Læknablaðið - 01.01.2022, Side 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 9
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Gunnar Thorarensen
svæfinga- og gjörgæslu-
læknir á Landspítala,
í ritstjórn Læknablaðsins
gunnarth@landspitali.is
Ísland er eina Norðurlandaþjóðin
sem ekki hefur innleitt sérstaka
löggjöf um refsiábyrgð starfsfólks
í heilbrigðisþjónustu vegna
alvarlegra atvika. Þetta er með
öllu úr takti við tímann.
doi 10.17992/lbl.2022.01.669
Læknar starfa alla daga í samræmi við vísindalega
þekkingu sína, reynslu og þjálfun með hagsmuni
sjúklinga sinna að leiðarljósi. Þessum grundvallar-
forsendum er fylgt eftir með margs konar hætti.
Sérfræðiþjálfun og símenntun lækna fá um þessar
mundir verðskuldaða athygli og aðhald, siðareglur
lækna stuðla að heilindum og góðu siðferði í læknis-
starfinu en ekki síst þá gilda lög og reglur um störf
lækna í hvívetna. Löggjöf um störf lækna og annars
heilbrigðisstarfsfólks hefur þann skýra og mikil-
væga tilgang að vernda réttindi sjúklinga og tryggja
að þeir hljóti viðeigandi meðferð og að hún sé veitt
af til þess hæfu fagfólki. Lög og reglur þurfa jafn-
framt að skapa skýran ramma utan um þessi störf og
tryggja öryggi lækna og annarra heilbrigðisstétta til
þess að geta starfað faglega og af heilindum, án þess
að um störf þeirra ríki réttarfarsleg óvissa, ekki síst í
ljósi þess að velflestum meðferðum og rannsóknum
læknisfræðinnar fylgja þekktar áhættur.
Fjöldi raunverulegra atvika hafa því miður af-
hjúpað að slík óvissa er sannarlega til staðar. Um
alvarleg atvik sem upp koma við veitingu heilbrigð-
isþjónustu gilda skýrar reglur um tilkynninga-
skyldu til landlæknis og lögreglu, eftir því sem við
á. Í kjölfar slíkra tilkynninga tekur hins vegar við
flókinn og óskýr farvegur þar sem alvarleg atvik eru
jafnvel rannsökuð samtímis af tveimur mismunandi
aðilum, samhliða rótargreiningu heilbrigðisstofn-
unar. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem ekki
hefur innleitt sérstaka löggjöf um refsiábyrgð starfs-
fólks í heilbrigðisþjónustu vegna alvarlegra atvika.
Þetta er með öllu úr takti við tímann. Starfshópur,
skipaður af fyrrum heilbrigðisráðherra, skilaði skýr-
slu árið 2015 um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu.
Þar voru kynntar skýrar tillögur um nauðsynlegar
breytingar á verklagi og lagaumhverfi til að tryggja
bætt öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna
og tekið mið af löggjöf annarra Norðurlanda, sem
og annarri sambærilegri rannsóknavinnu, svo sem
vinnu rannsóknanefndar samgönguslysa. Engar
þessara umbóta hafa enn orðið að veruleika. Áfram
starfa læknar og aðrar heilbrigðisstéttir við það
mikla óöryggi sem fylgir langdregnu og ófullkomnu
rannsóknaferli alvarlegra atvika. Gildandi vinnulag
veldur skaðlegu álagi á þá heilbrigðisstarfsmenn
Úr takti við tímann
sem í hlut eiga og gerir ekkert til að tryggja öryggi
sjúklinga eða bæta verkferla stofnana.
Ljóst er að hagsmunir sjúklinga eru undir en ekki
síður hagsmunir heilbrigðisstarfsfólks. Bætt verklag
við úrvinnslu tilkynninga og skýrari löggjöf myndi
því tryggja bætt öryggi allra aðila og væri allra hag-
ur. Núverandi lagaumhverfi í því ástandi sem ríkir
víða, þar sem langvinn undirmönnun er í algleym-
ingi, er darraðardans sem heilbrigðisstarfsfólki er
boðið upp í við störf sín. Á aðalfundi Læknafélags
Íslands á dögunum var samþykkt ályktun þar sem
kallað er eftir umbótum sem tryggi réttarstöðu heil-
brigðisstarfsfólks þegar um er að ræða kerfislæg
atvik og er vonandi að sá svari kallinu er rennur
blóðið til skyldunnar.
Ótal þættir hafa áhrif á lækna við störf sín.
Margir þeirra eru vel skilgreindir, svo
sem umrædd lög og reglur. Aðrir eru
minna skilgreindir en ekki síður mikil-
vægur mælikvarði á störf lækna og þá
þjónustu sem sjúklingum er veitt. Þess-
ir þættir vega sífellt þyngra, svo sem
lýsingar sjúklinga á samfélagsmiðlum
og fréttaflutningur í heilbrigðismálum
sem og öðrum málum samfélagsins.
Allt gefur þetta lækninum tækifæri til
að sjá áhrif starfa sinna speglast í við-
brögðum skjólstæðinga sinna og getur
verið til mikils gagns, aðhalds og verið verkfæri til
umbóta. Í þessari breyttu heimsmynd sem tæknin
færir okkur felast jafnframt einhver mestu kynslóða-
skipti mannkynssögunnar. Persónulegum reynslu-
sögum er hiklaust deilt áfram og hefur þetta mikil
áhrif á samfélagsumræðu og fréttaflutning. Þessu
hefur fylgt mikilvægt frelsi og umbætur fyrir samfé-
lagið í heild. Spurningin um þagnarskylduna verður
hins vegar áleitin í því formi sem hún hefur verið
fram til þessa. Löggjöf um þagnarskylduna útskýrir
að hana skuli ekki brjóta „nema brýna nauðsyn beri
til“. Telst það til brýnna nauðsynja að viðhalda tiltrú
á læknavísindin ef leiðréttar eru rangfærslur í frá-
sögn, þar sem sjúklingur hefur sjálfur kosið að rjúfa
þá þögn sem ríkir í sambandi læknis og sjúklings? Ef
til vill þolir löggjöf um þagnarskyldu einnig endur-
skoðun ef hún er ekki síður úr takti við tímann.
Gunnar Thorarensen
MD, anesthesiologist and
intensive care physician
Making medicolegal
framework useful