Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202246
Tíminn líður hratt og ekki er ráð
nema í tíma sé tekið og núna er rétti
tíminn til að huga að ræktuninni
næsta sumar og sáningu fræja. Í
grunninn skiptir ekki máli hvort sá
á fræjum af sumarblómum, krydd-
og matjurtum eða fjölæringum,
aðferðin er í megindráttum sú sama.
Auðveldara er en flesta grunar að
rækta plöntur af fræi en á sama tíma
nauðsynlegt að taka tillit til þess að
verið er að vinna með lifandi verur og
eitt og annað sem þarf að hafa í huga.
Vanda skal vel allan undirbúning
fyrir sáninguna og gæta þess að verk
færi og pottar séu hreinir og að moldin
sé laus við óæskilegar örverur. Gott er
að skola mold úr gömlum sáðbökk
um og af verkfærum og þvo þau með
sápuvatni.
F1 fræ
Fræ eru ekki bara fræ því gæði og
spírunarhæfni þeirra eru mismunandi.
Í öllum tilfellum borgar sig að kaupa
góð fræ þótt þau séu eitthvað dýrari.
Fræ sem kallast F1 eru arfhrein af
móðurplöntum sem hafa verið fram
ræktaðar í tvær kynslóðir. F1 fræ eru
dýrari en önnur, en betri. Plöntur sem
ræktaðar eru af slíku fræi eru kraft
miklar og nánast allar af sömu hæð
og með sama lit. Í sumarblómarækt
ætti því ávallt að velja F1 fræ.
Spírunarhæfni ódýrra fræja er
minni en úrvalsfræja. Yfirleitt eru
fleiri fræ í hverju fræbréfi séu þau
ódýr. Hæð og blómlitir
plantnanna af ódýrum
fræjum
eru yfir
leitt
breyti
legir
og fjölbreytt
ir og henta
því vel þar sem
slíkt á við.
Fræbréf
með F1 fræj
um eru alltaf
merkt sem slík.
Sáðmold
Allra best er að nota sáðmold
sem hægt er að kaupa í
gróðurvöruverslunum
eða svokallaðar sáðtöflur
sem eru sérstaklega
ætlaðar fyrir fræ. Í
töflunum er sáðmold sem
lyftir sér þegar hún blotnar og fræin
skjóta rótum í hana. Í moldinni eru öll
næringarefni
sem ungplönt
urnar þurfa og
töflunum fylgir
sá kostur að
hægt er að planta
moldarkögglinum í
stærri pott án þess að
hreyfa við plöntunni
sjálfri.
Sáning
Að loknum
undirbúningi er
komið að sáning
unni sjálfri. Gæta
skal þess að kaupa
fræ af tegundum sem dafna vel þar
sem þeim er ætlað að standa því það
fæst lítið með því að rækta plöntur sem
þurfa mikla sól og setja þær síðan á
skuggsælan stað.
Flestar plöntur þurfa birtu þrátt
fyrir að sumar tegundir standi sig
ótrúlega vel í skugga. Einnig verður
að huga að hæð plantnanna og muna
að lágvaxnar plöntur henta betur þar
sem vindur blæs.
Þegar búið er að setja sáðmoldina
í ræktunarílátið skal þjappa henni
lauslega og vökva með volgu vatni
þannig að hún verði rök en ekki blaut
í gegn. Einnig er hægt að setja venju
lega gróðurmold í ílátið og tommu
þykkt lag af sáðmold ofan á hana.
Fræin spíra í sáðmoldinni og rótin
vex síðan niður í gróðurmoldina.
Þannig má spara sér að dreifplanta
plöntunum í stærri potta um tíma.
Fræjunum er sáldrað jafnt
yfir moldina og þess gætt
að þau liggi ekki of þétt.
Að því loknu er þunnu
moldarlagi, tvöfaldri
stærð fræjanna,
stráð yfir. Séu fræin
mjög smá er nóg að
þjappa þeim laus
lega niður í moldina.
