Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
– VERKIN TALA
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
Vélfang ehf. selur og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað,
verktaka, golfvelli og sveitarfélög ásamt varahluta- og viðgerðarþjónustu.
Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini
Fer fremstur
Leiðandi afl í 190 ár
Styrkur - afköst- skilvirkni Nýsköpun - metnaður - framsækni
Fjölskyldufyrirtæki í fararbroddi
Framtíðarsýn í landbúnaði
Ostagerðarmaðurinn Savino
Izzi frá Puglia á Ítalíu leit
við í heimsókn á bæinn Holt í
Þistilfirði í liðinni viku.
Hann staldraði við í nokkra
daga og kenndi Hildi Stefánsdóttur,
sem þar býr, að búa til nokkra
af frægustu ostum Ítalíu, svo
sem Canestrato, ricotta, burata
og mozarella.
Á Holti reka Hildur og
maður hennar, Sigurður Þór
Guðmundsson, sauðfjárbú og
einnig gistiheimilið Grástein
guesthouse.
Savino kom að sögn Hildar
með Norrænu til Seyðisfjarðar,
en vinur hans, Stefano, hefur
starfað sem leiðsögumaður hér á
landi um 20 ára skeið. Hvatti hann
Savino til að sækja landið heim og
útbreiða þar boðskapinn um ítölsku
ostana. Skoða aðstæður í
landbúnaði hér á landi og
vöruframboð auk þess
að miðla Íslendingum
af sinni þekkingu.
Fjölskylda hans
rekur ostagerð í
heimalandinu og
hefur Savino
starfað við
fagið um
langt skeið.
„Hann hefur
ástríðu fyrir
ostagerðinni
og líka að
kynna hana
fyrir öllum
þeim sem
áhuga hafa,“
segir Hildur.
Hún rak augun
í auglýsingu á
Facebook um að
Savino yrði með
kynningu á Vopnafirði
og gerði sér lítið fyrir
og ók þangað til að
fylgjast með. Hún
varð mjög hrifin af
því sem fram kom á
kynningunni og bauð
Savino að koma heim
að Holti og kenna sér að
búa til ítalska osta.
Hann þáði boðið og stoppaði í
nokkra daga á bænum og fór yfir
helstu atriði sem hafa þarf á hreinu
við ostagerðina.
„Áður en hann kom sannfærði
hann okkur um að reka inn nokkrar
lambær, stía lömbunum frá
næturlangt og mjólka að morgni,“
segir Hildur, en einnig fengu þau
senda kúamjólk úr Eyjafirði til að
vinna með.
Hildur segir að Savino ætli að
dvelja hér á landi í nokkra mánuði,
fara um, hitta bændur og alla
þá sem áhuga hafa á að læra nýjar
aðferðir og nýta sem best allar
sínar afurðir.
„Við bjóðum upp á heimabakað
brauð með morgunmatnum og það
verður ekki ónýtt að geta líka lagt
ítalska osta á borðið. Við höfum
farið yfir þetta allt saman skref
fyrir skref og það hefur verið
mjög fróðlegt og
skemmtilegt,“
segir hún.
/MÞÞ
Savino Izzi frá Puglia á Ítalíu og Hildur
Stefánsdóttir í Holti í Þistilfirði önnum kafin
við ítölsku ostagerðina.
Einkanámskeið á Holti í Þistilfirði:
Ítalskir ostar á
morgunverðarborðið