Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Við stefnum á að gefa lesendum
blaðsins hugmyndir að einföldum
og bragðgóðum mat með íslensk
hráefni í öndvegi en erum líka
óhræddir við að sækja innblástur
í erlend eldhús.
Við munum fylgja árstíðunum af
fremsta megni og minna á hátíðir
og hefðir í bland við afslappaðan
heimilismat. Í júní er samt augljóst
hvar okkur ber fyrst niður.
Sumarið er tíminn fyrir allt
mögulegt grillað, hvort sem það er
heima eða í útilegum á landinu fagra.
Kjöt, fisk og gómsætt grænmeti má
grilla með ýmsum hætti og á grillinu
má líka baka brauð og jafnvel kökur.
Sumt hráefni er snöggeldað á háum
hita, þegar annað nýtur sín betur á
lægri hita og einnig er hægt að nota
grillið á líkan hátt og ofn. Þá er
notast við óbeinan hita, þ.e. að ekki
logi á grillinu beint undir hráefninu.
Margir spyrja um eldunartíma
á hráefnum á grilli, hvort eigi að
láta einhvern bita vera 2 mín. á
hvorri hlið eða kannski 3-4 mín.?
Í sannleika sagt þá er ekki til gott
svar við þessu vegna þess að það
er svo mörgu ósvarað um aðstæður
á nákvæmlega ykkar grilli, stað og
stund. Hitastig grillsins, útihitastig,
vindur, þykkt og þyngd hráefna.
Þess vegna er lykilatriði við
eldun á steikum að notast við
kjöthitamæli sem við mælumst
til að allir temji sér að nota. Með
því að fylgjast með hitastiginu
vinnst þrennt, að útkoman verði
í samræmi við væntingar og
grillarinn fái sitt verðskuldaða
hrós frá matargestunum. Í öðru
lagi er hreinn sparnaður í því að
nota kjöthitamæli, því það er
óskemmtilegt að fara illa með gott
og dýrt hráefni. Í þriðja lagi er
öryggi í því að tryggja að hráefnin
séu nægjanlega elduð, en það vilja
fæstir hálfhráan kjúkling svo dæmi
sé tekið.
Íslenskt grísakjöt, ferskt og gott
er í eldlínunni í okkar fyrsta pistli,
við veljum safaríkan grísahnakka
sem inniheldur næga fitu til að vera
afbragðs grillsteik. Best er að velja
þykkar sneiðar og marinera í 1-2
tíma fyrir eldun.
Grillaður grísahnakki með
rósmarín og chili
800 g grísahnakki
50 ml sólblómaolía
2 kvistar ferskt íslenskt
rósmarín, rifið af stilknum
½ tsk. þurrkaðar chiliflögur (má
nota duft)
Byrjið á að marinera kjötið í olíu
með rósmarín og þurrkuðum chili í
1-2 klst. á meðan þið lagið meðlæti
og sósu. Þerrið fyrir eldun, saltið
ríkulega og látið standa í nokkrar
mín. Grillið á meðalhita þar til
kjarnhiti nær 70°C.
Látið hvíla í 10-15 mín. áður en
steikin er skorin.
Bakaðir kartöflubátar
2-3 bökunarkartöflur
3 msk. sólblómaolía
Þvoið og þerrið kartöflur og skerið
í grófa báta og setjið í eldfast mót,
veltið upp úr olíu, saltið og eldið í
eldföstu móti á grillinu eða í ofni
í um það bil 30 mín., eða þar til
þær eru eldaðar í gegn. Piprið með
nýmulnum svörtum pipar.
Bakaður rauðlaukur
2 heilir rauðlaukar
Það er hreinasta svindl hvað þetta
er auðvelt og gott, við eldunina
verður laukurinn sætur og góður,
hýðið tryggir að allur safinn helst
í lauknum.
Setjið heila lauka í hýðinu á
grillið t.d. í bakka með kartöflunum
og eldið þar til laukurinn er mjúkur í
gegn. Skerið í tvennt og berið fram.
