Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202236
LÍF&STARF
Halldór Sigurgeirsson, fyrrum
formaður Freyvangsleikhússins,
fæddur og uppalinn í Önguls-
staðahreppi Eyjafjarðarsveitar
vonast til jákvæðrar lendingar er
kemur að tilvonandi samningagerð
er varðar leigu sveitarfélagsins til
áhugaleikhúss Freyvangs.
Freyvangsleikhúsið er, eins og
margir vita, eitt afkastamesta leikhús
landsins, á sér langa sögu og sterka
innviði leiklistar. Mikið er lagt upp úr
metnaðarfullum sýningum sem hafa,
oftar en einusinni, verið valdar sem
Athyglisverðasta Áhugaleiksýning
ársins hjá Þjóðleikhúsinu. Tvö þeirra
skipta voru í formennskutíð Halldórs.
„Jú, það er vonandi að það verði
lending segir Halldór aðspurður. Þetta
er auðvitað hitamál og hefur verið í
deiglunni undanfarið. Stóra spurningin
er sú hvernig sveitarfélagið telur sig
geta selt húsið með manni og mús án
þess að hlutfall eignarhalds sé krufið
til mergjar - það er að svo mörgu að
hyggja varðandi það. Eins og er, er
hugmyndin þó sú að ekki skuli selja
húsið, heldur er verið að setja saman
tveggja ára leigusamning ætluðum
leikfélaginu.
Nú, þegar verið er að vinna
að samningagerð hvað varðar
framtíð okkar í Freyvangi, verður
það þeim sjálfsagt örlítið verkefni,
lögfræðingunum að niðurnegla
eignarhaldshlutana. Ég held að það
muni reynast nokkuð snúið. Ef til vill
eru þeir sem að samningnum standa
að átta sig á því að það þarf lengri
aðdraganda ef á að selja húsið - þar
sem eignarhlutinn er ekki skýr.
Uppbyggingin Freyvangs
Þetta er nefnilega svolítil ráðgáta,
eignarhlutinn á húsinu. Það var
gríðarlega mikil sjálfboðavinna við
byggingu hússins eins og við flest
þessara félagsheimila á landinu.
Ég er nú ekki hár í loftinu þegar
byggingin var í framkvæmd – ég er
fæddur ́ 51 og húsið tekið í notkun árið
´57. Það var allt uppi á borðinu heima
hjá mér, föðurbróðir minn sem bjó hjá
okkur var aðstoðarmaður yfirsmiðs
og eiginlega verkstjóri og allir sem
vettlingi gátu valdið í minni fjölskyldu,
til dæmis, unnu þarna alveg þrotlausa
sjálfboðavinnu.
Hið sama var að sjálfsögðu uppi
á teningnum hjá öðrum fjölskyldum
í sveitinni. Allir sem gátu gerðu sitt
og meira en það. Annað sem gerðist
í baráttu við byggingu þessa húss var
að fólk í sveitinni lánaði spariféð sitt
– bara til að flýta fyrir byggingunni
á meðan beðið var eftir styrk frá
Félagsheimilasjóð Ríkisins. Hann var
stofnaður þarna til að styrkja sveitirnar
í landinu svo hægt væri byggja upp
aðstöðu til að efla menningarstarfsemi.
Áætlað eignarhald óvisst
Við félagarnir höfum semsé verið
að kanna það og samkvæmt þeim
upplýsingum sem við höfum viðað að
okkur virkar svona sjálfboðavinna, þá
undir nafni ungmennafélaganna sem
ákveðið eignarhald - en þegar mætt var
í steypuvinnu, eða aðra sjálfboðavinnu
við bygginguna þá voru nöfn manna
alltaf skráð niður, passað upp á
það og náði skráningin yfir hvaða
ungmennafélagi þeir tilheyrðu.
Reyndar fékk leikfélagið að gjöf
4% eign frá einu ungmennafélaginu,
Væringja, en í dag hafa hin
ungmennafélögin sameinast undir
nafninu Samherji. Kvenfélagið á
einnig 16%. En svo ber mönnum ekki
saman um afganginn og spurning um
hvort eða hve mikið þessa efnis finnist
á skjalasafninu þó vel hafi verið haldið
utanum í eina tíð.
Möguleiki á minni útgjöldum
er kemur að smærri verkum
Hvað varðar okkar vinnu og utan-
umhald sem við höfum unnið - mér
skilst að þeir séu meðvitaðir um það
að þó við hjá leikfélaginu séum lag-
hent erum við ekki á leiðinni í stórar
framkvæmdir er kemur að húsinu.
