Bændablaðið - 10.03.2022, Side 49

Bændablaðið - 10.03.2022, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 2022 49 LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA Mikilvægt er að skógar, sem aðrar auðlindir, séu sjálfbærir Forsíður prentmiðla, þ.m.t. dag­ blaða, eiga það sameiginlegt að vera á pappír, sem unninn er úr beðmi sem fenginn er úr trjám. Tré vaxa þar sem jörð og vatn eru í góðu jafnvægi, en það er ekki víst að jafnvægis gæti alltaf þegar viðarvinnsla á sér stað. Mikilvægt er að skógar, sem aðrar auðlindir, séu sjálfbærir. Þá þarf að tryggja að náttúran líði ekki fyrir ræktunina. Gæta þarf þess t.d. að þrælkunarvinna sé ekki stunduð, starfsfólk njóti sannmælis, viðskiptin séu heiðarleg og laun allra séu sanngjörn. Óvottað innlent timbur stenst illa samkeppni Flestar vestrænar þjóðir stunda heiðarleg viðskipti. Til að votta heiðarleika við náttúru og menn eru til ýmsar aðferðir. Á Íslandi er mikið lagt upp úr því að timbur sé vottað við innflutning. Timbrið þarf að vera af viðeigandi gæðum og fengið úr ræktuðum skógi en ekki náttúruskógi frá Amazon eða öðrum ámóta svæðum. Allir sem koma að viðskiptum með timbur þurfa að hafa fengið viðeigandi laun fyrir sitt framlag. Eins og staðan er núna er timbur sem er framleitt á Íslandi ekki vottað. Óvottað innlent timbur stenst því illa samkeppni við sjálfbærnivottað innflutt timbur á markaðnum. Heimavaxið timbur verði samanburðarhæft Innlent timbur er afbragðs viður, ekki síðra en það erlenda. Tímamót eru fram undan í íslenskri skógrækt því það eru mörg sóknarfæri í viðarvinnslu á innlendum markaði. Á dögunum sneru helstu skógræktendur Íslands saman bökum og ætla að innleiða viðeigandi vinnubrögð hérlendis svo heimavaxið timbur verði samanburðarhæft samkvæmt sömu verðleikum og það erlenda. Þessir hagsmunaaðilar íslensks timburs eru Skógræktin, Skógræktarfélag Íslands, búgreinadeild skógarbænda Bændasamtaka Íslands og Trétækniráðgjöf. Úti um allan heim er stunduð rányrkja í skógum, tré eru felld í stórum stíl, timbrið fjarlægt og selt. Það væri eflaust forsíðufrétt ef bófar stunduðu rányrkju í íslenskum skógum. Við skulum vona að svo verði ekki, frekar að forsíðan prýði fallega vel hirtan skóg sem glatt hefur landsmenn og ræktaður var á sjálfbæra vísu. /HGS Innlent timbur er afbragðs viður, ekki síðra en það erlenda. Tímamót eru fram undan í íslenskri skógrækt því það eru mörg sóknarfæri í viðarvinnslu á innlendum markaði. Næsta blað kemur út 24. mars Vesturhrauni 3, Garðabæ | Austurvegi 69, Selfossi Til afhendingar strax Stærsti framleiðandi fjórhjóla í Evrópu MIKIÐ ÚRVAL FJÓRHJÓLA Á LAGER Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler Varahlu�r i VOLVO Vinnutæki Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson í síma 892 6000 / magnus@fasteignamidstodin.is Fasteignamiðstöðin er með til sölu lögbýlið Hvol 1 í Sveitarfélaginu Ölfusi. Fjórar íbúðir fyrir utan íbúðahúsið. Heitt og kalt vatn frá samveitu, ljósleiðari og þriggja fasa rafmagn. Varanlegt slitlag alla leið. Jörðin Hvoll 1 er samvkæmt Þjóðskrá Íslands 193.6 hektarar, umhverfis húsakostinn eru um 15 hektarar og hinn hlutinn fjalllendi. Umhverfi jarðarinnar er fallegt, talsverð trjárækt og þær fasteignir sem fylgja í góðri umhirðu. Heildarfermetrafjöldi fasteigna sem fylgir jörðinni eru um 500-520 m2. Fasteignir eru sem hér segir: a) Myndarlegt steinsteypt íbúðarhús, skráð 208 m2, en er að sögn seljanda 250-270 m2. b) Hesthús fyrir 7 hesta, um 80 m2 auk 25 m2 geymslulofts. c) 3ja herb. íbúð sem er sambyggð hesthúsi, en með sérinngang, um 70 m2. d) Þrjár stúdíóíbúðir, 25.7 m2, 21.5 m2 og 29.3 m2. Íbúðirnar hafa hver fyrir sig baðherbergi og eldhús. Samtals 76.5 m2 skráð sem gistihús. e) Lítið gróðurhús, garðhús og lítið hænsnahús. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 RÚÐUR Í DRÁTTARVÉLAR FRÁBÆR VERÐ John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.