Grillaðir maískólfar
2-3 maískólfar
1 msk. sólblómaolía
30 g smjör
Maískólfa er stundum hægt að
fá ferska, þá með hýðinu, og
taka um 20 mín. í eldun á heitu
grilli. Algengara er að nota frosna
maískólfa, sem er tilvalið að taka
í tvennt, pensla með olíu og grilla
í 2-3 mín. og smyrja svo með ögn
af smjöri og saltaðir áður en þeir
eru bornir fram.
Heimalöguð BBQ sósa
2 msk. sólblómaolía
1 laukur saxaður fínt
3 hvítlauksgeirar, kramdir
500 ml tómatsósa
100 ml Worcestershire sósa
75 ml sítrónusafi
2 msk. púðursykur
1 msk. malt edik
(eða annað dökkt edik)
2 msk. Dijon sinnep
1 tsk. chili flögur
1 tsk. Tabasco sósa
1 tsk. þurrkað timían
Þið munið tæpast kaupa BBQ
sósu í búð eftir að hafa prófað
að gera ykkar eigin sósu, sem er
mjög auðvelt og geymist nánast
endalaust í kæli.
Of oft eru BBQ sósur alltof
sætar fyrir okkar smekk en því má
stjórna með því að leika sér með
magnið af sykri og ediki.
Mýkið lauk í olíu í potti á
meðalhita í 3-4 mín., bætið öllu
út í og sjóðið í 20 mínútur, hrærið
reglulega og passið að brenni
ekki. Maukið í blandara eða
með töfrasprota.
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Hjónin Ásthildur Skjaldardóttir
og Birgir Aðalsteinsson sitja fyrir
svörum en þau búa á bænum
Bakka á Kjalarnesi. Ásthildur og
Birgir tóku við búinu á Bakka af
ömmubræðrum hennar, en sama
ættin hefur setið hér síðan 1863.
Býli: Bakki
Staðsetning: Bakki er í Reykjavík.
Ábúendur: Ásthildur Skjaldardóttir
og Birgir Aðalsteinsson og erum við
orðin tvö í kotinu.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Afkomendur eru 6 dætur, 6 tengda-
börn og barnabörn 11+. Svo er það
tíkin Panda sem er í miklu uppáhaldi
og kötturinn Depla.
Stærð jarðar?
Jörðin er um 240 ha og nær á milli
fjalls og fjöru.
Gerð bús? Mjólkurframleiðsla.
Fjöldi búfjár og tegundir? Það eru
um 50 mjólkurkýr, 40 kvígur á öllum
aldri og svo Hjartagosi, eina nautið
undan Ými 13051 og Klemmu
Mikkadóttur. Einnig eru til 3 hross,
1 hani og 8 hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Allir dagar ársins byrja eins, þ.e.
farið í fjósið og svo taka við allavega
störf eftir árstíðum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er alltaf gaman þegar
vel gengur, en inn á milli koma upp
aðstæður sem geta reynt á.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Við sjáum það fyrir okkur að vera
hætt í mjólkurframleiðslu eftir fimm
árin enda nýbúin að ná löglegum
eftirlaunaaldri. En mjög líklega í
einhverju landbúnaðartengdu eins
og skógrækt.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Tækifærin eru endalaus í íslenskum
landbúnaði, það er bara spurning
hvernig búið verður að bændum og
hvernig þeim verði gert kleift að lifa
mannsæmandi lífi af sínu búi án þess
að þurfa að sækja endalaust vinnu
annars staðar.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ef ekki er til ostur þá er ekkert til!
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Slátur hjá öllum
kynslóðum ...
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það stendur upp
úr þegar kýrnar voru leystar af
básunum og fóru í lausagöngu og
mjólkaðar í mjaltabás. Þá var eins
og við værum komin í nýja vinnu.
Grillaður grísahnakki fyrir fjóra
Hafliði & Halldór
haflidi@icelandiclamb.is
Grillaður grísahnakki með grilluðum maís, heimalagaðri BBQ sósu, bökuðum rauðlauk og kartöflubátum.
Bakki