Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Fyrir nokkrum árum síðan
bentu erlendir sérfræðingar á að
Íslendingar væru í öfundsverðri
stöðu að skipuleggja sitt laxeldi.
Aftur á móti voru þau vinnubrögð
viðhöfð hjá starfshópi sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra um
stefnumótun í fiskeldi á árinu 2017
og síðan við setningu laga um fiskeldi
árið 2019 að ekkert var tekið á heil-
brigðis- og skipulagsmálum, sem er
hvorki til hagsbóta fyrir Íslendinga
eða íslenska náttúru.
Dreifing á ISA veirunni
Undanfarið hefur komið fram í
fjölmiðlum að það hafi myndast
meinvirkt afbrigði af ISA veirunni
við stökkbreytingu og smitað eldislax
í sjókvíum hjá Fiskeldi Austfjarða í
Reyðarfirði og hafi síðan flust með
búnaði í Berufjörð.
Það sem virðist hafa gerst er
að sýktur eldislax var fluttur með
brunnbát frá Reyðarfirði yfir í
Berufjörð til slátrunar. Í sömu höfn
voru síðan bátar sem þjónustuðu
sjókvíar í Berufirði sem líklega hafa
borið smitið með sér í eldislax í
sjókvíum í firðinum.
Samgangur virðist því hafa verið
það mikill að veiran barst auðveldlega
á milli eldissvæða.
Þegar þessi grein er skrifuð er ekki
vitað til að smit hafi einnig borist í
eldislax í Fáskrúðsfirði, og þá þannig
að ISA veiran sé komin í öll eldissvæði
á Austfjörðum.
Lærum ekki af mistökum annarra
Hér hefur Fiskeldi Austfjarða líklega
orðið fyrir milljarða tjóni. Íslendingar
eru að gera sömu mistök og gerð voru í
Færeyjum og Síle þar sem átti sér stað
algjört hrun í framleiðslu á eldislaxi
vegna ISA veirunnar um miðjan fyrsta
áratug þessarar aldar.
Af hverju getum við ekkert lært
af öðrum við uppbyggingu laxeldis á
Íslandi? Svarið er eflaust að Fiskeldi
Austfjarða með Guðmund Gíslason
sem stjórnarformann og Kjartan
Ólafsson, stjórnarformann Arnarlax,
voru leiðandi aðilar í starfshópi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
um stefnumótun fyrir fiskeldi.
Ekkert var fjallað um heilbrigðis-
mál í stefnumótunarskýrslunni.
Það sem í raun gerðist var að um-
hverfismálunum var ýtt til hliðar til
að halda kostnaði í lágmarki og í
staðinn var öll áhersla lögð á að gera
það mögulegt að fara með fyrirtækin
á erlendan hlutabréfamarkað og
ná þannig miklum fjárhagslegum
ávinningi.
Skipulagsmál og heilbrigðismál
Undirritaður vann umhverfismat
fyrir íslenskt fyrirtæki og var
frummatsskýrslu skilað inn á árinu
2016. Þar voru tillögur gerðar um
mótvægisaðgerðir til að lágmarka
líkur á að smit bærist á milli svæða:
• Skilgreining svæða: Skilgreind
verði framleiðslusvæði þar sem
samgangur á búnaði og eldisfiski
verði ekki á milli svæða.
• Flutningur seiða: Flutningur
á seiðum verði framkvæmdur í
lokuðum brunnbátum.
• Flutningur sláturfisks:
Laxfiskar úr sjókvíum til
slátrunar verði ekki fluttir á milli
framleiðslusvæða.
Sérfræðingar frá Matvæla-
stofnun, Umhverfisstofnun og
Hafrannsóknastofnun lásu yfir
frummatsskýrslu en tóku ekki undir
þessar tillögur. Í áliti Skipulags-
stofnunar er ekkert minnst á
heilbrigðis- og skipulagsmál, þrátt
fyrir að lagt væri til það sem best
þekkist erlendis á þeim tíma.
Stofnanir heimsóttar
Í byrjun ársins 2017 var ljóst í
hvert stefndi, að það átti að ýta
umhverfismálunum til hliðar.
Undirritaður ásamt öðrum aðila ákvað
því að kynna tillögur íslensks félags
í umhverfismálum, m.a. er varðar
heilbrigðis- og skipulagsmál, fyrir
stjórnmálamönnum og sérfræðingum
stofnananna á árinu 2017:
• Hinn 18. apríl var Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra heimsótt.
• Hinn 24. apríl voru sérfræðingar
Umhverfisstofnunar heimsóttir.
• Hinn 4. maí voru sérfræðingar
umhverfis- og auðlindaráðuneytis
heimsóttir.
• Hinn 8. maí voru sérfræðingar
Matvælastofnunar, Fiskistofu og
Hafrannsóknastofnunar heimsóttir.
Jafnframt voru haldnar nokkrar
kynningar með stjórnmálamönnum
úr öllum flokkum á Alþingi.
