Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 103 Belgíu og þar áður til Bretlands. „Tíðar flugsamgöngur til Svíþjóðar og styttri vegalengdir hjálpa þessum konum,“ segir hún og að konur héðan hafi einnig komið út þegar hún var ytra. „En eftir að ég kom heim hafa tengslin styrkst enn frekar.“ Samstarf Landspítala og Karólínska sé hluti af norrænu samstarfi. Meira sjálfstæði í starfi hér Hún segir að kostir og gallar fylgi bæði Landspítala og Karólínska Solna. „Það er mikill kostur hér á Landspítala hvað boð- leiðir eru stuttar og ríkulegt samstarf við aðra kollega við fósturgreiningar,“ segir hún og nefnir til að mynda bæði barna- hjartalækna og erfðalækna. Samstarf grein anna sé lykill að aukinni þekkingu. „Framfarir í fósturgreiningu hafa orðið miklar, sem heillaði mig þegar ég ákvað að velja fagið,“ segir hún. „En það sem heillar mig helst við það er að ég geng aldrei að neinu vísu. Núna er ég að fara á vakt og veit ekki hvað bíður mín,“ segir hún þar sem við sitjum á kaffistofunni á kvennadeildinni við Hringbraut. „Starfið er fjölbreytt og með því að snúa heim fæ ég að taka á móti börnum en hefði lík- legast þróast meira alfarið í átt að fóstur- greiningum í Svíþjóð,“ segir hún. „Það hjálpaði við ákvörðunin að koma heim. Mig langaði ekki að sleppa takinu af fæðingunum,“ segir hún. „Ég nýt fjöl- breytileikans auk þess sem hér á landi er auðveldara að fylgja sjúklingnum eftir. Hér finnst mér ég hafa meiri stjórn á því hvernig ég skipulegg vinnuna mína.“ Hún sé einnig mjög ánægð með samstarfsfólkið og kostur að hér sé fólk menntað víða um heim. „Það verða því góðar umræður og gott að fá stuðning við ákvarðanir sínar.“ Mygla og COVID hafa áhrif Berglind kom heim í miðjum COVID-far- aldrinum. Hún hlakkar til að sjá deildina hér heima starfa án stöðugrar ógnar frá veirunni. Hún segir þó einnig annan vágest hafa truflað starfsemi fósturgrein- ingarinnar: mygla. Nú hefur sónardeildin flutt af kvennadeildinni í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð en myglan hefur snert fjölda starfsmanna og fólk hætt vegna vinnuaðstæðna. „Það flækir starfsemina að vinna á Berglind Þóra Árnadóttir nýtir reynslu sína af Karólínska Solna til að hjálpa konum í hááhættu á meðgöngu. Fjölbreytileikinn í starfi sé meiri hér en í Svíþjóð en þar hafi sérhæfingin nýst til hlítar. Mynd/gag fleiri en einum stað. Starfsfólk sónar- og fæðingadeildar vinnur náið saman. Helst þyrfti læknir að vera daglega á fóstur- greiningardeildinni en við erum ekki mönnuð til þess. Eins og staðan er núna vinna þrír læknar að fósturgreiningum og álagið kemur í bylgjum,“ segir hún. „Við vinnum því að því að straumlínu- laga starfsemina betur og laga að þessum breytta veruleika þannig að sem best sé haldið utan um konurnar.“ COVID hafi haft víðtæk áhrif á starfsemina. „Tilfella- fundir og annað þvíumlíkt hefur setið á hakanum. Það er svo mikilvægt fyrir svona litla einingu að halda í við það sem er að gerast og hitta þá sem við störfum með til að stuðla að framþróun í starf- seminni,“ segir hún. „Við höfum öll beðið eftir því að þessu ástandi ljúki en nú er kannski svo komið að við þurfum að laga okkur endanlega að breyttum veruleika,“ segir hún. Lífið í fastar skorður Berglind og maður hennar, Þorsteinn Ástráðsson, byrjuðu sérnám sitt í lækn- ingum í Falun í Dölunum í Svíþjóð. „Það er yndislegur fjölskyldustaður,“ segir hún. „Við fengum fljótt leikskólapláss fyrir drenginn okkar og leikskólakennararnir urðu nánir okkur og hjálpuðu mér að læra sænsku. Lífið var einfalt og gott. Svo flæktist það með fleiri börnum,“ segir hún og hlær en nú eru þau þrjú. „Það er krefjandi að vera einn úti án stórfjölskyldunnar,“ segir hún og lýsir því hvernig læknar séu undirbúnir fyr- ir að fara út í sérnám. „Mér fannst því ekki erfitt að flytja út. Í minningunni var miklu erfiðara að flytja aftur heim.“ Margt þurfi að ganga upp hjá stórri fjölskyldu. Þau séu nú ánægð hér og hún ekki aðeins komin á kaf í vinnu heldur einnig tennis og aðra afþreyingu sem hún stundaði ytra. En eru þau þá alkomin heim? „Við lögðum áherslu á að við værum ekki endilega alkomin þótt við kæmum aftur heim,“ segir Berglind. „Við erum hér núna en hver veit hvað gerist seinna. Það hjálpar manni við að aðlagast aftur enda erfitt að hugsa til þess að vera kominn á endastöð þótt maður sé kominn heim.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.