Fréttablaðið - 26.03.2022, Side 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
ninarichter@frettabladid.is
„Frétt vikunnar, ársins og mögu-
lega þessa áratugar, eru auðvitað
þau hryllilegu mannréttindabrot
sem Vladímír Pútín og hans hund-
trygga hirð fremur nú í Úkraínu.
Rúmur mánuður er frá innrás Rússa
inn í nágrannaríki sitt, og ef finna
má eitthvað til að gleðjast yfir í
tengslum við þennan hörmungar
hildarleik, er það sú staðreynd að
stríðsrekstur Rússa gengur mun verr
en Pútín áætlaði og varnir Úkraínu
eru miklu sterkari en nokkur þorði
að vona.
Af innlendum vettvangi finnst
mér áframhaldandi sala á hlut
ríkisins í Íslandsbanka ekkert sér-
lega fréttnæm, enda var viðbúið
að hún myndi eiga sér stað, þótt
það hafi komið internetinu í opna
skjöldu. Hins vegar finnst mér það
stórmerkilegt, þótt það komi mér
akkúrat ekkert á óvart, að ÁTVR
hafi ákveðið að kæra til Landsrétt-
ar úrskurð héraðsdóms sem hafði
komist að þeirri niðurstöðu að net-
verslanir mættu bara víst selja fólki
vín. Hvað þessi málarekstur mun
kosta á eftir að koma í ljós, en það
er gott að hugsa til þess að íslenska
forsjárhyggjan lifir enn góðu lífi – og
það á kostnað skattgreiðenda.“ ■
Hörmungar hildarleikur og átök um áfengi
Hvað þessi
mála-
rekstur
mun kosta
á eftir að
koma í ljós.
■ Frétt vikunnar
Guðmundur Björn
Þorbjörnsson
ninarichter@frettabladid.is
Borgarhólsskóli á Húsavík er orðinn
símalaus skóli síðan á miðvikudag.
„Við höfum verið að ræða skjá-
notkun barna og unglinga og eftir
Covid hefur okkur fundist meiri
þörf á því að þau séu í félagslegum
samskiptum,“ segir Kolbrún Ada
Gunnarsdóttir, starfandi skólastjóri
við skólann.
„Við sáum að síminn var farinn að
éta upp þeirra tíma og þeim þótti
erfitt að leggja hann frá sér þegar
þau komu í tíma,“ segir hún. „Þau
eru öll með Chromebook-tölvur í
skólanum, þannig að þau þurfa ekki
að nota símann í námið.“
Þrátt fyrir þessa tilhögun er ekki
gerð athugasemd ef nemandi er með
símann meðferðis, svo lengi sem er
slökkt á honum og hann geymdur
í tösku.
Aðspurð hvernig nemendur taki
í þessar breytingar, svarar Kol-
brún Ada: „Það var alveg misjafnt.
Sumum fannst við vera að eyði-
leggja líf þeirra. Aðrir voru bara
spenntir og voru alveg til í að gera
eitthvað annað en að vera í sím-
anum,“ segir hún. „Sögðu bara: Já,
ég finn það að ég ræð ekki við mig.
Ef það er dauður tími, þá er ég búinn
að grípa símann án þess að hugsa
um það.“ Þannig hafi sumir nem-
endur verið tilbúnari en aðrir. „Það
voru ekkert allir kátir en þau voru til
í að prófa þetta.“
Að sögn Kolbrúnar Ödu hefur
tilraunin gefist vel. „Við sáum rosa-
legan mun í frímínútum, það er verið
að spila og gera hluti sem var ekkert
verið að gera,“ segir hún. „Drífa sig
út í fótbolta. Það er meiri kliður og
meira um að vera. Samtöl og meira
í gangi,“ segir Kolbrún Ada og bætir
við að kennarar og starfsfólk skólans
sjái mikinn mun. En á móti komi að
starfsfólk hafi útvegað spil og afþrey-
ingu fyrir nemendurna.
Aðspurð hvort kennarar sitji við
sama borð í símabanninu segir
Kolbrún Ada svo vera. „Það er mjög
mikilvægt að fólk sé ekki með
símann í vinnunni og á vinnutíma.
Kennarar eru ekki með símana með
sér þegar þeir eru að kenna eða
annað. Fyrir þá gildir það sama,“
segir hún. ■
Skólastjóri Borgarhólsskóla segir
símabann nemenda hafa gefist vel
Kolbrún Ada
Gunnars-
dóttir, starfandi
skólastjóri við
Borgarhólsskóla
á Húsavík
STÓLA
DAGAR
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
20%
afsláttur
af öllum
stólum
AVIGNON hægindastóll
með skammel
Fullt verð: 149.900 kr.
