Bændablaðið - 10.03.2022, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 2022 43
býflugur hafi getað hafst við í
kúpunum og framleitt um hálft tonn
af hunangi á ári.
Grikkinn Aristóteles, sem var
uppi fyrir um 350 árum fyrir Krist,
fjallaði um býflugur í einu af ritum
sínum og Rómverjar stunduðu
umfangsmikla býflugnarækt á
blómaskeiði Rómaveldis og notuðu
það meðal annars sem græðandi
smyrsl á sár.
Býflugnarækt til hunangsgerðar
hefur verið stunduð í Evrópu í að
minnsta kosti þrjú þúsund ár en
býflugnarækt barst vestur yfir
Atlantshafsála eftir að Kólumbus
og kónar hans römbuðu á Suður-
Ameríku.
Býflugnabú
Bú ræktaðra býflugna eru oftar en
ekki kassi sem hægt er að opna
að ofan. Í kassanum eru vaxhólf
með sexhyrndu munstri og sama
munstur er að finna í búum villtra
býflugna. Munstrið á klæðningu
Hörpu í Reykjavík líkist að mörgu
leyti munstri í býflugnabúi.
Trú og goðsagnir
Hunang og býflugur gegna
veigamiklu hlutverki í helgihaldi
margra trúarbragða og ákveðin
uppsett hártíska kvenna frá
sjöunda áratug síðustu aldar minnir
óneitanlega á býkúpu.
Samkvæmt grískum goðsögnum
var það gyðjan Melissa sem kenndi
mönnum að nýta sér hunang og til
er gullnæla frá sjöttu öld fyrir Krist
sem sýnir gyðjuna í býflugnalíki.
Í Austurlöndum nær var býflugan
talin vera tengiliður við undirheima.
Í guðatali Maya í Suður-Ameríku er
að finna guðinn Ah Musen Kab sem
var nátengdur villtum býflugum.
Samkvæmt sköpunarsögu San-
fólksins í Kalaharíeyðimörkinni
ætlaði býfluga að fljúga með
engisprettu yfir stórt fljót sem
aðskildi tvo heima. Býflugan
þreyttist á fluginu og varð að skilja
engisprettuna eftir á blómi sem flaut
í ánni miðri. Engisprettan drapst
skömmu síðar en áður en býflugan
yfirgaf hana sáði hún fræi í líkama
hennar og upp af því fræi álaði fyrsti
maðurinn.
Í egypskum goðsögum
segir að býflugur hafi orðið
til þegar tár guðsins Ra féllu í
eyðimerkursandinn og gyðjan
Kamadeva í hindúasið á boga sem
gerður er úr býflugum.
Hunang í Biblíunni
Í Þriðju Mósebók 20. kafla 24.
línu segir Drottinn meðal annars
við Móses, eftir að hann hefur lagt
Ísraelsmönnum lífsreglurnar hvað
varðar hórlífi, blóðskömm og eitt og
annað og hrakið frumbyggja svæðis
sem hann ætlaði sinni útvöldu þjóð
á brott: „Þess vegna sagði ég við
ykkur: Þið skuluð taka land þeirra
til eignar. Ég mun sjálfur fá ykkur
það svo að þið getið tekið það til
eignar, þetta land sem flýtur í mjólk
og hunangi.“
Hunangs er reyndar víða getið
í Biblíunni og ekki síst í Gamla
testamentinu. Í 14. kafla Fyrri
Samúelsbókar segir: „Býflugnabú
voru víða á landsvæðinu svo að
þar var hunang að hafa. Þegar liðið
kom að býflugnabúunum sá það
að hunang rann úr þeim en enginn
lagði sér það til munns af ótta við
eiðinn.
En Jónatan hafði ekki heyrt að
faðir hans hafði látið liðið vinna
eið. Hann stakk þá endanum á
stafnum, sem hann hélt á, inn í
eitt býflugnabúið og dýfði honum
í hunangskökuna, tók hunangið,
stakk því í munn sér með hendinni
og ljómuðu þá augu hans aftur.
Þá sagði maður nokkur úr liðinu:
„Faðir þinn lét liðið sverja og sagði:
Bölvaður sé sá maður sem neytir
einhvers í dag. Þess vegna er liðið
dauðþreytt.“ Jónatan svaraði: „Faðir
minn leiðir ógæfu yfir landið.