Athugasemdir við
fiskeldisfrumvarpið
Í athugasemdum undirritaðs við
fiskeldisfrumvarpið á vorþingi 2019
er bent á að ,,heilbrigðismál eru
vart nefnd á nafn í frumvarpinu þó
svo að það sé stærsta viðfangsefni
sjókvíaeldis í nágrannalöndum.
Eins og staðan er í dag eru
ekki smitþröskuldar á milli
fiskeldissvæða og því engar skýrar
reglur um flutning á búnaði eða
lifandi fisk milli svæða sem getur
borið með sér sjúkdóma.
Í frumvarpinu er ekki minnst
á smitþröskulda heldur tekið
sérstaklega fram í greinargerð að
ekki sé ástæða til þess að setja slíka
þröskulda.“ Smitþröskuldum má
líkja við sauðfjárvarnargirðingar í
landbúnaði. Í athugasemdunum við
fiskeldisfrumvarpið var aftur ítrekað
mikilvægi mótvægisaðgerða, sem
kynntar voru fyrir sérfræðingum
stofnana og stjórnmálamönnum á
árinu 2017.
Engir smitþröskuldar
Í greinargerð með fiskeldis-
frumvarpinu var fjallað sérstaklega
um smitþröskulda en þar
kemur fram: ,,Við undirbúning
frumvarpsins komu fram
sjónarmið um að nauðsynlegt gæti
verið, til að fyrirbyggja smit, að
heimila uppsetningu svonefndra
smitþröskulda í fiskeldi milli
landsvæða. Með því væru t.d. reistar
takmarkanir við flutningi hrogna
eða seiða milli framleiðslusvæða.
Ekki þótti rétt að leggja þetta til
með frumvarpinu, að höfðu samráði
við Matvælastofnun, en til þess er
að líta að dýralæknir fisksjúkdóma
nýtur þegar ríkra heimilda til að
grípa til aðgerða, telja hann á því
þörf, auk þess að fiskeldi á Íslandi
hefur byggst upp landfræðilega með
þeim hætti að óraunhæft er að setja
fyrirmæli um þetta í löggjöfina.“
Af einhverjum ástæðum er ekki
fjallað um sláturfisk sem mesta
hætta er að smit berist með.
Við vinnu stefnumótunarhópsins
og síðan við skrif á frumvarpinu
voru mótvægisaðgerðir, hvort sem
um var að ræða heilbrigðis- og
skipulagsmál eða annað, ekki í
hávegum höfð.
Greinargerðir til alþingismanna
Hinn 20. maí 2019 var sendur
tölvupóstur til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis og allir
alþingismenn fengu afrit.
Þar var óskað eftir að gerð væri
opinber rannsókn vegna alvarlegra
annmarka á vinnubrögðum starfs-
hóps sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra um stefnumótun í fiskeldi.
Með tölvupóstinum fylgdu ítarlegar
greinargerðir:
• Stefnumótunarskýrslan og
vinnubrögðin
• Athugasemdir við Áhættumat
erfðablöndunar og tillögur að öðrum
lausnum
Í greinargerðunum var að finna
ítarlegri útskýringar á tillögum um
heilbrigðis- og skipulagsmál. Lög um
fiskeldi voru samþykkt frá Alþingi
20. júní 2019 og hefði e.t.v. ekkert
komið í veg fyrir það, enda mjög
öflugir íslenskir leppar sem stóðu
hagsmunavörsluna með erlenda
fjárfesta að bakhjarli.
Að lokum
Ef settar hefðu verið reglur eins og
best þekkjast erlendis hefði eflaust
verið hægt að koma í veg fyrir að
smit bærist frá Reyðarfirði yfir í
Berufjörð. Í framhaldi af tjóni vegna
ISA veirunnar á Austfjörðum skipaði
ráðherra starfshóp vegna smitvarna
og sjúkdóma í laxeldi.
Það er e.t.v. ákveðin kaldhæðni í
því að fulltrúar frá sömu stofnunum
verða skipaðir í starfshópinn, sem
tóku ekki undir tillögur sem kynntar
voru á árunum 2017–2019. Nú er
spurning hvort þessir aðilar leggi
í það að taka á skipulagsóreiðunni
og komi þannig í veg fyrir að það
sama endurtaki sig á Vestfjörðum?
Laxeldisfyrirtæki eru í meirihlutaeigu
Norðmanna og af hverju eru ekki
sömu reglur hér á landi og í Noregi?
Valdimar Ingi Gunnarsson
Sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a.
unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í
rúm þrjátíu ár.
LESENDARÝNI
Valdimar Ingi Gunnarsson.
Lög um fiskeldi og heilbrigðis-
og skipulagsmál
Sjókvíaeldisstöð á Vestfjörðum. Í grein sinni segir Valdimar Ingi Gunnarsson meðal annars: ,,Laxeldisfyrirtæki eru í meirihlutaeigu Norðmanna og af hverju
eru ekki sömu reglur hér á landi og í Noregi?“ Mynd / Aðsend
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta