Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
FRÉTTIR
Alvarleg staða í matvælaframleiðslu á Íslandi:
Sérstakur stuðningur upp á 2,5 milljarða króna
– Heildarkostnaður nemur 0,07% af áætlaðri landsframleiðslu
Spretthópur matvælaráðherra
skilaði af sér skýrslu þann
14. júní sl. sem inniheldur til-
lögur til sérstaks stuðnings til
landbúnaðar upp á tæpa 2,5
milljarða króna til að mæta
gífurlegum kostnaðarauka í mat-
vælaframleiðslu.
Samkvæmt skýrslunni hækkar
rekstrarkostnaður landbúnaðarins
árið 2022 um 8.900 milljónir vegna
hækkana á áburði, kjarnfóðri, olíu
og rúlluplasti. „Þar af hækkar
áburður um 3.000 milljónir, fóður
um 4.500 milljónir og olía og plast
um 1.400 milljónir. Nú þegar hefur
verið komið til móts við hækkun
á áburðarkostnaði sem nemur 650
milljónum. Áætlað er jafnframt
að hækkanir á afurðaverði, sem
þegar eru komnar fram, muni skila
um 3.600 milljónum í auknum
tekjum á þessu ári. Eftir stendur
kostnaðarauki upp á 4.650 milljónir.
Þar að auki er hér ekki horft til
þess að flestir aðrir kostnaðarliðir
hækka verulega milli ára.“
Heildarkostnaður við þær að-
gerðir sem Spretthópurinn leggur
til er 2.461 milljón króna en það er
0,07% af áætlaðri landsframleiðslu í
ár. Tillagan tónar við þann stuðning
sem yfirvöld í Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi hafa boðað í sínum
sértæku aðgerðum en umfangið
á árinu 2022 samsvarar frá 0,06–
0,08% af landsframleiðslu landanna.
Tillögur til aðgerða á
yfirstandandi ári
Tillögur til aðgerða á þessu
ári eru í sex liðum og fela í
sér að greitt verði 65% álag á
jarðræktarstyrki og landgreiðslur,
50% álag á gæðastýringargreiðslur
í sauðfjárrækt, 75% álag á
nautakjötsframleiðslu, 20% álag á
holdakýr, 12% álag á mjólkurkýr
og 30% álag á framlög til geit-
fjárræktar. Þá verði greitt 25%
álag á beingreiðslur C til garðyrkju
og 45% álag á jarðræktarstyrki til
útiræktaðs grænmetis ásamt því að
45% álag verði greitt á framlag til
aðlögunar að lífrænni framleiðslu.
Þá verði varið 450 milljónum
króna til að mæta að hluta hækkun
fóðurverðs hjá svína-, alifugla- og
eggjaframleiðendum.
Einnig leggur hópurinn til að
stjórnvöld komi á fót vakthópi
um fæðuöryggi með aðild
lykilráðuneyta og stofnana ásamt
helstu hagaðilum, svo sem fulltrúum
bænda, neytenda, atvinnulífsins,
launamanna o.s.frv. Stjórnvöld
eigi að tryggja að fjárheimildir
verði til staðar ef grípa verður í
samstarfi við innflytjendur áburðar
og fóðurs til sérstakra ráðstafana
til að tryggja stöðu landsins hvað
varðar áburðar- og fóðurstöðu út
þetta ár og á hinu næsta.
Það er mat hópsins að mikil
þörf sé fyrir endurskipulagningu og
hagræðingu í slátrun og kjötvinnslu
og eru í því fólgnir umtalsverðir
hagsmunir bæði neytenda og
bænda. Hópurinn leggur því til
að veitt verði tímabundin heimild
í lögum, t.d. til fjögurra ára, fyrir
sláturleyfishafa og frumvinnslu
afurðastöðva í kjötvinnslu til
samstarfs um sameiningu eininga,
samninga sín í millum og verka-
skiptingu. „Samtökum fyrirtækja
í þessum geira verði gert að
skila til stjórnvalda fyrir haustið
áætlun um hvernig þau hyggist
nýta slíkar samstarfs- og hag-
ræðingar heimildir og áætlaðan
langtímaávinning neytenda og
bænda,“ segir í skýrslunni.
Tillögur til lengri tíma
Auk tillagna til aðgerða á yfir-
standandi ári leggur hópurinn áherslu
á átta atriði sem huga þurfi að til
lengri tíma. Þar er meðal annars lagt
til að gerðar verði reglulegar úttektir
í því skyni að tryggja að nægar
birgðir séu til í landinu og skilgreina
lágmarksbirgðir af matvælum og
aðföngum til matvælaframleiðslu.
Þá sé æskilegt að stjórnvöld,
í samstarfi við garðyrkjuna,
innleiði fullnægjandi hvata til
að skapa vaxtarumhverfi í græn-
metisframleiðslu því þar séu
augljósir möguleikar. Þá skuli settur
stóraukinn kraftur í að efla innlenda
kornrækt til manneldis, fóðrunar
og fóðurgerðar.
