Bændablaðið - 07.04.2022, Side 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202240
LÍF&STARF
Baldur Sæmundsson, áfangastjóri í Menntaskólanum í Kópavogi, heldur um stjórnvölinn í þeirri deild Menntaskólans í Kópavogi sem hýsir Hótel- og matvælaskólann. Hann er bjartsýnn á
framtíð matvælanáms í landinu, enda sé ört vaxandi eftirspurn eftir fólki sem aflar sér þekkingar í matvælagreinum og framreiðslustörfum. Myndir / Hörður Kristjánsson
Baldur Sæmundsson, áfanga
stjóri í Menntaskólanum í Kópa
vogi, þar sem Hótel og matvæla
skólinn er einnig til húsa, segir að
heimsfaraldur vegna Covid19
hafi haft veruleg áhrif á kennslu
í matvælanáminu í Hótel og
matvæla skólanum. Bókleg kennsla
lá að verulegu leyti niðri í stað
bund inni kennslu og var kennt
í gegnum tölvuforritið Teams.
Boðið var upp á verklega kennslu
staðbundið allan tímann með litlum
undantekningum.
„Starfsemin var ekki beint aflögð
meðan mesti faraldurinn gekk yfir,
heldur stýrðist það sem við gátum
gert af fjölda nemenda hverju sinni.
Þannig vorum við ekki með neina
kjötiðnaðarnemendur þennan tíma.
Nú eru hins vegar bjartari tímar og
uppsöfnuð þörf og fjöldi nemenda
sem við munum taka á móti næsta
haust,“ segir Baldur.
Lærði á Hótel Sögu
Baldur er vel þekktur í greinum
sem tengjast nú starfsemi Hótel- og
matvælaskólans. Hann lærði t.d.
bæði að verða kokkur og þjónn á
Hótel Sögu í gamla daga, en það
nám hóf hann 1979. Hann horfir
nú með vissum söknuði á þá þróun
sem orðið hefur þar sem hans gamli
vinnustaður er hættur starfsemi sem
hótel og er að fá nýtt hlutverk sem
háskólabygging.
„Þá úrbeinuðum við þegar mest
var að gera á hótelinu um hálft
tonn af lambakjöti eða lærum á
viku. Síðan færðist sú vinna meira
inn í kjötvinnslurnar, sem er ágætt
þótt það sé hluti af kokkanáminu
enn þá. Þetta er svo alltaf spurning
um hvar mörkin liggja, hvar í
ferlinu starfi kjötiðnaðarmannsins
lýkur og hvar kokkurinn tekur við.
Það verður gaman að takast á við
það í framtíðinni hvernig þessar
starfsstéttir þróast og hvort þær geta
ekki haft enn meiri samvinnu. Ég
held að meðal yngra fólks sé fullur
vilji fyrir því.“
Hótel- og matvælaskólinn undir
hatti Menntaskólans í Kópavogi
Hótel- og matvælaskólinn varð
til 1996 þegar Hótel- og veitinga-
skólinn flutti starfsemi sína í
Menntaskólann í Kópavogi. Deildir
bakara og kjötiðnaðarmanna voru
sömuleiðis fluttar úr Iðnskólanum
yfir í MK. Baldur segir að í dag heiti
þetta Hótel- og matvælaskólinn og
sé deild innan Menntaskólans í
Kópavogi.
Undir þeim hatti eru nú starf-
ræktar iðngreinarnar bakara iðn,
framreiðsla, kjötiðn, matreiðsla,
grunndeild matvæla- og ferða-
greina ásamt viðbótarnámi til
stúdentsprófs. Í fullorðinsfræðslu
er síðan boðið upp á meistaranám í
matvælagreinum, matsveinanám og
matartæknanám, en það hefur verið
í dreifnámi nú á vorönninni.
Ljóst er að við þennan flutning
matvælagreina yfir í MK hafa
forsvarsmenn skólans sýnt mikla
framsýni í uppsetningu á fullkomnu
kennslueldhúsi á fyrstu hæð
byggingarinnar sem og fullkominnar
kjötvinnsluaðstöðu í kjallara hússins
þar sem auðveldur samgangur
er á milli.
Iðngreinarnar hafa stutt vel
við bakið á deildinni
„Menn sýndu þarna mikla fram-
sýni,“ segir Baldur. „Við erum hér
með byggingu sem er orðin 26
ára gömul, en aðstaðan er enn til
fyrirmyndar. Það hefur vissulega
verið ráðist í endurbætur á eldhúsum
samkvæmt kröfum tímans. Þá hefur
Oddur Árnason, formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna (MFK),
sæmir Baldur Sæmundsson Gullmerki félagsins. Fyrir aftan þá stendur
Jón Þorsteinsson kjötiðnaðarmeistari.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Hótel- og matvælaskólinn fer á fullt skrið í haust með nám í kjötiðnaði eftir hægagang, m.a. vegna heimsfaraldurs:
Enn þá jafn gaman og þegar
ég var sextán ára
– segir Baldur Sæmundsson, áfangastjóri í MK, sem byrjaði að læra að vera kokkur og þjónn á Hótel Sögu fyrir 43 árum
Ragnar Wessman matreiðslumeistari, Baldur Sæmundsson veitingastjóri, Sveinbjörn Friðjónsson, yfirmaður
veitingasviðs, og Jónas Hvannberg aðstoðarhótelstjóri við vígslu breytinga á Grillinu á Hótel Sögu 1992. Mynd / Hótel Saga