Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
HROSS&HESTAMENNSKA
Minna en tvær vikur eru í
Landsmót, mótið sem hestamenn
hafa beðið óþreyjufullir eftir.
Úrtökur hafa farið fram víða
um land, ásamt íþróttamótum og
kynbótasýningum.
Í fyrsta sinn verður keppt í öllum
greinum íþróttakeppninnar ásamt
gæðingakeppni og kynbótahrossin
verða auðvitað á sínum stað. Sitt
sýnist hverjum um þá ákvörðun
að bæta við íþróttakeppninni en
fróðlegt verður að sjá hvernig
mótshöldurum mun ganga með
framkvæmd mótsins.
Mótið hefst á sunnudegi 3.
júlí á forkeppni í barnaflokki og
unglingaflokki en kynbótadómar
hefjast einnig á sunnudeginum.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyt
frá Skáney hefur vakið verðskuldaða
athygli í vor en þau koma efst inn á
mótið í barnaflokki með glæsilega
einkunn, 8,97. Næstar á eftir henni
eru þær Kristín Birta Daníelsdóttir
og Fríða Hildur Steinarsdóttir.
Efst inn á mót í unglingaflokki
er Hekla Rán Hannesdóttir á Grím
frá Skógskoti en Grím þekkja orðið
eflaust margir en hann hefur verið
að gera það gott í keppni undir stjórn
Hönnu Rúnar Ingibergsdóttur. Rétt á
eftir Heklu Rán eru þær Þórgunnur
Þórarinsdóttir og Elva Rún og
Guðný Dís Jónsdætur.
Keppni í ungmennaflokki hefst
á mánudeginum en efstur á
stöðulista þar er Benedikt Ólafsson
á Biskupi frá Ólafshaga. Það er
ekki þeirra fyrsta Landsmót saman
en þeir sigruðu unglingaflokkinn
á síðasta Landsmóti. Rétt á eftir
þeim Benedikt og Biskupi eru þau
Hákon Dan Ólafsson, Kristján Árni
Birgisson og Stefanía Sigfúsdóttir.
Kanónur í gæðingakeppninni
Goði frá Bjarnarhöfn er efstur á
stöðulista inn á Landsmót með 8,79
í einkunn en það er Daníel Jónsson
sem situr hann. Kjörið tækifæri
fyrir Daníel að sigra aftur A flokk
á Landsmóti en síðast vann hann
flokkinn á Hellu 1994 á Dalvari
frá Hrappsstöðum.
Það verður þó ekki auðvelt
verk fyrir Goða og Daníel en engir
smáhestar eru á stöðulistanum.
Fyrrum heimsmetshafinn Þráinn
frá Flagbjarnarholti er næstur með
8,77, knapi Þórarinn Eymundsson,
á eftir honum eru þeir jafnir Glúmur
frá Dallandi, knapi Sigurður
V. Matthíasson, og Leynir frá
Garðshorni á Þelamörk, knapi Eyrún
Ýr Pálsdóttir, með 8,74 í einkunn.
Það stefnir í mikla veislu í b
flokknum ef úrtökur vorsins og
gæðingamót gefa eitthvað til kynna.
Ljósvaki frá Valstrýtu kemur efstur
á stöðulista inn á mót, knapi Árni
Björn Pálsson, en Ljósvaki og Safír
frá Mosfellsbæ fóru báðir yfir 9,00
í einkunn í úrslitum á gæðingamóti
Fáks. Knapi á Safír er Sigurður
Vignir Matthíasson.
Þeir tveir þykja sigurstranglegir
en ekki má gleyma sigurvegara
b flokksins á fjórðungsmótinu
síðastliðið sumar, Adrían frá
Garðshorni á Þelamörk, sem er
þriðji á stöðulistanum, jafn Ísaki
frá Þjórsárbakka, sem er að stíga
sín fyrstu skref í greininni. Knapi
á Adrían var Daníel Jónsson og á
Ísaki Teitur Árnason.
Margir aðrir gríðarsterkir hestar
eru á báðum þessum stöðulistum og
hér aðeins taldir upp þrír efstu en
eitt er víst að þetta stefnir í alvöru
gæðingaveislu á Rangárbökkum í
byrjun júlí.
Heimsmetin féllu á vorsýningum
Það má með sanni segja að
kynbótaárið 2022 hafi byrjað
með látum en þrjú heimsmet hafa
verið felld, hæsta aðaleinkunn
kynbótahrossa frá upphafi, hæsta
aðaleinkunn sem klárhryssa hefur
hlotið og hæsta hross á hæð á
herðakamb.
