða vörur sem
boðnar verða til sölu.
DASS varð til þegar móðir Snæ-
fríðar Ingvadóttur, Hrefna Hall-
grímsdóttir, stofnaði hópinn til
að gefa dóttur sinni tækifæri til að
skapa eitthvað sérstakt í kringum
dansinn. Hrefna hafði sjálf dansað
mikið á yngri árum. Snæfríður
fékk vini sína með sem einnig voru
að æfa dans. Hópurinn hefur náð
vel saman og komið víða fram. Þau
eru samheldin og dugleg að æfa.
Stærstur hluti hópsins æfir dans
í Listdansskóla Íslands og hefur
stundað námið frá unga aldri.
Vilhjálmur Árni Sigurðsson er
þrettán ára og hefur verið ötull
leikari í barnasýningum leik-
húsanna, meðal annars í Karde-
mommubænum auk þess að koma
fram með Skoppu og Skrítlu.
Það voru reyndar þær sem vöktu
áhuga hans á dansinum. Nokkrar
stúlknanna í hópnum eru líka
í leiklist svo listrænn áhugi er
mikill hjá krökkunum. Þau segja
að leikhúsin hafi oft samband við
Listdansskólann og bjóði krökkum
hlutverk. Vilhjálmur segist hafa
kynnst stelpunum í gegnum
Skoppu og Skrítlu. Honum finnst
engu skipta að vera eini strákurinn
í hópnum. „Markmið mitt er að
halda áfram í dansi og verða mjög
góður dansari. Þótt ég verði ekki
dansari í framtíðinni þá læri ég svo
mikið í gegnum þessa listsköpun
og tjáningu. Ég legg mig alveg
100% fram í því sem ég er að gera,“
segir hann.
Fríða Lovísa Daðadóttir er
yngst í hópnum, tólf ára. Hún æfir
bæði ballett og listdans hjá List-
dansskólanum og með DASS. „Ég
stefni á að verða flottari og betri
dansari,“ segir hún. Iðunn Björk
Kristjánsdóttir tekur undir með
Fríðu og segist ætla að halda áfram
að dansa og verða enn betri í fram-
tíðinni. „Kannski geri ég dansinn
að atvinnu,“ segir hún.
María Ísól Tinnudóttir segir að
sér finnist gaman í dansinum en
sé óráðin með framtíðina. „Ég ætla
samt að halda áfram að dansa, mér
finnst það mjög gaman.“
Rannveig Edda Aspelund segist
stefna á listabraut í menntaskóla.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að
dansa.“ Indiana Ólafsdóttir tekur
í sama streng og hinir. „Ég ætla að
vera eins lengi í dansinum og ég
mögulega get. Mig langar að ná
öllum mínum markmiðum. Ég hef
heillast af nútímadansi því hann
gefur manni svo mikið frelsi.“
Snæfríður er á sama máli. Hún
ætlar að halda áfram að dansa og
sjá hvert hann leiðir hana. „Djass-
ballett heillar mig alltaf.“
Sóley Hjaltadóttir stefnir á að
fara til útlanda að dansa í fram-
tíðinni. Sannarlega efnilegir
krakkar sem eiga framtíðina fyrir
sér á danssviðum heimsins. Bríet
Járngerður Unnardóttir sem er
fjórtán ára er einnig í Dass en var
veik þegar viðtalið fór fram.
Það er hægt að styrkja ferða-
sjóðinn þeirra með því að kaupa
af þeim vörur sem sýndar eru
á Instagram-síðu þeirra #dans-
hopurinndass eða með beinum
framlögum í ferðasjóð þeirra,
reikningsnúmer: 0370-13-009883,
Kt. 120383-3109. n
Dansandi á leið á
heimsmeistaramót
Siguratriðið í Borgarleikhúsinu um miðjan mars. MYND/AÐSEND
Ungu dansararnir í danshópnum DASS eru farin að hlakka mikið til að fara til
Spánar og keppa á heimsmeistaramóti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
4 kynningarblað A L LT 26. mars 2022 LAUGARDAGUR