„Ríkið bjóði fram stuðning
til fjárfestinga í nauðsynlegum
innviðum svo sem til svæðisbundinna
söfnunar- og kornþurrkunarstöðva,
stuðli að því að einhvers konar
áhættudreifingar- eða tryggingakerfi
gegn uppskerubresti komist á fót og
tryggi nægan stuðning við ræktun
á hvern hektara til þess að fleiri
sjái sér fært að hefja kornrækt og
eigi möguleika á markaðsfærslu
framleiðslunnar“, segir í skýrslunni.
Markvisst verði unnið að
því að gera landið minna háð
innfluttum áburði, með því að
greiða fyrir áformum um innlenda
áburðarframleiðslu sem og að
framleiðsluaðferðir sem notast ekki
við tilbúinn áburð, s.s. lífræn ræktun,
njóti ríkulegs stuðnings.
Fjárfesta þurfi í grunnrannsóknum
og hagnýtum rannsóknum í jarðrækt.
Þá þurfi að samþætta aðgerðir
á sviði loftslagsmála og í þágu
fæðuöryggis með markvissum
hætti þannig að unnið sé að báðum
markmiðum samhliða. Einnig er snert
á skipulagsmálum. „Möguleikar til
matvælaframleiðslu og mikilvægi
matvælavinnslu þurfa að hafa forgang
þegar línur eru lagðar um landnýtingu
og staðarval fyrir atvinnustarfsemi.“
Loks er lagt til að unnin verði
fæðuöryggisáætlun fyrir Ísland. /ghp
Í skýrslunni má sjá verðþróun landbúnaðarvara á neytendamarkaði sl.
ár. Það endurspeglar hins vegar ekki misjafna hækkun rekstrarkostnaðar
einstakra greina. Verð eggja hefur hækkað mest en verð á mjólk og fuglakjöti
hefur einnig hækkað talsvert meira en sem nemur hækkun almenns
matvöruverðs, sem var 6,2% hér á landi. Verð lamba- og svínakjöts hækkaði
í samræmi við almennt verðlag síðastliðna tólf mánuði en nautakjöt litlu
minna. Grænmeti hefur nær ekkert hækkað í verði á tímabilinu.
Rekstrarkostnaður við framleiðslu landbúnaðarvara árið 2022 hækkar um 8,9 milljarða kr. Til að bregðast við þessu leggur Spretthópur til að ríkið veiti
2,5 milljarða í sérstakan stuðning. Áætlað er að hækkanir á afurðaverði muni skila 3,6 milljörðum í auknar tekjur til landbúnaðarframleiðslu. Eftir standa
rúmir 2 milljarðar af óbrúuðum vanda, sem bændur, afurðafyrirtæki, verslunin og neytendur þurfa að horfast í augu við. Mynd / Odd Stefán
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000 kr.
25%
afsláttur
BREKKA 34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000 kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000 kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIG PLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
„Viðnámsþróttur þjóða byggir á öflugri innlendri matvælaframleiðslu“
Stjórn Bændasamtakanna telur
skýrslu og tillögur Spretthóps
mikilvægan áfanga. Með
þeim sé ríkisstjórn að leggja
áherslu á mikilvægi innlendrar
matvælaframleiðslu.
„Hópnum var gert að skoða
verð á helstu aðföngum sem
hafa hækkað gríðarlega í kjölfar
innrásar Rússa í Úkraínu en
litlar líkur eru á að þær hækkanir
gangi til baka á næstu mánuðum,
eða jafnvel misserum, með
tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi
og matvælaverð til neytenda.
Stjórn Bændasamtaka Íslands
telur þetta vera mikilvægan
áfanga og að með þessum að-
gerðum sé ríkisstjórnin að leggja
áherslu á mikilvægi innlendrar
matvælaframleiðslu, að viðhalda
framleiðslugetu landbúnaðarins
og draga úr þörf á verðhækkun
landbúnaðarafurða til neytenda.
Á þessum viðsjárverðu tímum
höfum við verið rækilega minnt
á mikilvægi og viðkvæmni
fæðuöryggis í heiminum.
Viðnámsþróttur þjóða byggir
á öflugri innlendri matvæla-
framleiðslu. Hana þurfum við að
vernda og efla.
Verkefni Bændasamtaka Íslands
er ekki nærri því lokið þar sem
margar búgreinar komu veikar
inn í þessar verðbreytingar og við
þurfum að halda áfram að vinna að
lausnum fyrir þær. Þess vegna þurfi
einnig að horfa til þeirra tillagna
sem snúa að starfsskilyrðum
landbúnaðarins til framtíðar og
má þar m.a. nefna samræmingu
og sameiningu afurðastöðva um
verkefni“, segir í tilkynningu frá
stjórn Bændasamtakanna.