Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 35

Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 – VERKIN TALA Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri Vélfang ehf. selur og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað, verktaka, golfvelli og sveitarfélög ásamt varahluta- og viðgerðarþjónustu. Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini Fer fremstur Leiðandi afl í 190 ár Styrkur - afköst- skilvirkni Nýsköpun - metnaður - framsækni Fjölskyldufyrirtæki í fararbroddi Framtíðarsýn í landbúnaði Ostagerðarmaðurinn Savino Izzi frá Puglia á Ítalíu leit við í heimsókn á bæinn Holt í Þistilfirði í liðinni viku. Hann staldraði við í nokkra daga og kenndi Hildi Stefánsdóttur, sem þar býr, að búa til nokkra af frægustu ostum Ítalíu, svo sem Canestrato, ricotta, burata og mozarella. Á Holti reka Hildur og maður hennar, Sigurður Þór Guðmundsson, sauðfjárbú og einnig gistiheimilið Grástein guesthouse. Savino kom að sögn Hildar með Norrænu til Seyðisfjarðar, en vinur hans, Stefano, hefur starfað sem leiðsögumaður hér á landi um 20 ára skeið. Hvatti hann Savino til að sækja landið heim og útbreiða þar boðskapinn um ítölsku ostana. Skoða aðstæður í landbúnaði hér á landi og vöruframboð auk þess að miðla Íslendingum af sinni þekkingu. Fjölskylda hans rekur ostagerð í heimalandinu og hefur Savino starfað við fagið um langt skeið. „Hann hefur ástríðu fyrir ostagerðinni og líka að kynna hana fyrir öllum þeim sem áhuga hafa,“ segir Hildur. Hún rak augun í auglýsingu á Facebook um að Savino yrði með kynningu á Vopnafirði og gerði sér lítið fyrir og ók þangað til að fylgjast með. Hún varð mjög hrifin af því sem fram kom á kynningunni og bauð Savino að koma heim að Holti og kenna sér að búa til ítalska osta. Hann þáði boðið og stoppaði í nokkra daga á bænum og fór yfir helstu atriði sem hafa þarf á hreinu við ostagerðina. „Áður en hann kom sannfærði hann okkur um að reka inn nokkrar lambær, stía lömbunum frá næturlangt og mjólka að morgni,“ segir Hildur, en einnig fengu þau senda kúamjólk úr Eyjafirði til að vinna með. Hildur segir að Savino ætli að dvelja hér á landi í nokkra mánuði, fara um, hitta bændur og alla þá sem áhuga hafa á að læra nýjar aðferðir og nýta sem best allar sínar afurðir. „Við bjóðum upp á heimabakað brauð með morgunmatnum og það verður ekki ónýtt að geta líka lagt ítalska osta á borðið. Við höfum farið yfir þetta allt saman skref fyrir skref og það hefur verið mjög fróðlegt og skemmtilegt,“ segir hún. /MÞÞ Savino Izzi frá Puglia á Ítalíu og Hildur Stefánsdóttir í Holti í Þistilfirði önnum kafin við ítölsku ostagerðina. Einkanámskeið á Holti í Þistilfirði: Ítalskir ostar á morgunverðarborðið

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.