Til að koma í veg fyrir
að moldin og fræin fari af
stað í bökkum við vökvun er gott að
leggja blað yfir moldina og vökva
varlega yfir það. Munið að setja
pinna með nafni tegundarinnar
og lit í ræktunarílátið til að vita
hvað er í hverju íláti.
Æskilegt hitastig við
spírun er 18 til 20° á
Celsíus en gott er
að lækka hitann um
nokkrar gráður
eftir að plönturnar
koma upp. Annars
vaxa þær of hratt
og verða renglu
legar. Þar sem
lítillar birtu gætir
er nauðsyn
legt að notast
við raflýsingu
til að koma í
veg fyrir svo
kallaðar myrkraspírur. Yfirleitt nægir
þó að láta ræktunarílátið á bjartan
stað því ekkert kemur í stað góðrar
dagsbirtu.
Spírunartími fræja er mismun
andi og því nauðsynlegt að hafa
hann í huga þegar sáning er undir
búin. Sumum sumarblómum, eins og
rauðum stjúpum, þarf að sá snemma
innandyra vegna þess hversu lengi
þau eru að spíra, en fræi af kletta
salati er sáð beint út í beð þegar
jarðvegshiti hefur náð 6° á Celsíus.
Dreifplöntun og hersla
Kímblöð kallast fyrstu blöðin úr
fræjum og koma þau yfirleitt upp
nokkrum dögum eftir sáningu,
reyndar misjafnt eftir tegundum.
Skömmu eftir það taka venjuleg
laufblöð við af kímblöðum
og eftir því sem plönturnar
stækka verða þær fyrir
ferðarmeiri og þurfa
meira rými til að vaxa
og dafna. Þar er því
nauðsynlegt að dreifplanta
eða prikkla plöntunum út í
stærri potta eða auka bilið á
milli þeirra í sáðbakkanum.
Sé plöntunum dreifplantað í
bakka fer bilið á milli þeirra eftir
tegundum en í flestum tilfellum
er það haft um fimm sentímetr
ar. Skyr og jógúrtdósir henta vel
til dreifplöntunnar sé þess gætt að
setja gat í botninn til að koma í
veg fyrir ofvökvun.
Þegar hér er komið sögu eru
ungplönturnar í
miklum vexti og
gott að vökva þær
með daufri áburðar
blöndu einu sinni
í viku.
Plantað í garðinn
Áður en plönturnar
eru settar út í garð er
nauðsynlegt að venja
þær við hitastigið ut
andyra til að koma í
veg fyrir sjokk þegar
þeim er plantað út.
Þetta er gert með því að
flytja plönturnar í vermi
reit eða með því að láta
þær standa úti hluta dags,
en verja fyrir næturfrosti
og lengja útivistartímann
eftir því sem hlýnar í veðri. Séu
plönturnar hertar of hratt fá blöðin
á sig bláan lit og vöxtur stöðvast.
Útplöntun ræðst af tíðafari en
yfirleitt má setja harðgerðustu
tegundirnar í beð í lok maí og þær
allra viðkvæmustu kringum miðj
an júní. Ungplönturnar þola ekki
frost og því getur reynst nauðsynlegt
að skýla þeim þar til hætta á nætur
frosti er liðin hjá. Til að plönturn
ar dafni vel þurfa þær jarðveg sem
hentar hverri tegund fyrir sig. Bilið
á milli plantna fer svo að sjálfsögðu
eftir fyrirferð þeirra.
LÍF&STARF
Sumarblómin, kryddið og matjurtirnar í sumar:
Tími fræja og sáningar
Sáningartími sumarblóma
Tegund Latneskt heiti Sáningartími
Blóðdropi Krists Fuchsia x hybrida janúar - febrúar
Fagurfífill Bellis perennis janúar - febrúar
Fjallafjóla Viola cornuta & V. x williamsii janúar - febrúar
Silfurkambur Senecio cineraria janúar - febrúar
Sólboði Osteospermum-blendingar janúar - febrúar
Sólbrúður Pericallis x hybrida janúar - febrúar
Stjúpublóm Viola x wittrockiana Rauðar í jan. aðrar í feb.
