Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 2022 39
SAGA&MENNING
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
isfell.is • sími 5200 500 Þekking og þjónusta
Sögubrot um búfræðslu 3:
Að læra líkamsbeitingu
Löngum var það svo að hver
kynslóð lærði af hinni eldri –
bæði góða verkhætti og vonda.
Lengi vel voru menn ekki mjög
uppteknir af vinnuumhverfi
sínu eða áhrifum vinnunnar á
heilsu og líðan. Sumum þótti
það kveifarskapur að kvarta og
menn tóku erfiði og áraun svo
og ýmsum viðvörunarmerkjum
líkamans sem óumflýjanlegum
örlögum.
Rannsóknir Guðmundar Finn
boga sonar prófessors og leið
beiningar Halldórs Vilhjálms sonar
um slátt með orfi og ljá fyrir réttri
öld má kalla nokkur tímamót því
þeir beindu athygli að líkama og
velferð sláttumannsins, ekki aðeins
amboðunum. Vinnurannsóknir
Guðmundar voru þá sennilega
á heimsvísu.
Með fyrstu dráttarvélunum og
þrásetu á þeim kom í ljós að hana
þoldu ekki allir. Mjög reyndi á bak
ökumanns til dæmis, svo til voru
þeir sem skaða biðu af akstrinum,
enda vinnuaðstaðan óheilsusamleg
á flestan máta. Sama máttu ökumenn
vígvéla, svo sem skriðdreka, þola.
Með umfangsmiklum rannsóknum
tókst með tímanum að bæta aðbúnað
og vinnuaðstöðu svo nú er vanda
málið að stórum hluta úr sögunni.
Magnús Óskarsson kom til
starfa á Hvanneyri árið 1955. Eitt
af því sem hann tók upp á var að
segja nemendum Bændaskólans til
í grein sem kölluð var vinnufræði
(arbeidslære). Hún var nýmæli.
Magnús hafði í námi sínu og dvöl
á Norðurlöndum kynnst greininni,
og einum helsta forgöngumanni
hennar þá, Norðmanninum Birger
Tvedt, lækni og sjúkraþjálfara;
hann liðsinnti m.a. norskum
afreksíþróttamönnum. Dr. Tvedt
og kenningum hans hafði Magnús
kynnst á námskeiði í Svíþjóð í
ársbyrjun1955.
Heim kominn hóf Magnús að
flytja boðskap Tvedts um rétta
líkamsbeitingu við vinnu og um
árabil var vinnufræði föst grein í
námskrá Hvanneyrarskóla. Magnús
tók saman kennslubók um vinnu
fræði. Með framtaki Magnúsar
varð Hvanneyrarskóli í hópi fyrstu
fagskóla landsins til þess að taka
upp kennslu í þessari þýðingarmiklu
námsgrein – ef ekki fyrstur.
Á árunum 19551970 var það
einkum tvennt sem illa lék líkama
íslenskra bænda, að frátöldu
heyryki og akstri öryggisgrinda
og húslausra dráttarvéla: Annað
voru áburðarpokarnir en hitt
mjólkurbrúsarnir. Það var því
ekki að ófyrirsynju að Magnús
Óskarsson efndi til dæmis til
Íslandsmóts í mjólkurbrúsaburði í
Hvanneyrarskóla á þessum árum,
eftir að hafa fyrirlesið og kynnt
hvernig bændaefni skyldu beita
líkama sínum við lyftingu og burð
þungra hluta.
Nú minna ekilshús dráttarvéla á
stjórnklefa geimfars, áburðarpokar
nútímans eru sem betur fer ofraun
mennsku afli og mjólkurbrúsar
orðnir safngripir og stofustáss. Í
mörgu tilliti hefur því á verið stemmd
að ósi: ýmsum heilsuspillandi
þáttum bústarfa hefur verið útrýmt
og aðstæður bættar – í kjölfar
aukinnar þekkingar. Vera má að
aðrar ógnir séu komnar í staðinn,
svo sem kyrrseta við vélunnin
verk og einhæfni þeirra, að ég nú
ekki gleymi hinum andlega þætti.
Má þá minna á möntru dr. Birger
Tvedt, sem var hreyfing – alhliða
og regluleg hreyfing.
Bjarni Guðmundsson
Létt og leikandi (dýnamísk) skyldi líkamsbeitingin vera. Myndirnar með greininni eru úr kennsluefni í vinnufræði á
árunum 1955– 1970; teikningar Norðmannsins Rudolf Vie.
Árið 1950 voru vinnulaun 81% af rekstrargjöldum íslenska meðalbúsins
(verðlagsgrundvallarbús). Flest bústörf kölluðu þá á líkamlega vinnu. Brátt
tóku vélarnar við.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Kemur næst út
24. febrúar