Alls 853 hross voru sýnd á
ellefu vorsýningum. Sýnt var
á Gaddstaðaflötum á Hellu (4
sýningar), í Spretti í Kópavogi
(1), Sörlastöðum í Hafnarfirði (2),
Brávöllum Selfossi (1) og Hólum í
Hjaltadal (3) en stærstu sýningarnar
voru á Hellu og í Hafnarfirði.
Eins og áður kom fram voru
þrjú heimsmet felld en Viðar frá
Skör felldi eitt þeirra þegar Helga
Una Björnsdóttir sýndi hann í 9,04
í aðaleinkunn og varð hann hæst
dæmda íslenski hrossið frá upphafi.
Hann hlaut fyrir sköpulag 8,89 og
fyrir hæfileika 9,12. Viðar er átta
vetra undan Hrannari frá Flugumýri
II og Vár frá Auðsholtshjáleigu
sem er undan Spuna frá Miðsitju
og Vordísi frá Auðsholtshjáleigu.
Það er Karl Áki Sigurðsson sem
er ræktandi hestsins og eigendur
eru þau Flemming Fast og Gitte
Fast Lambertsen en þau eru einnig
eigendur Kveiks frá Stangarlæk 1a
sem er hæst dæmdi klárhesturinn.
Annað metið settið Gandi frá
Rauðalæk þegar hann mældist
157 cm á hæð á herðakamb. Hann
sló sitt eigið met frá árinu áður en
þá mældist hann 156 cm á hæð á
herðakamb. Sýnandi Ganda var
Guðmundur F. Björgvinsson en
Gandi hlaut fyrir sköpulag 8,84
og fyrir hæfileika 8,65 sem gerir
8,72 í aðaleinkunn. Gandi er sjö
vetra og er sem stendur fjórði hæsti
stóðhesturinn í flokki 7 vetra og eldri
stóðhesta. Gandi er undan Konsert
frá Hofi og Garúnu frá Árbæ sem
er undan Aroni frá Strandarhöfði og
Glás frá Votmúla 1. Ræktandi og
eigandi Ganda er Elisabet Norderup
Michelson.
Lýdía frá Eystri-Hól sló heimsmet
Kötlu frá Ketilsstöðum þegar hún
hlaut 10,0 fyrir samstarfsvilja á
yfirliti í Hafnarfirði. Lýdía hlaut
þá í aðaleinkunn 8,67 og varð hæst
dæmda klárhryssan frá upphafi. Lýdía
var sýnd af Árna Birni Pálssyni en
hún hlaut fyrir sköpulag 8,81 og
fyrir hæfileika 8,59. Ræktandi Lýdíu
er Hestar ehf. og eigendur eru Anja
Egger-Meier og Kronshof GbR.
Lýdía er sjö vetra og undan Lexusi
frá Vatnsleysu og Oktavíu frá Feti sem
er undan Burkna frá Feti og Ófelíu frá
Gerðum. Lýdía er önnur í flokki sjö
vetra hryssna en efst er Álfamær frá
Prestsbæ sem er hæst dæmda hryssan
það sem af er ári.
Álfamær hlaut í aðaleinkunn 8,87
en fyrir sköpulag hlaut hún 8,57 og
fyrir hæfileika 9,02. Það var Árni
Björn Pálsson sem sýndi Álfameyju
en hann er jafnframt annar eigandi
hennar ásamt Önju Egger-Meier.
Ræktendur eru þau Inga og Ingar
Jensen en Álfamær er undan Spuna frá
Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ sem
Vorsýningar hrossa og úrtökur:
Loksins Landsmót
– Sterkir hestar í yngri flokkum og á stöðulistum fyrir gæðingakeppni
Lýdía frá Eystri-Hól er hæst dæmda klárhryssa heims með 8,67 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 10 fyrir samstarfsvilja. Sýnandi: Árni Björn Pálsson.
Myndir / Nicki Pfau
Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut 10 fyrir hægt tölt og tölt, knapi er
Árni Björn Pálsson.
Álfamær frá Prestsbæ er hæst dæmda hryssan það sem af er
ári með 8,87 í aðaleinkunn.
Viðar frá Skör á skeiði. Knapi er Helga Una Björnsdóttir.
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is