Bændablaðið - 10.02.2022, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202226
LÍF&STARF
Það er alltaf gaman að koma
á bæinn Skarð í Landsveit því
þar búa kraftmikil hjón með
börnum sínum en fjölskyldan er
með risastórt fjárbú. Við erum að
tala um þau Guðlaugu Berglindi
Guðgeirsdóttur og Erlend
Ingvarssyni (alltaf kallaður Elli)
og börnin þeirra þrjú. Sumarliði
er 15 ára, Helga Fjóla er 12 ára og
Anna Sigríður er 9 ára.
Á bænum eru 1.100 fjár á
vetrarfóðrum, 14 hross, einn hundur
og einn köttur. Elli hefur verið
bóndi í Skarði frá 2003 en Guðlaug
tók svo þátt í búrekstrinum þegar
hún flutti að Skarði 2005. Hún
starfaði reyndar sem ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands fram
til 2006 en sneri sér þá alfarið að
barneignum og búrekstri í Skarði.
Elli rak ásamt ömmu sinni og frænku
félagsbú um kúa- og sauðfjárbúskap
í Skarði fram til 2018 er búunum var
skipt upp og hafa þau Guðlaug rekið
sauðfjárbúið frá 2018.
Á haustmánuðum fékk Guðlaug
styrkloforð frá Samtökum sunn-
lenskra sveitarfélaga (SASS)
varðandi vöruþróun og hönnun
á vörum úr íslenskri ullarvoð.
Markmið verkefnisins er að
framleiða íslenskar ullarvörur úr
íslenskri lambsullarvoð sem er
framleidd á Íslandi. Af því tilefni
og miklum áhuga hennar á íslensku
sauðkindinni svaraði hún nokkrum
spurningum blaðamanns.
Leiddist mikið í Reykjavík
„Íslenska sveitin og íslensk náttúra
höfðar sterkt til mín og vil ég hvergi
annars staðar búa en úti í sveit, var
t.d. einn vetur í Reykjavík í fram-
haldsskóla og hefur mér aldrei leiðst
eins mikið á ævinni og þann vetur.
Ég er alin upp í Austurhlíð í
Skaftártungu en þegar ég var 10 ára
gömul var féð heima skorið niður
vegna riðuveiki og aldrei tekið aftur
fé en breytt var yfir í kúabúskap á
jörðinni þannig að ég er meira alin
upp við kýr en sauðfé. Ég var send
á vorin eftir að við urðum fjárlaus
til að aðstoða við sauðburð hjá afa,
ömmu og Bjarna frænda mínum
í Hraunbæ í Álftaveri. Bjarni var
mikill hestamaður og kynntist ég
þar góðum hestum og var hann alltaf
tilbúinn til þess að taka mann með
á hestbak eða í hestaferðir og lána
manni hesta. Einnig aðstoðaði ég
systur mína og mág á Borgarfelli
við sauðburð og smalamennskur,“
segir Guðlaug.
Smalamennska og fjárrag
Guðlaug segist hafa mjög gaman af
ræktun sauðfjár þar sem ættliðabilið
sé svo stutt, það komi svo fljótt í ljós
hvort maður er að ná að rækta fram
þá eiginleika sem maður sækist eftir.
„Sauðfjárbúskapur er mjög
krefjandi og tímafrekur ef vel á
að standa að búskapnum. Sauð-
burðurinn á vorin er alltaf krefjandi
tími en jafnframt skemmti legur
tími þegar allt er að lifna. Minn
uppáhaldsárstími í sauðfjár-
ræktinni er haustið en þá er tími
smalamennska og fjárrags og í raun
uppskerutími en þá kemur í ljós
hvernig til hefur tekist við ræktun
fjárins,“ segir Guðlaug og bætir við.
„Við förum með 1/3 af okkar fé á
Landmannaafrétt í sumarbeit, förum
með féð um miðjan júlí og sækjum
það seinni hluta septembermánaðar.
Íslenska sauðkindin er mjög gáfuð,
hún er t.d. mjög góð að rata og
nýtir sömu beitarsvæðin þar sem
mæður þeirra gengu þegar þær
voru lömb. 2/3 af fénu okkar er
í heimahögum og einnig beitt á
aðrar jarðir í nágrenninu. Í byrjun
september hefst hjá okkur fjárrag og
smalamennskur og stendur nánast
út október. Við smölum á hestum
og gangandi og þar með sameinar
maður áhugamálin. Það er ekkert
sem jafnast á við það að fara á
Landmannaafrétt á haustin og smala,
vinir og sveitungar hittast og takast
á við smalamennskur í stórbrotinni
náttúru við ýmis veðurskilyrði.