Heldur mætti þó líta til smærri
verka sem kosta sitt. En ég er nú af
þeirri kynslóð að ég hef unnið mikla
sjálfboðavinnu og verið títt í slíkum
verkefnum. Fólk kannski áttar sig
ekki á hversu miklir peningar liggja
í þessum smærri verkum ef ætti að
fara að bjóða þau út, ef dæmi er
tekið - snjómokstur.
Það er svo margt svoleiðis. En
húsið sjálft er annars gríðarlega vel
byggt á sínum tíma og alltaf verið
hugsað vel um það.
Eitt best útbúna
áhugaleikhús landsins
Það hefur kostað mikla vinnu, þrek
og tár að koma húsinu í þá aðstöðu
sem það er, en nú held ég að við
getum sagt að við séum með eitt best
útbúna áhugamannaleikhús á landinu.
Ljósameistarar og aðrir sem hafa
komið hafa dáðst að því hve góður
ljósabúnaðurinn er, tækjabrú hefur
verið byggð, sviðið stækkað með
árunum og annað.
Fólk almennt áttar sig ef til vill
ekki á umfanginu sem leikhúsið er,
og hve mikil kostnaður hefur verið
lagður í að gera það að því sem það
er í dag. Til dæmis það sem snýr að
leikfélaginu - sem hefur hvað mest
sinnt húsinu, á þar að auki eignir, til
dæmis í afar verðmætum tækjabúnaði
- að eignarréttur þess virðist afskaplega
lítill í augum manna.
Möguleg nýting hússins með tilliti
til aukinnar tekjusköpunnar
Varðandi samninginn, að hann gangi
í gegn, veltur svo á því að lausnin sé
gagnvart leikfélaginu viðráðanleg og
það er alveg ljóst að leikfélagið þarf
að afla sér meiri tekna, þá með nýtingu
á húsinu.
Þegar kemur að nýtingu á borð við
félagsheimilið hinum megin við ána,
Laugaborg, þá er það rekið á öðrum
grundvelli í dag. Segja má að það
sé veisluþjónustuhús, erfidrykkjur
og svoleiðis. Auk þess er þar afar
blómlegt og skemmtilegt kórastarf.
Auðvitað er líka verið að leigja
Freyvang út, þorrablót voru þar
haldin á árum áður sem nú eftir
sameiningu sveitarfélaganna hefur
flust yfir í íþróttahúsið á Hrafnagili.
Enn er Freyvangur annars notaður
undir fermingar og slíkt, salurinn
er bara gerður klár til þess þó
útlitslega séð fari ekki fram hjá
fólki að leikfélagsreksturinn hafi þar
yfirhöndina.
En það eru hugmyndir um að
hægt sé að útbúa aðstöðu þannig að
hægt sé til dæmis að leigja húsið út til
ættarmóta – ærsl og læti sem oft verða
á slíkum samkomum eiga kannski ekki
heima í íbúabyggð eins og þeirri í
kringum Laugarborg, sérstaklega ekki
ef svo vill vera fram á kvöld.
Þriðja félagsheimilið er var,
Sólgarður, hýsti reyndar svo meðal
annars barnaskóla Saurbæjarhrepps
og í dag má þar finna Smámunasafn
Sverris Hermannssonar sem er
skemmtilega uppsett og hefur þá
sérstöðu að vera ekki safn einhverra
ákveðinna hluta heldur allra mögulegra
hluta. Hversdagslegir hlutir eru þar
mitt á meðal afar óhefðbundinna hluta
sem skemmtilegt er að sækja heim.
Tónleikahald í Freyvangi
Hvað varðar Freyvang væri jafnvel
svo hægt að halda þar smærri tónleika.
Það er dýrt að halda tónleika í Hofinu
á Akureyri eða á svipuðum stöðum.
Einhverntíma hjá okkur í
leikfélaginu hérna í kringum 2009
þegar fregnir bárust þess efnis að
leikritið okkar Vínland hefði verið
valið til að vera á sviði Þjóðleikhússins,
þá héldum við aukasýningu. Þar
héldu Helgi, höfundur verksins og
hljómsveit hans er sá um tónlistina í
verkinu, Helgi og hljóðfæraleikararnir,
tónlistarveislu alveg í gengum
sýninguna sem við höfðum og það var
nú meira stuðið. Annars hafði tónlist
verksins verið á teipi, en í þetta skiptið
og reyndar á sviði Þjóðleikshússins
stigu þeir í hljómsveitinni á stokk.
