Vísbending - 13.05.2021, Page 14
14 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
UM AUÐLINDARENTU
OG VERÐMÆTASKÖPUN
1 Sjá https://www�ferdamalastofa�is/static/files/ferdamalastofa/Frettamyndir/2020/januar/rekstur-og-efnahagur-i-ferdathjonustu�pdf�
Nú eru að verða straumhvörf í efnahagslífi þegar
bólusetning landsmanna gerir mögulegt að
opna landamæri og vekja ferðaþjónustu aftur
til lífs. Ekki er þó víst hversu mikill vilji sé
til ferðalaga meðal annarra þjóða en ekki þarf þó marga
til þess að eftirspurn og atvinna vaxi hér á landi.
Í þeirri ládeyðu sem hér hefur verið undanfarið ár
hefði verið hægt að koma skipulagi á ferðaþjónustu svo
að hún ofrísi ekki eins og gerðist árin fyrir COVID-19.
Þegar hafði hægt á vexti hennar árið 2019 og töluvert
atvinnuleysi myndast (um 10 þúsund atvinnulausir eða
um 5% af mannafla). Það er því næsta víst að án far-
sóttarinnar hefði ferðaþjónusta haldið áfram að gefa
eftir vegna hás innlends launakostnaðar sem hlutfalls
af rekstrartekjum1. Fall flugfélagsins WOW árið 2019
varð til þess að erlendum ferðamönnum fækkaði um ein
14% frá árinu 2018. Við þetta bættist gengisstyrking
krónunnar frá 2016 til 2018 sem kom niður á arðsemi
fyrirtækja í greininni.
YTRI ÁHRIF Í SJÁVARÚTVEGI
OG FERÐAÞJÓNUSTU
Á síðustu árum hefur hagkerfið fengið að líða fyrir skort
á skipulagi í ferðaþjónustu. Í ferðaþjónustu eins og í
sjávar útvegi eru neikvæð ytri áhrif. Einn togari til viðbótar
minnkar afla hinna sem fyrir eru og einn ferðamaður til
viðbótar eykur við mannþröng á vinsælum ferðamanna-
stöðum. En í sjávarútvegi var fyrir áratugum tekið upp
kerfi framseljanlegra kvóta sem eykur hagkvæmni í grein-
inni, þótt tekjuskiptingaráhrif séu umdeild, með því að
hver sá sem vill veiða fisk þarf að kaupa kvóta af öðrum.
Í ferðaþjónustu er ekkert slíkt kerfi.
Afleiðingar af stjórnlausum vexti ferðaþjónustu árin
fyrir komu COVID-19 eru flestum ljós. Ör fjölgun
erlendra ferðamanna hafði í för með sér að upplifun
ferðamanna á vinsælustu ferðamannastöðunum var ekki
sú sama. Sömuleiðis hækkaði gengi krónunnar vegna þess
hversu miklum gjaldeyri var skipt í krónur sem minnk-
aði hagnað fyrirtækja í ferðaþjónustu og einnig í öðrum
útflutningsgreinum. Þetta voru ruðningsáhrif í gegnum
gengi krónunnar. Ýmis önnur ytri áhrif komu í ljós. T.d.
varð slit á vegum meira og einhver kostnaður lagðist á
ríkið þegar erlendir ferðamenn þurftu á læknisþjónustu
að halda.
HVERNIG VÆRI HÆGT AÐ GERA
FERÐAÞJÓNUSTU HAGKVÆMARI?
Ýmsar leiðir eru færar til þess að hámarka hagkvæmni í
ferðaþjónustu. Allar fela það í sér að hver rekstraraðili
taki tillit til þess ytra óhagræðis sem hann veldur öðrum
fyrirtækjum í greininni og einnig í öðrum útflutnings-
greinum.
Ein leið líkist kvótakerfinu í sjávarútvegi þar sem
ákveðið er fyrirfram hversu margir ferðamenn megi koma
til landsins á ári hverju og síðan gangi kvótar kaupum og
sölum á milli flugfélaga. Ef nýtt flugfélag vill fljúga með
ferðamenn til landsins þá þarf það að kaupa réttinn af
þeim sem þegar fljúga með ferðamenn.
Önnur leið felst í því að leggja á gistináttaskatt sem þá
rennur í ríkissjóð sem getur notað tekjurnar til þess að
viðhalda vegum og byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn.
Þessi leið líkist mest veiðgjaldaleiðinni í sjávarútvegi.
Þriðja leiðin felst í því að leggja á lendingargjöld á
Keflavíkurflugvelli sem séu ákveðin með það í huga að
GYLFI ZOEGA
hagfræðingur