Læknablaðið - 01.01.2022, Page 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 35
„Það er ekki flóknara en það að spítalinn er
sprunginn,“ segir Mikael Smári Mikaelsson,
yfirlæknir bráðalækninga á Landspítala.
Ekki hafa fleiri dvalið sólarhring eða
lengur á bráðamóttökunni en nú í nóv-
ember, miðað við síðustu 12 mánuði,
samkvæmt tölum Landspítala. 377 dvöldu
þá lengur en sólarhring en 111 þeirra voru
útskrifaðir án innlagnar. Alls sóttu 6,3%
fleiri bráðamóttökuna í nóvember í ár en í
fyrra, samtals 2697. Tvö ár eru nú í janúar
síðan Már Kristjánsson lýsti því í Lækna-
blaðinu að stórslys væri í aðsigi vegna
stöðu deildarinnar.
„Spítalinn er yfirfullur og hefur keyrt á
hámarksnýtingu rúma og rúmlega það nú
í haust,“ segir Mikael Smári.
„Spítalinn er sprunginn“
Þekkja orðið ekkert betra
„Þetta er orðið þannig að við þekkjum
ekkert betra. Það er stórvandamál því
erfitt er að fara í eðlilegt ástand þegar það
hefur verið svona lengi óeðlilegt. Við höf-
um rekið legudeild innan um bráðasjúk-
linga með breyttum hraða og tempói sem
er algjör meinsemd í bráðalæknisfræði,“
lýsir Mikael Smári.
Staða bráðamóttökunnar hefur verið í
brennidepli síðustu ár. Heilbrigðisráðu-
neytið kynnti tillögur átakshóps þess í
febrúar 2020 til lausnar en vandinn er enn
óleystur. Mikael segir fólk vonlaust um að
staðan lagist nokkurn tímann.
„Ég vona að ástandið eigi eftir að batna
og leysast. Spítalinn fái fleiri rúm og
„Erum við að brjóta hegningarlög á
bráðamóttökunni?“ spyr Bergur Stef-
ánsson, formaður Félags bráðalækna, og
horfir til 220. og 221. greina almennra
hegningarlaga um að koma fólki í neyð
til bjargar. Deildin sé svo yfirfull að það
takist ekki. Við brotinu liggi allt að 8 ára
fangelsisdómur.
„Landlæknir ætti að fylgja því betur
eftir þegar stofnanir hunsa fyrirmæli
hans ítrekað. Embætti landlæknis er
máttlaust þegar mannslífum er vísvit-
andi stefnt í hættu,“ segir Bergur um þá
stöðu að ekki hafi verið brugðist við ít-
rekuðum athugasemdum landlæknis.
„Persónuvernd er brotin alla daga,“
segir hann. „Við afklæðum fólk fyrir
framan aðra. Tökum persónulegar sögur
í heyranda hljóði. Allt um hægðir, kynlíf
og hjónabandið. Ég tel að við fáum ekki
raunsanna mynd af lífi fólks við þess-
ar aðstæður og það getur haft áhrif á
batann,“ segir hann.
„Á hverjum einasta degi er öryggi
sjúklinga stefnt í hættu. Þá skiptir ekki
máli hvort um er að ræða börn, gamal-
menni, bílslys eða hjartaáföll,“ segir hann
og sparar ekki stóru orðin.
Læknar sem hafi menntað sig í bráða-
lækningum staldri stutt við í aðstæðum
sem þessum. Hrun sé í sérfræðingahópn-
um. Flóttinn sé merki um að eitthvað
mjög alvarlegt sé að.
„Við lifum við þá tálsýn að halda að
við eigum gott heilbrigðiskerfi. Við telj-
um okkur vera á skandinavískum stalli,
eða norður-evrópskum. Við erum það
alls ekki.“
elliheimili opni. Við krossum fingur og
vitum að það er unnið að málinu. Á sama
tíma vex vandinn. Fólk reynir sitt besta en
einhvern veginn halda verkin ekki í við
vandann. Þetta er hrikalegt,“ segir hann.
Þótt staðan hafi verið afar slæm í nóv-
ember hingað til var október aðeins rétt
skárri. Þá dvöldu 368 í sólarhring eða
lengur. 120 voru útskrifaðir eftir svo langa
dvöl án innlagnar. Fyrir ári, í nóvember
2020, var staðan allt önnur. Þá biðu 186
svo lengi og 42 voru útskrifaðir eftir það.
Hafði trú á að vandinn leystist
Mikael segir að hann hafi haft meiri trú á
að vandinn leystist þegar hann hóf störf
sem yfirlæknir í aprílbyrjun. „Einkaaðilar
og ríkið voru í samningaviðræðum um að
opna ný pláss, loforð voru gefin í góðri trú
en því miður gekk það ekki eftir. Plássin
skiluðu sér ekki,“ segir Mikael.
„Auðvitað hélt ég að við myndum ná
meiri árangri og hraðar,“ segir hann. „En
ég varð því miður að breyta hugmyndinni
um að knýja hluti fram á vikum og
mánuðum og hugsa frekar í misserum og
árum; plana til lengri tíma,“ segir hann.
„Flest úrræði sem grípa þarf til eru
utan míns valdsviðs. Þegar upp er staðið
er hlutverkið að veita eins góða þjónustu
og hægt er með þeim úrræðum sem úr er
að moða. Það er verk okkar á bráðamót-
tökunni. Svo bíðum við og vonum að þeir
sem valdið hafa breyti stöðunni,“ segir
hann.
„Við gerum eins vel og við getum en
ekki eins vel og við viljum. Við höfum
staðið af okkur storma og ætlum líka að
gera það núna.“
„Við gerum eins og vel og við getum en ekki eins vel og við viljum,“
segir yfirlæknir bráðamóttökunnar á Landspítala
Met var slegið í fjölda inniliggjandi á bráðamóttökunni
í nóvember miðað við síðustu 12 mánuði. Spítalinn er
sprunginn segir yfirlæknir. Mynd/gag
Hegningarlög brotin á bráðamóttökunni?