Bændablaðið - 23.06.2022, Side 50

Bændablaðið - 23.06.2022, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 HROSS&HESTAMENNSKA Minna en tvær vikur eru í Landsmót, mótið sem hestamenn hafa beðið óþreyjufullir eftir. Úrtökur hafa farið fram víða um land, ásamt íþróttamótum og kynbótasýningum. Í fyrsta sinn verður keppt í öllum greinum íþróttakeppninnar ásamt gæðingakeppni og kynbótahrossin verða auðvitað á sínum stað. Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun að bæta við íþróttakeppninni en fróðlegt verður að sjá hvernig mótshöldurum mun ganga með framkvæmd mótsins. Mótið hefst á sunnudegi 3. júlí á forkeppni í barnaflokki og unglingaflokki en kynbótadómar hefjast einnig á sunnudeginum. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyt frá Skáney hefur vakið verðskuldaða athygli í vor en þau koma efst inn á mótið í barnaflokki með glæsilega einkunn, 8,97. Næstar á eftir henni eru þær Kristín Birta Daníelsdóttir og Fríða Hildur Steinarsdóttir. Efst inn á mót í unglingaflokki er Hekla Rán Hannesdóttir á Grím frá Skógskoti en Grím þekkja orðið eflaust margir en hann hefur verið að gera það gott í keppni undir stjórn Hönnu Rúnar Ingibergsdóttur. Rétt á eftir Heklu Rán eru þær Þórgunnur Þórarinsdóttir og Elva Rún og Guðný Dís Jónsdætur. Keppni í ungmennaflokki hefst á mánudeginum en efstur á stöðulista þar er Benedikt Ólafsson á Biskupi frá Ólafshaga. Það er ekki þeirra fyrsta Landsmót saman en þeir sigruðu unglingaflokkinn á síðasta Landsmóti. Rétt á eftir þeim Benedikt og Biskupi eru þau Hákon Dan Ólafsson, Kristján Árni Birgisson og Stefanía Sigfúsdóttir. Kanónur í gæðingakeppninni Goði frá Bjarnarhöfn er efstur á stöðulista inn á Landsmót með 8,79 í einkunn en það er Daníel Jónsson sem situr hann. Kjörið tækifæri fyrir Daníel að sigra aftur A flokk á Landsmóti en síðast vann hann flokkinn á Hellu 1994 á Dalvari frá Hrappsstöðum. Það verður þó ekki auðvelt verk fyrir Goða og Daníel en engir smáhestar eru á stöðulistanum. Fyrrum heimsmetshafinn Þráinn frá Flagbjarnarholti er næstur með 8,77, knapi Þórarinn Eymundsson, á eftir honum eru þeir jafnir Glúmur frá Dallandi, knapi Sigurður V. Matthíasson, og Leynir frá Garðshorni á Þelamörk, knapi Eyrún Ýr Pálsdóttir, með 8,74 í einkunn. Það stefnir í mikla veislu í b flokknum ef úrtökur vorsins og gæðingamót gefa eitthvað til kynna. Ljósvaki frá Valstrýtu kemur efstur á stöðulista inn á mót, knapi Árni Björn Pálsson, en Ljósvaki og Safír frá Mosfellsbæ fóru báðir yfir 9,00 í einkunn í úrslitum á gæðingamóti Fáks. Knapi á Safír er Sigurður Vignir Matthíasson. Þeir tveir þykja sigurstranglegir en ekki má gleyma sigurvegara b flokksins á fjórðungsmótinu síðastliðið sumar, Adrían frá Garðshorni á Þelamörk, sem er þriðji á stöðulistanum, jafn Ísaki frá Þjórsárbakka, sem er að stíga sín fyrstu skref í greininni. Knapi á Adrían var Daníel Jónsson og á Ísaki Teitur Árnason. Margir aðrir gríðarsterkir hestar eru á báðum þessum stöðulistum og hér aðeins taldir upp þrír efstu en eitt er víst að þetta stefnir í alvöru gæðingaveislu á Rangárbökkum í byrjun júlí. Heimsmetin féllu á vorsýningum Það má með sanni segja að kynbótaárið 2022 hafi byrjað með látum en þrjú heimsmet