Bændablaðið - 23.06.2022, Page 26

Bændablaðið - 23.06.2022, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 LÍF&STARF Ábúendur Heiðmerkur í Laugarási í Bláskógabyggð, Óli Finnsson, Inga Sigríður Snorradóttir og börnin tvö, fluttu frá höfuð borginni árið 2021 og keyptu garðyrkjustöð í fullum rekstri. Í dag rækta þau grænmeti, salat og ýmiss konar kryddjurtir. Óli á að baki feril sem kvikmynda- gerðarmaður en Inga var verslunar- stjóri í skóbúð í Kringlunni. „Áhugi minn á garðyrkju kviknaði eftir að ég heyrði í útvarpinu að hægt væri að rækta alls konar fjölbreyttar og framandi plöntur í gróðurhúsum hér á landi, allt frá tómötum og gúrkum yfir í kaffiplöntur og banana. Mér þótti þetta mjög áhugavert og fór í framhaldinu í garðyrkjunám við Garðyrkjuskólann. Ingu kynntist ég á fyrsta árinu mínu í Garðyrkjuskólanum, en hún var ekki með eina stofuplöntu heima hjá sér þegar við kynntumst. Smátt og smátt smitaðist áhuginn á ræktuninni yfir á hana, en hún hafði aldrei séð fyrir sér að fara í garðyrkju,“ segir Óli. Heiðmörk „Hugmyndin um að kaupa garðyrkju - stöð kviknaði í miðju kófinu í janúar 2021. Sumarið áður höfðum við, ásamt tengdafjölskyldunni, reynt fyrir okkur í útirækt á blómkáli og spergilkáli með góðum árangri. Inga varð heit fyrir hugmyndinni um að vinna við garðyrkju og þegar við sáum Heiðmörk ti sölu þótti okkur það tilvalið að bjóða í og kaupa stöðina og reyna fyrir okkur sem garðyrkjubændur.“ Stöðin er 2.500 fermetrar undir gleri og þar er heilsárslýsing og því möguleikar til að rækta nær hvað sem er. Auk þess er þar pökkunar- aðstaða þar sem uppskerunni er pakkað í neytendapakkningar. Við stöðina er lítið útisvæði sem er um 2.000 fm að stærð og þar ætla þau að rækta blómkál, spergilkál og gulrætur fyrir heimasöluna á Heiðmörk. Eldpipar ný viðbót Óli segir að þau rækti mest af salati og steinselju. „Við ræktum líka tómata og gúrkur og erum að prófa okkur áfram með eldpipar, eða chili, af ýmsum gerðum og viðbrögðin við honum hafa verið góð. Eldpipar og paprikur eru nýjast viðbótin hjá okkur og við erum að rækta nokkrar sortir, eins og venjulegar paprikur og smáar og sætar snakkpaprikur sem eru lausar við kapsaisin-bragðefni, sem aftur á móti einkenna eldpiparinn. Sjálfur er ég spenntur fyrir eld- piparnum og að rækta hann, enda alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Í dag erum við að rækta yrki eins og 'Jalapeno', 'Surtsey', 'Habanero' og 'Carolina Reaper', sem er eitt af sterkustu chiliyrkjum í heiminum. Auk þeirra erum við að prófa okkur áfram með önnur spennandi yrki sem ekki eru komin í almenna sölu en verða fáanleg hjá okkur.“ Bragðgott augnakonfekt Paprikur og eldpipar eiga sér langa ræktunarsögu og eru upprunnin frá Mexíkó, Mið-Ameríku og norður- hluta Suður-Ameríku. Talið er að Indíánar í Mið- og norður hluta Suður-Ameríku hafi nýtt sér villtar paprikur og chili til matar og lækninga frá því löngu fyrir upphaf okkar tímatals. Eftir að plönturnar bárust til Evrópu voru paprikur aðallega skrautjurtir í barrokkgörðum og á heimilum aðalsmanna á Spáni, enda er plantan alsett rauðum og gulum aldinum, sannkallað augnakonfekt. Styrkleiki eldpipars Eins og áhugafólk um sterkt chili veit mælist venjuleg búðarpaprika 0 á Scoville-skala. Hreinir kapsaisin- óíðar mælast 16 milljón SHU og er styrkur kapsaisin-óíða mestur í himnunni sem umlykur fræið. Styrkleiki yrkja er svo mis- munandi, til dæmis mælist chili sem kallast 'El-Paso' með 500 til 700 SHU, 'Jalapeno' 2.500 til 8.000, 'Tunga Satans' 125.000 til 325.000 og 'Trinidad sporðdreki' rúmlega 1,4 milljón SHU. Eftir það fer smátt og smátt að hitna í kolunum þegar kemur að 'Pot Duoglah', þá mælist það aldin 1,85 milljón SHU. Sterkasta chili í dag, 'Carolina Reaper', mælist 2,2 milljón SHU og getur líklega valdið sjálfsíkveikju við réttar aðstæður, enda ætti fólk alltaf að handleika hann með hönskum. Að sögn Óla er yrkið 'Surtsey' gult á litinn og líkist 'Cayanne' pipar en er mildari á bragðið. /VH Laugarás í Bláskógabyggð: Eldpipar í Heiðmörk Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson, garðyrkjubændur að Heiðmörk í Bláskógabyggð. Þau rækta mest af salati og steinselju auk tómata og gúrku en nýjasta viðbótin hjá þeim er paprikur og eldpipar. Myndir / Óli Finnsson. Capsicum chinense 'Habanero' er bragðgóður en sterkur eldpipar. Capsicum chinense 'Carolina Reaper' er sagður sterkasti eldpipar í heimi samkvæmt heimsmetabók Guinness. Capsicum annuum 'Surtsey' er millisterkur eldpipar sem hentar vel í matreiðslu. Capsicum annuum 'Jalapeno' er bæði hægt að borða grænan og rauðan. Rauður jalapeno er sterkari en grænn.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.