Sjáið hve augu mín ljóma af því
að ég bragðaði aðeins á hunanginu.
Vissulega hefði ósigur Filistea
orðið enn meiri ef liðið hefði
etið af herfanginu sem það tók af
fjandmönnum sínum.“
Samkvæmt Jobsbók var illa
komið fyrir Job þegar hann fékk
ekki að „njóta rennandi lækja eða
streymandi mjólkur og hunangs“.
Í Ljóðaljóðunum kveður svo við
annan tón þegar elskhuginn segir
við brúði sína, „hunang drýpur af
vörum þínum, brúður, hunang og
mjólk undir tungu þinni.“
Hunang í lækningum
Mikil trú var á lækningamætti
hunangs fyrr á tímum og er eflaust
enn. Við inntöku átti hunang að hafa
góð áhrif á meltinguna og græða sár
í maga en einnig þótti gott að græða
sár og bruna útvortis með hunangi.
Nytjar og geymsla
Lengi vel var hunang nánast
eina sætuefnið sem þekkt var
í Evrópu og það var notað í
matargerð, til að brugga mjöð
og við náttúrulækningar. Við
hunangsframleiðslu er vaxköku-
hunang, hunangið sem býflugur
safna í hólf lirfulausra vaxkaka,
nýtt. Hunang er unnið með að láta
það drjúpa úr vaxkökum, skilja
það frá vaxkökunum í skilvindu
eða pressað úr þeim við lágan hita.
Reykur er oft notaður til að róa
flugurnar þegar hunangi er safnað
úr hunangsbúum.
Að öllu jöfnu eru um 304
kílókaloríur í 100 grömmum af
hunangi, 82,4 grömm af kolvetnum
og svipað magn af sykri, 0,2 grömm
af trefjum en engin fita.
Geymsluþol hunangs er nánast
ótakmarkað og sagt að það sé eina
matvaran sem ekki skemmist við
geymslu. Best er að geyma hunang
í glerkrukku á köldum og dimmum
stað. Stundum gerist það að í hunangi
í geymslu myndast kristallar en það
skemmir ekki hunangið og nóg er
að setja krukkuna í heitt vatn til að
kristallarnir hverfi.
Býflugur og hunangs-
framleiðsla á Íslandi
Ekki eru til heimildir um býflugna-
rækt og hunangsgerð hér á landi fyrr
en á tuttugustu öld.
Á árunum 1936 til 1938 voru flutt
til landsins býflugnabú frá Noregi
og gáfu búin um 10 kíló af hunangi
en flugurnar lifðu ekki veturna af.
Árið 1951 flutti Melitta von
Urbancic, frá Austurríki, inn bú
frá Skotlandi og tvö næstu ár þar
á eftir frá Noregi og hélt býflugur í
Reykjavík í nokkur ár. Melitta von
Urbancic og Geir Gígja stofnuðu
Býræktarfélag Íslands árið 1953.
Býrækt von Urbancic naut ekki
mikilla vinsælda meðal Íslendinga
og árið 1960 var Melittu gert að
drepa flugurnar og fjarlægja búin
vegna óánægju nágranna. Árin 1975
og 1976 flutti Olgeir Möller inn bú
frá Danmörku en þau bú lifðu ekki
veturna af.
Aldamótaárið 2000 var stofnað
nýtt félag um býflugnarækt
á Íslandi og fékk það heitið
Býflugnaræktendafélag Íslands.
Meðlimir þess eru um 120 og er
framleiðsla á hunangi í smáum stíl
nokkur hér á landi.
Uppsett hártíska kvenna frá sjöunda áratug síðustu aldar minnir
óneitanlega á býkúpu.
Hunangsframleiðsla í miðríkjum Norður-Ameríku árið 1919. Hunangi safnað úr búi.
Hunang skafið af vaxköku.
Þrátt fyrir rómatíska ímynd er mest af hunangsframleiðslu í dag
vélvædd.
Býflugnaeldi frá því um 1900. Mynd Clara Southern.
Býflugur eru einstaklega iðin kvikindi og sagt er að fluga í söfnunarleiðangri
fljúgi á 20 til 25 kílómetra hraða í eins til átta metra hæð eftir veðri.