Börn og menning - 2020, Qupperneq 9

Börn og menning - 2020, Qupperneq 9
9Hættulegar myndir Risturnar urðu strax mjög umdeildar og taldar ógn við konungsveldið sem reyndi að stöðva útbreiðslu þessara prentmynda. Þegar framboð af frönskum teikningum minnkaði myndaðist pláss fyrir breskar teikningar, svartur markaður varð til sem dreifði bæði frönskum og breskum ádeilumyndum. Árið 1789 var sett á laggirnar ritskoðun á ádeilu. Þegar Napóleon komst loks til valda hélt ritskoðunin áfram, nema í þetta skipti var skotmarkið myndir sem lyftu konungsættinni upp og gagnrýndu byltinguna. Napóleon var og er einn umdeildasti maður í vestrænni sögu og varð skjótt eitt vinsælasta viðfangsefni skopmynda þess tíma, og er það jafnvel enn í dag. Dómsmálaráðherra Frakklands árið 1830, Jean-Charles Persil, sagði eitt sinn: „Ef höfundur lætur sér nægja að birta einungis leikrit sitt á prenti, látið hann þá í friði. Ef teiknari færir hugmyndir sínar í orð, leyfið honum þá að birta orðin á prenti og hindrið það ekki; þá höfðar hann einungis til vitsmunanna.“ Um miðbik nítjándu aldar fór menntunarstuðull Evrópubúa vaxandi og lestrarkunnátta þar með. Með pólitískum ádeilumyndum fylgdu nú orð sem sífellt fleiri gátu lesið. Það er ekki að furða að nítjánda öldin varð öld byltingarinnar og stjórnmálaumróts í Evrópu! Myndasögur á nýrri öld Myndasögur tóku enn á sig nýja mynd við upphaf tutt- ugustu aldarinnar þegar þær urðu nauðsynleg viðbót við dagblöð í Bandaríkjunum. Myndasagan Hogan’s Alley sagði frá hinum alræmda gula krakka (The Yellow Kid) eftir Richard F. Outcault. Myndasagan birtist fyrst í dagblaðinu The New York World. Sá guli var ódæll götustrákur og voru myndasögurnar skopleg ádeila á samfélagið í borginni. Sögurnar höfðuðu til innflytj- enda í New York, vöktu mikla athygli og urðu gífurlega vinsælar. Þessi grófa sýn Outcault vakti líka gagnrýni, guli náttkjóllinn sem guli pilturinn klæddist var talinn ósið- legur að mati margra lesenda og sögurnar voru sagðar Gamall íslenskur refill sem lýsir sögu kristni. The Plumb-pudding in danger eftir James Gillray (1805). Napóleon og forsætisráðherra Bretlands, William Pitt, skipta heiminum á milli sín. Kirkjan kærði hinn víðfræga breska teiknara Gillray fyrir guðlast, en kæran var síðar felld niður vegna vinsælda hans meðal breskra ráðamanna sem voru hlynntir skopmyndum hans af Napóleón og franska heimsveldinu.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.