Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
LÍF&STARF
Mest af þeim dúni sem safnað er
og unninn hér á landi er flutt út.
Árið 2021 voru alls flutt út 3.839
kíló af dúni fyrir 637.931.570
krónur, eða að meðaltali 166.171
krónur fyrir kílóið.
Verð á dúni er sveiflukennt.
Árið 2013 voru útflutningstekjur af
honum tæpar 600 milljónir króna og
salan góð næstu ár þar á eftir en síðan
dróst salan saman og verðið lækkaði.
Eftirspurn jókst aftur á síðasta ári og
verð hefur verið að hækka og horfur
á sölu góðar árið 2022, samkvæmt
heimildum Bændablaðsins.
Samkvæmt upplýsingum á
vef Hagstofu Íslands voru flutt
út 1.166 kíló af hreinsuðum en
óþvegnum æðardúni árið 2021 fyrir
205.7440.26 krónur á fob-verði, eða
176.453 krónur að meðaltali kílóið.
Sama ár voru flutt út 2.673 kíló af
hreinsuðum og þvegnum dúni fyrir
432.187.542 krónur á fob-verði, eða
161.686 krónur að meðaltali kílóið.
Dúnninn er fluttur til margra
landa en Japan og Þýskaland
eru langstærstu kaupendurnir og
voru flutt um 6,4 tonn af dúni til
Þýskalands og tæp 1,4 tonn til
Japans árið 2021. /VH
Æðarbændur!
Vantar æðardún til sölu
Höfum aðgang að góðum og
viðurkenndum hreinsunaraðilum.
Stórhöfða 17, 110 Reykjavík
861 6264 elias@egheild.is egheild.is
Útflutningur á æðardún:
Mest flutt út til Þýska-
lands og Japan
Dúnmikil æðarfuglshreiður gefa vel
af sér. Mynd / Helga María Jóhannsdóttir.
„Varp og tínsla hefur gengið vel
það sem af er og ég er ekki frá
því að fuglarnir séu ívið fleiri hjá
okkur en í fyrra,“ segir Helga
María Jóhannesdóttir, æðarbóndi
í Skáleyjum, og bætir við að tíðin
hafi líka verið þeim hagfelld.
„Við erum með varp í mörgum
eyjum og hólmum og hreiðrin sem
við heimsækjum yfir fjögur þúsund
og það tekur rúma viku að fara yfir
allt varpið.
Fuglarnir kjósa að vera nálægt sjó
og því eru oft fleiri hreiður á minni
hólmum en á stærri eyjum og því
fer talsverður tími í að fara á milli
varpstöðvanna.“
Helga María segir að þar sem
ekki sé búið að fara yfir allt varpið
nema einu sinni sé fullsnemmt að
segja hvert endanlegt magn af dúni
fáist í ár en hún telji að tekjan verði
svipuð og í meðalári.
„Það hefur verið þurrt í vor og í slíkri
tíð er hægara að tína og vinna dúninn
og hann verður líka bæði betri og
verðmætari.
Eftirspurn og verð fyrir dún
sveiflast talsvert á milli ára og það
kemur fyrir að við sitjum uppi með
tekjuna á milli ára.
Á síðasta ári seldum við til dæmis
tveggja ára birgðir sem við vorum
með í geymslu þannig að afkoman
af varpinu er ekki alltaf örugg.“
/VH
Skáleyjar:
Dúntekja svipuð og í meðalári
Pása í Fagurey. Hildigunnur Jóhannsdóttir skyggnir æðaregg.
Dúnn þurrkaður á grindum. Myndir / Helga María Jóhannsdóttir.
Ungar í hreiðri.
Gúmmítúttan Fagurey með hóp af fólki á leið í leitir.