Vona ég að það verði um ókomin
ár en það er alltaf verið að sækja
að okkur sauðfjárbændum varðandi
beit sauðfjár og er það því miður
oft mikil fáfræði fólks sem liggur
þar að baki.“
Grænihryggur í Sveinsgili
Hér er Guðlaugu aðeins farið að
hitna í hamsi enda mikill náttúru-
unnandi. – „Já, það er alveg ljóst
að bændurnir þekkja afréttina
mjög vel og ekki sér á gróðri eða
landsvæðum eftir beitina, annars
værum við ekki að nýta svæðin til
beitar. Í þessu samhengi langar mig
til þess að nefna nýjasta Instagram
staðinn, Grænahrygg í Sveinsgili
á Landmannaafrétti. Þarna hafa
verið örfáar kindur í sumarbeit
og smalar farið um að sækja þær
á haustin og ekkert séð á gróðri
eða landi áratugum saman. Eftir
að Grænihryggur varð vinsæll
áfangastaður göngufólks varð að
stika að honum gönguleið sumarið
2021 þar sem ágangur göngufólks
var þvílíkur að það stórsá á landinu
og margar nýjar brautir voru byrjaðar
að myndast.“
Heimaprjónuð ullarnærföt
frá Skarði
Íslenska ullin er og hefur alltaf verið
í miklu uppáhaldi hjá Guðlaugu. Á
nýliðnu hausti fékk hún loforð um
styrk frá SASS varðandi vöruþróun
og hönnun á vörum úr íslenskri
ullarvoð. Markmið verkefnisins er
að framleiða íslenskar ullarvörur
úr íslenskri lambsullarvoð sem er
framleidd á Íslandi.
„Já, margir fjallmenn á Land-
manna afrétti ganga í heima-
prjónuðum ullarnærfötum sem
kemur sér vel í slarkinu sem getur
orðið í fjallferð því veður eru
misjöfn á fjöllum og því mikilvægt
að vera vel búinn. Það var kona í
sveitinni sem prjónaði ullarnærföt á
fjallmennina en sökum aldurs er hún
hætt að prjóna. Ullarnærföt bóndans
voru því farin að slitna og bað hann
mig að finna leið til þess að gera
ný ullarnærföt fyrir sig. Upphaflega
hugmyndin mín var að láta útbúa
ullarband úr haustull af lömbunum
mínum og prjóna ullarnærföt í
prjónavél en þetta gekk ekki upp,
það náðist ekki fram sú mýkt sem
þarf í bandið,“ segir Guðlaug.
Lambsullarvoð úr
lambsullarbandi
Það var svo í ársbyrjun 2020 að
Guðlaug fór til fundar við Pál Kr.
Pálsson hjá ullarframleiðslu fyrir-
tækinu Varma og lýsti fyrir honum
hugmyndum sínum. Páll er mikill
áhugamaður um vörur úr íslenskri
ull og hefur mikla trú á íslensku
ullinni.
„Hann sagði mér frá nýju
lambsullarbandi sem Varma í
samstarfi við Ístex er búið að þróa.
Ístex útbýr ullarband úr íslenskri
lambsull og prjónar Varma svo
lambsullarvoð úr lambsullarbandi.
Ullarvoðin er svo ýfð sem gerir
hana enn mýkri. Ég kaupi svo
lambsullarvoð af Varma og sauma
ullarvörur úr voðinni. Fyrst og
fremst er ég að sauma ullarnærföt og
ullarkraga en hef einnig aðeins verið
Guðlaug Berglind Guðgeirsdóttir á góðri stund í réttum. Myndir / Úr einkasafni
Íslenska sveitin og náttúran
Sauðfjárbændurnir á bænum Skarði í Landsveit, Guðlaug Berglind og
Erlendur. Þau eru með eitt myndarlegasta fjárbú landsins.
Sumarliði klár í fjallferð í ullarnær
fötum úr lambsullarvoði, hannað og
saumað af mömmu hans.
Helga Fjóla í ullarslá frá Skarði.
Anna Sigríður með ullarkraga, sem
mamma hennar bjó til.