Síðan skein sól, Pelican og
Svavar Gests vöktu mikla lukku
Dansleikir voru nú annars haldnir
í Freyvangi hér í eina tíð, svona
frá ´56-7 og alveg fram á rúman
níunda áratuginn og ekki ómerkari
hljómsveitir en Svavar Gests og Co,
Pelican, Síðan skein sól og fleiri sem
stigu á stokk með tilheyrandi hrifningu
tónleikagesta! Það vantar eitthvað
svoleiðis og Freyvangur til að mynda
skemmtilegur vettvangur fyrir þá eða
þær hljómsveitir sem ekki endilega
eru að stíla inn á sitjandi áhorfendur.
Tæknibúnaður er til fyrirmyndar fyrir
tónleikahöld og hljómburðurinn líka
svakalega góður og væri um að gera
að nýta slíka aðstöðu.
Formannsvöfflur
Framtíð hússins er okkur öllum
hjartans mál, okkur sem komum að
leikfélaginu á einn eða annan hátt.
Það er ekki öðruvísi en það og við
viljum halda lífi í húsinu enda er saga
Freyvangs og Freyvangur sjálfur hluti
stórkostlegra menningarverðmæta sem
algerlega galið er að kasta á glæ.
Hérna í eina tíð eyddum við
töluverðum tíma saman leikhópurinn
utan æfingatíma, fórum í stuttar ferðir
og annað auk þess að dytta að húsinu,
moka snjó eða annað sem til féll. Ég var
kosinn formaður og sat í því embætti í
sex ár, hámarkstíma þess titils og naut
þess vel. Mikið og gott starf var þarna
í gangi og eins og áður sagði voru í
minni tíð tvívegis valdar sýningar hjá
okkur sem fóru á fjalir Þjóðleikhússins
sem Áhugaleikhússýning ársins. …
Og sem formaður tók ég upp þann sið
að baka „formannsvöfflur“ þegar æft
var á laugardögum og bauð fólkinu
uppá! En ég held að slík samheldni
og hefðir séu á undanhaldi. Við erum
þó annars nokkrir, gömlu kempurnar
úr leikhúsinu sem höldum hópinn,
hittumst og njótum samverunnar líkt
og áður fyrr.
Framundan
En eins og áður sagði er lending
framundan og framhaldið vonandi
jákvætt. Bolmagn félagsins er þó
nokkuð og þá sérstaklega þegar tekið
er til sýninga á försum eða klassík
líkt og Kardimommubænum sem nú
er á döfinni. Reyndar er rétt að komi
fram að allar barnasýningar eru nær
undantekningalaust langvinsælastar,
iðulega sýndar fyrir fullu húsi og
meira en það.
Barnasýningarnar eru þó einungis
sýndar fram á vor vegna þess að þá
byrjar prófatíminn í skólunum hjá
krökkunum sem fylgja miklar annir
- jafnvel þó enn sé verið að sýna fyrir
fullu húsi.
Mikill kraftur og gleði einkenna
annars þá sem koma að sýningunni
núna, Kardimommubænum, og
tilhlökkun er kemur að því að standa
á sviðinu.
Áætluð frumsýning er 4.mars
næstkomandi í Freyvangsleikhúsinu
og er næsta víst að leikarar
gleðji bæði sjálfa sig og aðra og
ekki stendur á öðru en að töfrar
Kardimommubæjarins nái til sem
allra flestra.” /SP
Halldór Sigurgeirsson fyrrverandi formaður:
Menningarverðmæti sem galið er að kasta á glæ
(Innsk. Blm. Samkvæmt 1tbl.
Húnavöku, árið 1968 kemur fram
að: “ Nokkru fyrir 1950 voru
sett lög um félagsheimilasjóð,
er miðuðu að því að ríkið
greiddi 40% kostnaðar við
félagsheimilabyggingar.“
Þá mætti spyrja sig hvort ríkið
eigi 40% hlut í byggingunni en
ekki sveitarstjórn til dæmis?
- Var meiningin að sveitastjórnin
tæki yfir þessi 40% eða er húsið
í eigu ríkisins?)
Ein alvinsælasta danshljómsveit níunda áratugarins, Síðan skein sól hélt
uppi stuðinu í Freyvangi laugardaginn 21.júlí árið 1990.
Grein um vígslu félagsheimilis Freyvangs í Öngulsstaðahreppi á sumar-
daginn fyrsta, árið 1957 birtist í dagblaðinu Degi í apríl sama árs.
Örfáir sólargeislar léku um Freyvang er ljósmyndara bar að garði. Mynd / Mynd Benjamín Baldursson