Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 44
104 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 B R É F T I L B L A Ð S I N S Á Landspítala hefur ríkt langvarandi skort- ur á legurýmum sem hefur orðið sérlega áþreifanlegur í viðureigninni við kórónu- veirufaraldurinn. Markmið þessa bréfs er að varpa ljósi á þetta og velta upp þeirri spurningu hvort nýbyggingar Landspítala við Hringbraut muni leysa vandann. Ísland í samanburði við Evrópulönd Síðastliðna tvo áratugi hafa orðið verulegar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar.1 Íbúum 60 ára og eldri hefur fjölgað mikið frá 2010 og er sú fjölgun hlutfallslega mun meiri en á hinum Norðurlöndunum.2 Skipulag heilbrigðisþjónustu á Íslandi hefur ekki tekið nægilegt tillit þessarar þróunar sem mun halda áfram næstu áratugi. Árið 2019 var meðalfjöldi legurýma á hverja 1000 íbúa á Íslandi 28% lægri en meðaltal 11 Vestur-Evrópulanda (tafla I).3,4 Ef fjöldi legurýma á Íslandi væri sambærilegur við hin Norðurlöndin og aðrar þjóðir í Vestur- Evrópu þyrftu að vera 1400 sjúkrarúm á Íslandi, sem hefði í för með sér fjölgun um 390 (tafla I). Þjóðarsjúkrahúsið Landspítali hefur það veigamikla hlutverk að veita íbúum höfuð- borgarsvæðisins almenna þjónustu og svo öllum landsmönnum sérhæfða þjónustu. Fjöldi legurýma á 1000 íbúa er töluvert lægri á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% landsmanna búa, en utan þess.3 Þetta kemur á óvart því þessu er jafnan öfugt farið annars staðar. Í nýlegri úttekt OECD voru undantekningarlaust fleiri legurými á hverja 1000 íbúa á þéttbýlli svæðum en í Framtíð sjúkrahúsþjónustu á Stór-Reykjavíkursvæðinu: Verður nýi meðferðarkjarninn skammgóður vermir? Elías Sæbjörn Eyþórsson læknir og PhD, sérnámslæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, Landspítala Elísabet Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og MS, verkefnastjóri, hagdeild Landspítala Kristlaug Helga Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur/hagfræðingur og MS, verkefnastjóri, hagdeild Landspítala Runólfur Pálsson læknir, settur framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala; prófessor, læknadeild Háskóla Íslands dreifðari byggðum.5 Hlutdeild íbúa 60 ára og eldri er einungis 9,3% hærri á lands- byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu og getur það því ekki skýrt þennan mun.1 Það er því ljóst að verulegur skortur er á legu- rými hér á landi og hlutfallslega mestur á höfuðborgarsvæðinu. Færir nýi Landspítalinn okkur næg sjúkrarúm? Margir vænta þess að uppbygging Landspítala við Hringbraut muni leysa margvísleg vandamál sjúkrahússins, ekki síst skort á legurýmum. Ljóst er að hinn langþráði meðferðarkjarni mun leiða til byltingar hvað snertir aðstöðu fyrir sjúk- linga og vinnuumhverfi. Á hinn bóginn mun meðferðarkjarninn ekki leysa skort á legurýmum ef núverandi fyrirætlanir ganga eftir. Gert er ráð fyrir 209 bráðasjúkrarúm- um og 23 gjörgæslurúmum. Þótt þessi rými bætist við núverandi rúmafjölda mun það ekki nægja til að jafna þau 398 sjúkrarúm sem vantar, sé horft til meðaltals annarra þjóða í Vestur-Evrópu. Höfundar hafa áður komist að þeirri niðurstöðu að miðað við núverandi stöðu þyrfti að fjölga legurýmum að lágmarki um 100 til að mæta aðkallandi bráðaþörf spítalans.6 Æskilegt er að setja markið hærra og tryggja sambærilegt að- gengi að sjúkrarúmum og í öðrum löndum Vestur-Evrópu. Yfirlýst markmið byggingar nýs Landspítala við Hringbraut er að sameina alla starfsemi sjúkrahússins á einum stað. Samkvæmt núverandi stefnu er gert ráð Tafla I. Fjöldi sjúkrarúma á Íslandi í samanburði við 11 lönd í Vestur-Evrópu árið 2019.* Miðað við núverandi dreifingu legurýma† Miðað við jafna dreifingu legurýma‡ Fjöldi legurýma Legurými á 1000 íbúa Reiknuð þörf fyrir legurými Legurými sem skortir Reiknuð þörf fyrir legurými Legurými sem skortir Ísland alls 1009 2,82 1399 390 1399 390 Höfuðborgarsvæðið (Landspítali) 627 2,18 869 242 1025 398 Landsbyggðin (aðrar sjúkrastofnanir en Landspítali) 382 4,04§ 530 148 374 -8 *Meðalfjöldi legurýma í Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, Írlandi, Lúxemborg, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi árið 2019 var 3,95 legurými á 1000 íbúa. §Legurými utan höfuðborgarsvæðisins ásamt meðalfjölda legurýma sem nýtt eru á Landspítala af einstaklingum með lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins. †Uppreiknað miðað fjölda legurýma í Vestur-Evrópu þannig að hlutfallsleg skipting legurýma á 1000 íbúa á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni yrði sú sama og var árið 2019. ‡Uppreiknað miðað við fjölda legurýma í Vestur-Evrópu þannig að aðgengi að legurýmum á 1000 íbúa yrði jafnt fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. fyrir að starfsemi Landspítala í Fossvogi (172 legurými) hætti en nýting Landakots (80 rúm) og Vífilsstaða (44 rúm) er enn óljós. Legurýmum mun því aðeins fjölga um 37 við opnun nýja meðferðarkjarnans þó að legurými Landakots og Vífilsstaða verði áfram í notkun. Loks ber að hafa í huga að þótt byggingarnar í Fossvogi verði nýttar áfram er enn ósvarað hvernig eigi að manna öll 209 viðbótarrúmin þar sem á síðustu árum hefur endurtekið þurft að loka rúm- um vegna skorts á starfsfólki. Brýn þörf fyrir fleiri sjúkrarúm og starfsfólk Umræðan um legurýmisskort á Landspít- ala hefur lengi verið á villigötum. Margir telja að lausn þessa brýna vanda felist í byggingu nýrra hjúkrunarheimila og nýja meðferðarkjarnanum við Hringbraut. Aðrir telja að auka þurfi verulega flæði sjúklinga og framleiðni spítalans. En þrátt fyrir mikilvægi þessara þátta sitja eftir tvö vandamál sem bregðast þarf við. Annars vegar eru sjúkrarúm á Landspítala alltof fá miðað við íbúafjölda og hins vegar skortir starfsfólk til þess að hægt verði að manna þau sjúkrarúm sem þörf er á. Verði ekkert að gert er fyrirsjáanlegt að áfram muni syrta í álinn á komandi árum vegna enn frekari fjölgunar aldraðra. Nauðsynlegt er að brugðist verði við þessari alvarlegu stöðu þjóðarsjúkrahússins án tafar. Þörf er fyrir sameiginlegt átak stjórnvalda, stjórn- enda og starfsfólks spítalans. Heimildir eru á laeknabladid.is

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.