Nú 119.920 kr.
AUSTIN
rafdrifinn hægindastóll
Stillanlegur hægindastóll
með innbyggðum skammel.
Koníaksbrúnt, svart, eða
dökkgrátt PVC leður.
90 x 98 cm.
Fullt verð: 99.900 kr.
Nú 79.920 kr.
LICATA stóll
Fallegur stóll í gráu,
koníakslituðu eða
stone áklæði.
84 x 94 x 82 cm.
Fullt verð: 259.900 kr.
Nú 207.920 kr.
MIAMI rafdrifinn lyftistóll
Stillanlegur hægindastóll með tveimur
öflugum mótorum. Leður á slitflötum.
Hægt að halla til baka með skammel.
Aðstoðar þig á fætur. Svartur,
grár eða brúnn.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Wacken Open Air Metal
Battle hljómsveitakeppnin er
haldin á Íslandi í tíunda sinn.
Þar keppa sex þungarokks-
hljómsveitir um að komast á
Wacken Open Air keppnina í
Þýskalandi að spila fyrir mörg
þúsund manns, í þrjátíu sveita
úrslitum. Að sögn skipuleggj-
anda taka á sjöunda tug landa
þátt í keppninni.
ninarichter@frettabladid.is
„Uppsetningin hér heima er ekkert
ósvipuð þeirri keppni sem er úti.
Sveitin má spila í 20 mínútur. Fjöldi
laga skiptir ekki máli,“ segir skipu-
leggjandi Wacken Open Air Metal
Battle þungarokkskeppninnar,
Þorsteinn Kolbeinsson. „Svo eru
dómarar og dágóður slatti af þeim,
bæði innlendum sem erlendum,“
segir hann. „Ég er búinn að bjóða sjö
erlendum aðilum að koma. Kannski
verða þeir fleiri.“
Segir alla þekkja alla
Þorsteinn segir að sökum fámennis
sé mjög nauðsynlegt að fá utanað-
komandi eyru til að dæma keppn-
ina.
„Allir þekkja alla hérna heima,“
segir hann. Sveitin sem sigrar í
keppninni fær styrk frá ÚTÓN til
ferðarinnar til Þýskalands. „Síðan
þegar á Wacken er komið, tekur
keppnin tvo daga í tjaldinu, sem er
tíu þúsund manna tjald,“ segir hann.
Þorsteinn segir íslensku metal-
senuna fara stöðugt stækkandi.
„Fyrir tíu árum síðan vissi enginn í
útlöndum hvað íslenskur metall var,
nema kannski Sólstafir. Þeir hafa
svona hægt og rólega orðið stærri
og stærri og eru núna komnir í aðal-
númerageirann á mörgum þessum
festivölum,“ segir hann. „Menn hafa
sérstaklega hælt íslensku black-
metal senunni fyrir mikil gæði.“
Sérstaðan í íslensku þungarokki
En hefur íslenskt þungarokk ein-
hverja sérstöðu úti í hinum stóra
heimi metaltónlistar með allar sínar
undirgreinar?
„Mér finnst við oft vera svo-
lítið ómenguð af meginstraumum
þarna úti,“ svarar Þorsteinn. „Nú er
ég einn af dómurum í keppninni
úti, eins og margir aðrir af mínum
kollegum sem sjá um keppnirnar í
sínum löndum,“ segir hann.
„Sveitirnar sem eru að vinna
undankeppnirnar í sínum löndum
hljóma eins og afrit hver af ann-
arri,“ segir Þorsteinn, en bætir við
að hann vilji ekki tala niður aðrar
sveitir. „Kannski er það út af stríð-
um straumum af böndum sem fara
í gegnum þessi lönd. En margir hafa
lýst þessu íslenska fyrirbæri, sér-
staklega í gegnum black-metalinn.
Að þú fáir tilfinninguna að þú sért
á Íslandi í gegnum þessa tónlist.
Við erum ekki með sérstök íslensk
hljóðfæri, en menn heyra svona
aðra elementa,“ segir hann.
Skráning og frekari upplýsingar
eru á Facebook-síðu keppninnar. ■
Sálmurinn sunginn um
íslenska svartmálminn
Þorsteinn segir íslenskt þungarokk ómengað af meginstraumum.
60 Lífið 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