Vísbending - 13.05.2021, Page 8
8 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
COVID ÝTTI OKKUR HRAÐAR Í FRAMTÍÐINA
Talið berst að áhrifum heimsfaraldursins á tækni- og
sprotafyrirtæki, en þau virðast ekki hafa komið illa út
úr honum þrátt fyrir að hagkerfi heimsins hafi skroppið
töluvert saman á síðasta ári. Samkvæmt Davíð gæti það
verið tímasetningu faraldursins að þakka.
„Vitur maður sagði að það væri gott að COVID hefði
komið upp núna en ekki árið 1990. Núna er faktískt hægt
að eiga í samskiptum við fólk, skemmta sér, vera tengdur
við umheiminn og vera í sambandi við fjölskylduna sína
og vini,“ segir Davíð. „Það voru allar þessar tæknilausnir
sem hafa gert þetta kleift og kannski þess vegna sem
tæknifyrirtækin hafa spjarað sig ágætlega í gegnum alla
þessa tíð,“ bætir hann við.
Aðspurður hvort hann haldi að tækniþekking hafi
aukist með fjarfundarvæðingunni sem fylgdi faraldrinum
telur hann svo vera, en hann segir þó að hún hefði hvort
sem er aukist með tímanum: „Ég held að heimurinn hafi
verið að færast í þessa átt, þetta er ekkert nýtt. Hins vegar
held ég að COVID hafi ýtt okkur hraðar í framtíðina
en annars.“
Á LEIÐ TIL ÍSLANDS Í SUMAR
Í síðasta mánuði greindi svo Viðskiptablaðið frá því að
Davíð ynni að stofnun nýs fjárfestingasjóðs með bróður
sínum, Ara Helgasyni. Aðspurður um sjóðinn segir Davíð
að enn sé margt óútfært í þeim efnum, þeir séu enn að
koma undir sig fótunum og finna út hvernig þeir vilji
beita sér þar.
Þó segir hann að áformin séu meira en bara vangaveltur.
Meiri upplýsingar muni svo koma í ljós þegar nær dregur.
Hann segist vera heppinn með að vinna með bróður
sínum, sem vann áður hjá evrópska fjárfestingarsjóðnum
Index Ventures. Að mati Davíðs er Ari einn af bestu
tæknifjárfestum í Evrópu.
HÆGT AÐ GERA GÓÐA
HLUTI Á ÍSLANDI
Davíð segir margt gera Ísland að álitlegum fjárfestingar-
kosti, þar sem hér sé fullt af hugviti og nóg af fólki að gera
áhugaverða hluti. „Það er líka
fínn áhugi á fyrirtækjum sem
tengjast loftslagsbreytingum
og við höfum verið að tala við
nokkur þeirra um það,“ bætir
hann við.
„Ísland er auðvitað sérstakt
land að því leyti að rafmagnið
er nokkurn veginn búið til
án þess að losa kolefni, svo
ég held að landið geti orðið
einhvers konar tilraunasetur
fyrir framtíðina,“ segir hann
einnig. Hér sé hægt að prófa
hvernig heimurinn verður, þar
sem önnur lönd stefna einnig
á jafnhreina orkuframleiðslu.
„Ég held að það sé fullt af
fólki sem vill koma til Íslands og vinna þar,“ segir Davíð
og bætir við að hann og bróðir hans vilji fá gott fólk með
sér hingað til lands, bæði Íslendinga og útlendinga, til að
vinna í umhverfismálum.
Samkvæmt Davíð er Ísland með fjölbreytt hugvit til
að takast á við þessi verkefni: „Það er náttúrulega ekki
rosalega mikið af fólki hérna, en það er bara eins og það
er. Ef þú blandar góðu „lókal talenti“ við útlenska snillinga
þá held ég að það sé hægt að gera góða hluti.“
Ljósmynd: Úr einkasafni.
Ljósmynd: Bára Huld Beck