hafa verið felld, hæsta aðaleinkunn kynbótahrossa frá upphafi, hæsta aðaleinkunn sem klárhryssa hefur hlotið og hæsta hross á hæð á herðakamb. Alls 853 hross voru sýnd á ellefu vorsýningum. Sýnt var á Gaddstaðaflötum á Hellu (4 sýningar), í Spretti í Kópavogi (1), Sörlastöðum í Hafnarfirði (2), Brávöllum Selfossi (1) og Hólum í Hjaltadal (3) en stærstu sýningarnar voru á Hellu og í Hafnarfirði. Eins og áður kom fram voru þrjú heimsmet felld en Viðar frá Skör felldi eitt þeirra þegar Helga Una Björnsdóttir sýndi hann í 9,04 í aðaleinkunn og varð hann hæst dæmda íslenski hrossið frá upphafi. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,89 og fyrir hæfileika 9,12. Viðar er átta vetra undan Hrannari frá Flugumýri II og Vár frá Auðsholtshjáleigu sem er undan Spuna frá Miðsitju og Vordísi frá Auðsholtshjáleigu. Það er Karl Áki Sigurðsson sem er ræktandi hestsins og eigendur eru þau Flemming Fast og Gitte Fast Lambertsen en þau eru einnig eigendur Kveiks frá Stangarlæk 1a sem er hæst dæmdi klárhesturinn. Annað metið settið Gandi frá Rauðalæk þegar hann mældist 157 cm á hæð á herðakamb. Hann sló sitt eigið met frá árinu áður en þá mældist hann 156 cm á hæð á herðakamb. Sýnandi Ganda var Guðmundur F. Björgvinsson en Gandi hlaut fyrir sköpulag 8,84 og fyrir hæfileika 8,65 sem gerir 8,72 í aðaleinkunn. Gandi er sjö vetra og er sem stendur fjórði hæsti stóðhesturinn í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta. Gandi er undan Konsert frá Hofi og Garúnu frá Árbæ sem er undan Aroni frá Strandarhöfði og Glás frá Votmúla 1. Ræktandi og eigandi Ganda er Elisabet Norderup Michelson. Lýdía frá Eystri-Hól sló heimsmet Kötlu frá Ketilsstöðum þegar hún hlaut 10,0 fyrir samstarfsvilja á yfirliti í Hafnarfirði. Lýdía hlaut þá í aðaleinkunn 8,67 og varð hæst dæmda klárhryssan frá upphafi. Lýdía var sýnd af Árna Birni Pálssyni en hún hlaut fyrir sköpulag 8,81 og fyrir hæfileika 8,59. Ræktandi Lýdíu er Hestar ehf. og eigendur eru Anja Egger-Meier og Kronshof GbR. Lýdía er sjö vetra og undan Lexusi frá Vatnsleysu og Oktavíu frá Feti sem er undan Burkna frá Feti og Ófelíu frá Gerðum. Lýdía er önnur í flokki sjö vetra hryssna en efst er Álfamær frá Prestsbæ sem er hæst dæmda hryssan það sem af er ári. Álfamær hlaut í aðaleinkunn 8,87 en fyrir sköpulag hlaut hún 8,57 og fyrir hæfileika 9,02. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi Álfameyju en hann er jafnframt annar eigandi hennar ásamt Önju Egger-Meier. Ræktendur eru þau Inga og Ingar Jensen en Álfamær er undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ sem Vorsýningar hrossa og úrtökur: Loksins Landsmót – Sterkir hestar í yngri flokkum og á stöðulistum fyrir gæðingakeppni Lýdía frá Eystri-Hól er hæst dæmda klárhryssa heims með 8,67 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 10 fyrir samstarfsvilja. Sýnandi: Árni Björn Pálsson. Myndir / Nicki Pfau Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut 10 fyrir hægt tölt og tölt, knapi er Árni Björn Pálsson. Álfamær frá Prestsbæ er hæst dæmda hryssan það sem af er ári með 8,87 í aðaleinkunn. Viðar frá Skör á skeiði. Knapi er Helga Una Björnsdóttir. Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.