Tóbakshorn Petunia x atkinsiana janúar - febrúar
Drottningarfífill Zinnia elegans febrúar
Ljónsmunnur Antirrhinum majus febrúar
Mánafífill Gazania x hybrida febrúar
Stjörnuklukka Campanula poscharskyana febrúar
Brúðarauga Lobelia erinus febrúar - mars
Frúarhattur Rudbeckia fulgida var. speciosa febrúar - mars
Meyjarblóm Clarkia amoena febrúar - mars
Svartauga Thunbergia alata febrúar - mars
Apablóm Mimulus cupreus mars
Bláhnoða Ageratum houstonianum mars
Brúðarstjarna Cosmos bipinnatus mars
Daggarbrá Leucanthemum paludosum mars
Fiðrildablóm Nemesia strumosa mars
Garðajárnurt Verbena x hybrida mars
Hádegisblóm Dorotheanthus bellidiformis mars
Hengijárnurt Verbena tenuisecta mars
Héraskott Lagurus ovatus mars
Ilmskúfur Matthiola incana mars
Skógarmalva Malva sylvestris mars
Skrautkál Brassica oleracea var. acephala mars
Sólblóm Helianthus annuus mars
Sumarljómi Phlox drummondii mars
Tígurblóm Mimulus luteus mars
Aftanroðablóm Lavatera trimestris mars-apríl
Dalía Dahlia x hortensis mars-apríl
Flauelisblóm Tagetes patula mars-apríl
Friggjarbrá Ismelia carinata apríl
Garðakornblóm Centaurea cyanus mars-apríl
Klæðisblóm Tagetes erecta mars-apríl
Morgunfrú Calendula officinalis mars-apríl
Möggubrá Argyranthemum frutescens mars-apríl
Paradísarblóm Schizanthus x wisetonensis mars-apríl
Skrautnál Lobularia maritima var. maritima mars-apríl
Sólbrá Coleostephus multicaulis mars-apríl
Skjaldflétta Tropaeolum majus mars-apríl
Þorskagin Linaria maroccana mars-apríl
Njarðarbrá Xanthophthalmum segetum apríl
Vinablóm Nemophila menziesii apríl
Stjúpa (Viola x wittrockiana). Drottning sumarblómanna og
harðgerðasta sumarblómið sem vex hér á landi. Engin sumarblóm
komast með klærnar þar sem stjúpur eru með stælana varðandi
fjölbreytni í lit. Yrkið á myndinni kallast Purple Rain. Myndir / VH.
Rósmarín gefur sér
langan tíma til að spíra
og vaxa upp af fræi.
Mynd / Odd Stefán.
Klettasalati má sá úti
þegar jarðvegshiti
hefur ná 6° á Celsíus.
Mynd / Odd Stefán.
Gulrófum og káljurtum
er sáð um miðjan apríl,
eða sex vikum áður en
þær eru settar úr.
Mynd / Odd Stefán.
Sólboði (Osteospermum-blendingar) er harðgert og sterkt
sumarblóm sem þarf sólríkan og þurran jarðveg. Blómin gul,
bleik, fjólublá eða hvít með dökku auga sem loka sér í dimmviðri.
Blómstönglarnir sveigjanlegir og brotna sjaldan í vindi.
Daggarbrá (Leucanthemum paludosum). Þétt jurt, 20 til 30
sentímetra há. Krónublöðin hvít í kringum gult auga. Harðgerð
og blómviljug. Stendur langt fram á haust. Fallegt sumarblóm.
Best er að sá henni að vori til, í mars.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is