Vísbending - 13.05.2021, Qupperneq 4
4 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
„Ég tók
aldrei neina
áhættu“
Davíð Helgason, einn stofnenda hugbúnaðarfyrirtækisins Unity, segir
frumkvöðla starfsemi í velferðarríki í raun og veru ekki áhættusama. Hann segist
ekki hafa átt um annað að velja en að fjárfesta sjálfur í sprotafyrirtækjum og stefnir
á að flytja hingað í sumar til að styðja við fyrirtæki sem vinna að lausnum gegn
loftslagsvandanum. Samkvæmt honum getur landið orðið að nokkurs konar
tilraunastofu fyrir framtíðina vegna hreinnar orkuframleiðslu.
Í nýjustu uppfærslu á lista tímaritsins Forbes yfir
auðugasta fólk heimsins má finna nýjan meðlim,
Íslendinginn Davíð Helgason. Viðbótin kom örugg-
lega mörgum á óvart hérlendis, þar sem ekki er hægt
að segja að nafn hans hafi verið á allra vörum síðustu árin.
Davíð er fæddur á Íslandi en hefur búið erlendis frá 10
ára aldri. Lengst af hefur hann búið í Kaupmannahöfn,
en þar stofnaði hann, ásamt viðskiptafélögum sínum,
tæknifyrirtækið Unity árið 2004. Fyrirtækið, sem þróar
hugbúnað sem notaður er til að búa til tölvuleiki, er að
öllum líkindum verðmætasta félag sem stofnað hefur verið
af Íslendingi, en það er metið á 29 milljarða Bandaríkja-
dali í kauphöllinni í New York. Það er fimmtungi meira
en landsframleiðsla Íslands í fyrra.
Vísbending náði tali af Davíð og spurði hann út í eigin
sögu, stöðu sprotafyrirtækja og áform hans um að flytja
aftur til Íslands.
ÓLUST UPP MEÐ TÖLVULEIKJUM
Davíð lærði að forrita þegar hann var ellefu ára. Hann
segist ekki hafa verið besti forritari í heimi, bara nokkuð
góður og að fikta í hinu og þessu. „Svo fór ég í háskóla
og reyndi að læra eitthvað, en datt svo út og byrjaði að
forrita fyrir aðra,“ bætir hann við. „Ég stofnaði líka nokkur
fyrirtæki eftir það, en þau urðu flest að engu.“
Hugmyndin að Unity kviknaði upp úr áformum hans
og vinar hans úr menntaskóla, Nicholas Francis, um að
þróa tölvuleik. Francis hafi síðan fundið þýskan strák,
Joachim Ante, sem var til í að vinna með þeim: „Okkur
langaði að spreyta okkur á tölvuleikjagerð, þar sem við
höfðum alist upp með tölvuleikjum og okkur fannst sá
miðill vera áhugaverður,“ segir Davíð. Saman stofnuðu
þeir leikjafyrirtækið Over the Edge Entertainment, sem
varð síðan að Unity.
„Við vorum með margar mismunandi hugmyndir
Ljósmynd: Saga Sig.