Bændablaðið - 10.03.2022, Qupperneq 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 202236
Kvenfélagið Baugur í Grímsey:
Fengu fyrrum leikskólapláss
og útbúa vinnuaðstöðu
Konur í Kvenfélaginu Baugi
í Grímsey fengu 1,6 milljónir
króna við úthlutun í verkefninu
Glæðum Grímsey sem
staðið hefur yfir undanfarin
ár og er hluti af verkefni
Brothættra byggða innan
Byggðastofnunar. Baugskonur
fengu einnig til umráða húsnæði
í Félagsheimilinu Múla þar sem
áður var starfandi leikskóli og
eru nú að taka það í gegn.
„Við erum að setja upp
vinnuaðstöðu í þessu húsnæði
sem ætlað er fyrir fólk sem vill
dvelja tímabundið í Grímsey til
að vinna þar,“ segir Karen Nótt
Halldórsdóttir, félagsmaður í
kvenfélaginu. Ekkert skólahald
hefur verið í eynni frá árinu 2019
og hefur þetta húsnæði staðið autt
síðan.
Til að byrja með verður útbúin
vinnuaðstaða fyrir þrjá og segir
Karen Nótt að búið sé að tæma
húsnæðið, þrífa og mála og næst
taki við að innrétta, kaupa húsgögn
og búnað og koma verkefninu
formlega af stað.
Mikill áhugi
Hún segir að Íslendingar hafi verið
duglegir að heimsækja Grímsey
undanfarin tvö sumur og þá hafi
mikið verið spurt hvort til staðar
væri einhver vinnuaðstaða fyrir
fólk sem vildi draga sig úr skarkala
þéttbýlisins og njóta næðis í eynni.
„Við fórum að hugsa um þetta
í kjölfarið og þegar við höfðum
styrkinn í höndunum var okkur
ekkert að vanbúnaði að hefjast
handa.“
Hún segir að vissulega hafi fólk
komið um árin til Grímseyjar og
unnin þar, verið á gistiheimilinu
t.d., en nú verði í fyrsta sinn hægt
að bjóða upp á góða aðstöðu fyrir þá
sem vilja vinna frá eynni, um lengri
eða skemmri tíma.
„Áhuginn er greinilega mikill
því von er á fyrstu gestunum síðar
í mars en við höfum ekki auglýst
neitt, þetta hefur bara spurst út,“
segir Karen Nótt Halldórsdóttir,
formaður hverfisráðs Grímseyjar
og félagsmaður í Kvenfélaginu
Baugi í Grímsey. /MÞÞ
Kvenfélagið Baugur hefur fengið til umráða húsnæði í Félagsheimilinu Múla,
þar sem áður var leikskóli, og er að innrétta þar vinnuaðstöðu fyrir fólk sem
vill dvelja og starfa tímabundið í Grímsey. Mynd / Karen Nótt Halldórsdóttir
Karen Nótt Halldórsdóttir segir
áhugann mikinn, von er á fyrstu
gestum síðar í mars þó ekki sé búið
að auglýsa neitt.
LÍF&STARF
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Markmið stjórnvalda að ferðamenn
eyði 700 milljörðum árið 2030
Nýtt menningar- og viðskipta-
ráðuneyti var kynnt í Hörpu 1.
febrúar. Á verkefnasviði þess eru
ferðamál, auk menningarmála
og viðskipta en ráðherra er Lilja
Dögg Alfreðsdóttir. Í stefnumótun
ráðuneytisins til endurreisnar
ferðaþjónustunnar er gert ráð
fyrir að ferðamenn muni eyða 700
milljörðum á Íslandi árið 2030.
Í kynningu Lilju kom fram að
málaflokkar nýs ráðuneytis yrðu
burðarásar í gjaldeyrissköpun
þjóðarbúsins til framtíðar. „Hlutverk
ríkisins er að móta umhverfi þar
sem sköpunarkrafturinn þrífst,
verðmætaskapandi umhverfi fyrir
atvinnu- og menningarlíf. Það
styrkir samkeppnishæfni okkar,
sem ekki aðeins snertir atvinnulífið
heldur allt samfélagið í heild sinni,“
sagði hún.
Hún kynnti helstu verkefni
ráðuneytisins fyrstu 100 dagana, en
á þeim tíma er ætlunin að tryggja
viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Í
kynningunni kom fram að stefnt
sé að því að útgjöld ferðamanna
aukist úr 145 milljörðum á síðasta
ári í 700 milljarða árið 2030. Árið
2019, fyrir Covid-19 farsóttina,
námu útgjöld ferðamanna á Íslandi
470 milljörðum. /smh
Sæfari við bryggju í Grímsey. Íbúar vilja nú fyrir alla muni að hugað verði að
nýrri ferju og þeir fjármunir sem áttu að fara í viðhald á Sæfara gangi frekar
upp í nýja og öflugri ferju. Mynd / Anna María Sigvaldadóttir
Grímseyingar vilja skoða kaup á nýrri ferju:
Sæfari ekki lengur boðlegur
til farþegaflutninga
Grímseyingum þykir ferjan Sæfari,
sem er í siglingum milli lands og
eyjar, vart boðlegur lengur til
farþegaflutninga.
Á fundi hverfis ráðs Grímseyjar
á dögunum kom ust menn að þeirri
niðurstöðu að farsælla væri að huga
að kaupum á nýrri ferju, en til stendur
að fara í viðhaldsframkvæmdir á
Sæfara innan tíðar. Eyjarskeggjum
finnst farsælla að nýta fjármuni sem
fara í viðhaldskostnað upp í kaup á
nýrri ferju.
Karen Nótt Halldórsdóttir,
formaður hverfisráðs Grímseyjar,
segir að ferjan Sæfari hafi verið í
notkun í 15 ár en til stóð þegar hún
kom fyrst að hún yrði í notkun í
10 ár. „Sæfari hentar mjög illa til
farþegaflutninga og það er alltaf að
koma betur og betur í ljós eftir því
sem fjöldi farþega eykst í kjölfar
aukins ferðamannastraums til
Grímseyjar,“ segir Karen Nótt.
Undanfarin ár hafa æ fleiri
ferða menn, bæði Íslendingar og
útlendingar, lagt leið sína til Gríms-
eyjar. Útlit er fyrir að áfram verði
straumur ferðamanna út í eyju og
þurfi ferjan að henta þeim aukna
fjölda sem þangað vill fara. Fyrr
eða síðar þurfi að huga að stærra
og hentugra skipi, bæði fyrir farþega
og bíla. /MÞÞ