Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Hlutverk stoðkerfis
landbúnaðarins
Á vordögum skipaði þá nýkjörin
stjórn Bændasamtaka Íslands
nýja stjórn fyrir Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins. Hin nýja stjórn
RML hefur nú komið tvisvar
saman og er enn á fullu að átta sig
á starfsemi og umfangi RML.
Eins og eflaust flestir vita, a.m.k.
þeir sem eru starfandi í landbúnaði, þá
er RML að fullu í eigu BÍ. Samkvæmt
samþykktum fyrir fyrirtækið er
hlutverk þess að veita ráðgjöf í
landbúnaði og stuðla að fræðslu
í greininni. Eðlilegt er því að ætla
fyrirtækinu að vinna þétt við hlið BÍ
að framförum í landbúnaði og aðstoða
bændur á sem flestum sviðum við
að bæta sinn búrekstur. Jafnframt er
eðlilegt að BÍ nýti þá miklu þekkingu
sem er innan fyrirtækisins við störf
sín við hagsmunagæslu hvers konar.
Auk framangreindra meginverkefna
er eðlilegt að gera kröfu til RML
að fyrirtækið sé leiðandi í að koma
ýmiss konar nýjungum í landbúnaði
á framfæri og styðji frumkvöðla á því
sviði á sinni vegferð.
Allt þetta og margt fleira hafa
verið verkefni RML frá stofnun
fyrirtækisins árið 2013. Ljóst er að
oft hefur verið í mörg horn að líta
hjá starfsmönnum og stjórnendum
samhliða því að byggja innviði
starfseminnar upp. Margar og
misumfangsmiklar áskoranir hafa
orðið á vegferðinni til dagsins í
dag. Mörg verkefnin hefur tekist
vel til við að leysa og önnur misvel.
Þannig hlýtur það alltaf verða þegar
um svo fjölbreytta starfsemi er að
ræða og hér um getur með nokkru
sanni held ég að segja megi að sú
staða sem landbúnaðurinn á Íslandi
stendur nú frammi fyrir sé að mörgu
leyti flóknari og meira krefjandi
en oft áður.
Nægir í því sambandi að nefna
að ýmsar afleiðingar af Covid eru
enn að gera greininni lífið leitt,
gríðarlegar hækkanir á flestum ef
ekki öllum aðföngum (orka, áburður,
fóður, varahlutir o.m.fl.) og stríð í
Evrópu sem margfaldar öll vandamál
sem fyrir eru. Ofan á allt koma svo
loftslagsmálin – stærsta áskorun
mannkynsins næstu áratugina/
framtíðarinnar.
Með því sem hér er sagt og
upp talið er ekki verið að gera
lítið úr verkefnum greinarinnar á
undangengnum árum og áratugum.
Núverandi staða held ég að sé flestum
ef ekki öllum bændum nokkuð
ljós – og raunar er talsverður hluti
almennings einnig vel meðvitaður
um a.m.k. hluta þeirra áskorana sem
fram undan eru hjá landbúnaðinum
og vonandi stjórnvöld líka.
Til að leysa þær áskoranir sem
við okkur blasa verður að virkja,
að fullu, og styrkja allt stoðkerfi
landbúnaðarins. Í þessu samhengi
er alveg ljóst að öflugt hlutlaust
ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda er ein
verðmætasta gullgæs greinarinnar.
Þessi staða er mjög krefjandi fyrir
RML en þó ekki nærri eins krefjandi
og hún er fyrir marga bændur. Besta
og líklega eina raunhæfa leiðin í
gegnum verkefnin er samstaða
bænda og traustur aðgangur að
góðri þekkingu og ráðgjöf. Þá
ráðgjöf vill og mun RML bjóða
upp á og veita þeim sem eftir henni
leita. Þar á ekki að skipta máli
hvaða ráðgjafar er leitað. Hvers
konar matvælaframleiðslu á sviði
landbúnaðar auk margvíslegrar
annarrar landnotkunar og rekstrar
getum við aðstoðað með.
Vert er einnig að leggja
áherslu á að RML getur og mun
sinna leiðbeiningum viðkomandi
loftslagsmálum þar sem þau tengjast
landbúnaði og landnotkun. Þarna
er líklega mikilvægasti hornsteinn
að framtíð landbúnaðar og búsetu
í dreifðum byggðum landsins.
Innan örfárra ára eru allar líkur á
því að hinn almenni bóndi verði
bæði matvælaframleiðandi og
kolefnisfangari/loftslagsbóndi.
Það er von stjórnar RML að
bændur nýti sem best þá þekkingu
og þann mannauð sem fyrirtækið
hefur upp á að bjóða. Jafnframt
óskum við eftir uppbyggilegum
ábendingum frá bændum, til
skemmri og lengri tíma, um hvað
megi betur fara varðandi þjónustu
og rekstur þessa mikilvæga hluta
stoðkerfis landbúnaðarins.
F.h. stjórnar RML,
Björn Halldórsson,
stjórnarformaður RML.
Björn Halldórsson.
Bændur eru hvattir til þess að skrá
veltu samkvæmt framtali síðasta árs
hið fyrsta inni á Bændatorginu.
Veltuskráning þessi er forsenda fyrir
félagsaðild í samtökin skv. samþykktum
á síðasta Búnaðarþingi.
Bændasamtök Íslands
starfa í þágu landbúnaðarins í heild !
Fulltrúar BÍ svara fyrirspurnum í síma 563-0300
á skrifstofutíma. Hægt er að senda skilaboð
í gegnum Bændatorgið og á gudrunbirna@bondi.is.
Það borgar sig að vera í Bændasamtökunum
Snúum bökum saman og stöndum vörð
um íslenskan landbúnað
→
→