Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202222
Sjaldan eða aldrei hefur verið eins
mikil eftirspurn eftir lopa frá Ístex
úr íslenskri ull, enda jókst prjóna
áhugi landsmanna mikið í Covid.
Gunnar Þórarinsson, stjórnar
formaður Ístex og sauðfjárbóndi á
bænum Þóroddsstöðum í Hrútafirði,
segir að á 30 ára starfstíma Ístex hafi
aldrei verið framleitt og selt eins
mikið af handprjónabandi eins og
gert var á síðasta ári.
Aukningin í magni var um 150
tonn af handprjónabandi. Sú aukning
náðist með ýmsum aðgerðum, m.a.
lengdum vinnutíma starfsfólks, m.a.
á kvöldvöktum, breytingum á fram
leiðslulínum og fleiru. Söluaukning á
magni lopa innanlands var um 30% og
tekjur af sölu handprjónabands, inn
anlands og utan, jukust um tæp 48%
milli ára vegna meira framleiðslu
magns og hærra verðs,“ segir Gunnar
stoltur af starfsemi fyrirtækisins.
Sprenging í eftirspurn
Á sama tíma og Ístex hefur náð að
auka framleiðslu sína þá er eftir
spurnin eftir íslensku ullinni alltaf að
aukast og aukast og sums staðar varð
eiginlega sprenging í eftirspurninni.
„Við erum áfram að vinna að
því að auka framleiðslugetuna með
endurnýjun á tækjum og fjölgun á
starfsfólki. Þó er fyrirsjáanlegt að
næstu mánuði a.m.k. er eftirspurnin
meiri en framleiðslugetan. Enn þá er
til nóg af ull af fé í landinu, en ef fé
heldur áfram að fækka og eftirspurn
og framleiðslugeta eykst, þá gæti það
breyst innan fárra ára,“ bætir Gunnar
við.
Bændur fá of lítið
- Sauðfjárbændur hafa kvartað
undan því að verð á ull hefur lítið
sem ekkert hækkað á síðustu árum
og því eru þeir að fá allt of lítið fyrir
sína ull. Hvað segir Gunnar við því?
„Já, ástæður þess að verð hefur
lítið hækkað á betri flokkunum og
lækkað á lakari flokkunum stafar af
því að á árinu 2019 kom afturkipp
ur í ferðamannabransann sem gerði
það að verkum að eftirspurn eftir
iðnaðarbandi og teppum dróst mjög
saman og síðan kom Covid sem olli
því að nánast engin eftirspurn varð
eftir þeim vörum, auk þess sem ullar
verð á mörkuðum hrundi og í raun
var á tímabili ekki hægt að losna við
ull þó hún hefði verið gefin. Einnig
lentu fyrirtæki sem keyptu vörurnar
af Ístex í fjárhagsvandræðum sem
hafði áhrif á stöðu Ístex. Þrátt fyrir
þetta tókst að verja verðið á betri
flokkunum og greiða smávegis fyrir
flesta lakari flokkana.
Við verðákvörðun síðasta haust
tókst þó að hækka aðeins alla ullar
flokka og vonandi verður hægt að
bæta við það verð áður en ullin verð
ur greidd í vor,“ segir Gunnar.
Að lokum má geta þess að rekstur
Ístex gengur nú miklu betur en hann
gerði á árunum 2019 og 2020 en þá
varð því miður verulegt tap á rekstrin
um. Nýju framleiðsluvörurnar sem
Ístex hefur verið með í þróun undan
farin ár lofa mjög góðu og góðar líkur
á að þær skili góðum tekjum og þar
með möguleikum á hærra verði fyrir
ullina til bænda. /MHH
TÆKNI&VÍSINDI
FRÉTTIR
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT
Um sl. áramót fagnaði markaðs
stofan Íslenskt lambakjöt (e.
Icelandic Lamb) fimm ára
starfs afmæli. Starfinu er ætlað
að stuðla að auknu virði afurða
sauðfjárræktarinnar. Megnið af
starfi fyrstu fimm áranna hefur
snúist um ferðamannamarkað.
Starfsemin hefur gagnast
veitingageiranum og ferða
þjónustu og aukið sýnileika
lambakjöts verulega. Lamb er
uppáhalds íslenska afurðin á
diskum ferðamanna, í áherslum
markaðsstofunnar er sagan sögð
og hágæða hráefnið kynnt sem
sjálfsagður partur af íslenskri
matarupplifun. Samstarf við
veitingamenn og valdar sérverslanir
er lykilatriði í því að upplýsa
kröfuharða neytendur um íslenskt
lambakjöt þar sem merki og
markaðsefni í enskri og einnig
íslenskri útgáfu er í forgrunni.
