Bændablaðið - 10.03.2022, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 2022 25
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR AF
AJ RAFSTÖÐVUM
Stöðvar í gám
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
HECHT Rafmagnsfjórhjól
Götuskráð.
Verð 650.000 kr
HECHT 1830 MIG
og pinnu Suðuvél 200A .
Verð 107.880 kr.
Nú er hægt að fá ERGOLASH
strappa 25mm og 50mm
í IÐNÓ REYKJAVÍK
laugardag 19 mars og sunnudag 20 mars kl 16.00
Miðasala á www.tix.is
Öxin Agnes & Friðrik
Blaðamaður lagði land undir fót
og hélt norður í Eyjafjarðarsveit
frumsýningardaginn mikla,
4. mars, en þá stóðu liðsmenn
og leikarar Freyvangsleikhússins
fyrir sinni allra fyrstu sýningu á
Kardimommubænum undir stjórn
Ólafs Jens Sigurðssonar leikstjóra.
Var mikil stemning í húsinu, gleði
og eftirvænting litaði leikhúsgesti og
það má með sanni segja að enginn
hafi orðið fyrir vonbrigðum. Hinar
þekktu persónur ævintýris Thorbjörns
Egner birtust ljóslifandi á sviðinu
og fóru leikarar virkilega vel inn í
hlutverk sín hvort sem var um smærri
eða stærri senur að ræða.
Kamilla litla í höndum Elfu Rúnar
Karlsdóttur á framtíðina fyrir sér á
sviðinu og allur krakkahópurinn
lifandi og skemmtilegur, Sívertsen
rakari fór á kostum og sást greinilega
að þarna skemmti leikarinn sér jafn
vel á sviði og þeir sem á hann horfðu.
Senunni stálu svo ræningjarnir þrír,
bræðurnir Kasper, Jesper og Jónatan
– í höndum þeirra bræðra Helga,
Ingólfs og Bergsveins Þórssona og
auðséð að um mikla listamenn og
náttúrulega skemmtikrafta er að ræða.
Leikstjóranum Ólafi Jens var
hrópað lof fyrir leikstjórn sína og
eiga allir sem að verkinu komu slíkt
hið sama skilið. Leikmyndin var
skemmtilega útfærð og vel unnin og
umgjörðin öll afar skemmtileg.
Uppselt er á næstu sýningu og
biðlistar hafa myndast á aðrar, en
áfram verður sýnt – að minnsta
kosti þar til vorpróf hefjast í
barnaskólanum – og ætti enginn að
láta þessa sýningu framhjá sér fara
enda talar hún til barnsins í okkur
öllum. /SP
Frumsýningarhelgi:
Kardimommubærinn
Ég bý ekki til matinn!