Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
LÍF&STARF
Ábúendur Heiðmerkur í Laugarási
í Bláskógabyggð, Óli Finnsson,
Inga Sigríður Snorradóttir og
börnin tvö, fluttu frá höfuð borginni
árið 2021 og keyptu garðyrkjustöð
í fullum rekstri. Í dag rækta þau
grænmeti, salat og ýmiss konar
kryddjurtir.
Óli á að baki feril sem kvikmynda-
gerðarmaður en Inga var verslunar-
stjóri í skóbúð í Kringlunni.
„Áhugi minn á garðyrkju kviknaði
eftir að ég heyrði í útvarpinu að hægt
væri að rækta alls konar fjölbreyttar
og framandi plöntur í gróðurhúsum
hér á landi, allt frá tómötum og
gúrkum yfir í kaffiplöntur og banana.
Mér þótti þetta mjög áhugavert og
fór í framhaldinu í garðyrkjunám við
Garðyrkjuskólann.
Ingu kynntist ég á fyrsta árinu
mínu í Garðyrkjuskólanum, en hún
var ekki með eina stofuplöntu heima
hjá sér þegar við kynntumst.
Smátt og smátt smitaðist áhuginn
á ræktuninni yfir á hana, en hún
hafði aldrei séð fyrir sér að fara í
garðyrkju,“ segir Óli.
Heiðmörk
„Hugmyndin um að kaupa garðyrkju -
stöð kviknaði í miðju kófinu í janúar
2021. Sumarið áður höfðum við,
ásamt tengdafjölskyldunni, reynt
fyrir okkur í útirækt á blómkáli og
spergilkáli með góðum árangri.
Inga varð heit fyrir hugmyndinni
um að vinna við garðyrkju og þegar
við sáum Heiðmörk ti sölu þótti
okkur það tilvalið að bjóða í og
kaupa stöðina og reyna fyrir okkur
sem garðyrkjubændur.“
Stöðin er 2.500 fermetrar undir
gleri og þar er heilsárslýsing og því
möguleikar til að rækta nær hvað
sem er. Auk þess er þar pökkunar-
aðstaða þar sem uppskerunni er
pakkað í neytendapakkningar.
Við stöðina er lítið útisvæði sem
er um 2.000 fm að stærð og þar ætla
þau að rækta blómkál, spergilkál
og gulrætur fyrir heimasöluna á
Heiðmörk.
Eldpipar ný viðbót
Óli segir að þau rækti mest af salati
og steinselju. „Við ræktum líka
tómata og gúrkur og erum að prófa
okkur áfram með eldpipar, eða chili,
af ýmsum gerðum og viðbrögðin við
honum hafa verið góð.
Eldpipar og paprikur eru nýjast
viðbótin hjá okkur og við erum
að rækta nokkrar sortir, eins og
venjulegar paprikur og smáar og
sætar snakkpaprikur sem eru lausar
við kapsaisin-bragðefni, sem aftur á
móti einkenna eldpiparinn.
Sjálfur er ég spenntur fyrir eld-
piparnum og að rækta hann, enda
alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.
Í dag erum við að rækta yrki eins
og 'Jalapeno', 'Surtsey', 'Habanero'
og 'Carolina Reaper', sem er eitt af
sterkustu chiliyrkjum í heiminum.
Auk þeirra erum við að prófa
okkur áfram með önnur spennandi
yrki sem ekki eru komin í almenna
sölu en verða fáanleg hjá okkur.“
Bragðgott augnakonfekt
Paprikur og eldpipar eiga sér langa
ræktunarsögu og eru upprunnin frá
Mexíkó, Mið-Ameríku og norður-
hluta Suður-Ameríku.
Talið er að Indíánar í Mið- og
norður hluta Suður-Ameríku hafi
nýtt sér villtar paprikur og chili til
matar og lækninga frá því löngu fyrir
upphaf okkar tímatals.
Eftir að plönturnar bárust til
Evrópu voru paprikur aðallega
skrautjurtir í barrokkgörðum og á
heimilum aðalsmanna á Spáni, enda
er plantan alsett rauðum og gulum
aldinum, sannkallað augnakonfekt.
Styrkleiki eldpipars
Eins og áhugafólk um sterkt chili
veit mælist venjuleg búðarpaprika 0
á Scoville-skala. Hreinir kapsaisin-
óíðar mælast 16 milljón SHU og
er styrkur kapsaisin-óíða mestur í
himnunni sem umlykur fræið.
Styrkleiki yrkja er svo mis-
munandi, til dæmis mælist chili
sem kallast 'El-Paso' með 500 til
700 SHU, 'Jalapeno' 2.500 til 8.000,
'Tunga Satans' 125.000 til 325.000
og 'Trinidad sporðdreki' rúmlega 1,4
milljón SHU.
Eftir það fer smátt og smátt að
hitna í kolunum þegar kemur að 'Pot
Duoglah', þá mælist það aldin 1,85
milljón SHU.
Sterkasta chili í dag, 'Carolina
Reaper', mælist 2,2 milljón SHU og
getur líklega valdið sjálfsíkveikju
við réttar aðstæður, enda ætti
fólk alltaf að handleika hann
með hönskum.
Að sögn Óla er yrkið 'Surtsey' gult
á litinn og líkist 'Cayanne' pipar en
er mildari á bragðið.
/VH
Laugarás í Bláskógabyggð:
Eldpipar í Heiðmörk
Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson, garðyrkjubændur að Heiðmörk í Bláskógabyggð. Þau rækta mest af
salati og steinselju auk tómata og gúrku en nýjasta viðbótin hjá þeim er paprikur og eldpipar. Myndir / Óli Finnsson.
Capsicum chinense 'Habanero' er bragðgóður en sterkur eldpipar.
Capsicum chinense 'Carolina Reaper' er sagður sterkasti eldpipar í heimi
samkvæmt heimsmetabók Guinness.
Capsicum annuum 'Surtsey' er millisterkur eldpipar sem hentar vel í matreiðslu.
Capsicum annuum 'Jalapeno' er bæði hægt að borða grænan og rauðan.
Rauður jalapeno er sterkari en grænn.