Gallup hefur sl. fimm ár mælt
áhrif markaðsherferðarinnar og
neyslu hópsins á íslensku kjöti, fiski
og mjólkurvörum. Könnun í júlí
sl. sýndi stökk í neyslu hópsins á
flestum íslenskum háenda afurðum.
Lambið trónar sem fyrr á toppnum
með hæstu mælinguna frá upphafi,
þorskur, skyr og lax fylgdu fast á
eftir. Neysla ferðamanna hefur
samkvæmt þessu aukist um 15%
frá 2017. Fylgni í þekkingu á merki
Icelandic Lamb við neyslu hópsins
er skýr og er ljóst að markaðssetning
og samstarfsverkefni markaðs
stofunnar hafa náð góðum árangri.
Lykiltölur:
• 67,5% svarenda borðuðu
lambakjöt í heimsókninni.
• 76% svarenda sem þekktu
Icelandic Lamb merkið
borðuðu lambakjöt í heim
sókninni, en neysla hópsins
sem EKKI þekktu merkið var
20% lægri. M.ö.o., 20% fleiri
velja lamb þegar IL hefur
náð til þeirra með blöndu
af auglýsingabirtingum og
samstarfi við veitingahús.
• 84% þeirra sem þekkja merkið
sáu skjöld Icelandic Lamb á t.d.
veitingahúsi.
Lengi vel hafði fjöldi veitingamanna
töluverða minnimáttarkennd fyrir
því sem að utan kom, sást yfir
tækifærin sem blöstu við. Ekki
misskilja mig, erlend áhrif eru
líka jákvæð og af þeim má margt
læra, t.d. virðingu framleiðenda
og matvælavinnslu fyrir hráefnum
og hefðum sem tilheyra stað
og stund. En flestir skilja nú að
erlendir gestir sækja í staðbundið
hráefni og vilja heyra söguna að
baki. Spænskir tómatar á Flúðum,
hollenskur kálfur á Sauðárkróki og
sænsk síld á Fáskrúðsfirði felur
afar takmarkaða sögu í sér fyrir
viðskiptavini. Virðið felst í að halda
því sögu og menningu að gestum
og magna upp jákvæða upplifun
og virði þjónustunnar. Smæðina
má líka nýta sem styrkleika.
Nýtum meðbyr, leggjum af þá
minnimáttarkennd sem enn finnst,
og vinnum að því að auka virði
okkar íslensku afurða, lambakjöts
sem annarra, á öllum stigum
keðjunnar.
Hafliði Halldórsson
framkvæmdastjóri Icelandic
Lamb & verkefnastjóri hjá BÍ
Ferðamannapúls Gallup 2021, hlutfall svarenda sem borðuðu þessar íslensku matvörur í heimsókn sinni til Íslands.
2.658 svör með 97% svarhlutfall.
Hafliði Halldórsson.
0,0%
10,0%
20,0%
30,0%
40,0%
50,0%
60,0%
70,0%
67,5%
61,0% 60,0% 60,0%
53,0%
46,0% 44,0% 43,0%
23,0% 20,0%
11,0%
6,0% 6,0% 4,0%
Neysla ferðamanna 2021 á íslenskum
kjöt-, fisk- og mjólkurafurðum
Markaðsstofan Icelandic Lamb 5 ára
Gunnar segir að Ístex hafi tekið í notkun nýja dokkuvél í desember síðastliðinn en dokkunin var flöskuháls í
framleiðslunni. „Það eru allir meðvitaðir um stöðuna og stjórnendur og starfsfólk leggur sig fram um að leita leiða
til að auka framleiðsluna þannig að hægt verði að anna eftirspurn eftir lopanum, því frábæra náttúrulega efni sem
ullin af íslenska fénu er,“ segir Gunnar enn fremur. Mynd / Jóhanna Erla Pálmadóttir
Um 30% söluaukning á lopa frá Ístex á síðasta ári
Ull í vinnslu hjá Ístex í Mosfellsbæ. Mynd / HKr.
Gunnar segir að Ístex hafi tekið í notkun nýja dokkuvél í desember síðastliðinn
en dokkunin var flöskuháls í framleiðslunni. „Það eru allir meðvitaðir um
stöðuna og stjórnendur og starfsfólk leggur sig fram um að leita leiða til að
auka framleiðsluna þannig að hægt verði að anna eftirspurn eftir lopanum,
því frábæra náttúrulega efni sem ullin af íslenska fénu er,“ segir Gunnar
enn fremur. Mynd / Jóhanna Erla Pálmadóttir