Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 103
Belgíu og þar áður til Bretlands. „Tíðar
flugsamgöngur til Svíþjóðar og styttri
vegalengdir hjálpa þessum konum,“ segir
hún og að konur héðan hafi einnig komið
út þegar hún var ytra. „En eftir að ég kom
heim hafa tengslin styrkst enn frekar.“
Samstarf Landspítala og Karólínska sé
hluti af norrænu samstarfi.
Meira sjálfstæði í starfi hér
Hún segir að kostir og gallar fylgi bæði
Landspítala og Karólínska Solna. „Það er
mikill kostur hér á Landspítala hvað boð-
leiðir eru stuttar og ríkulegt samstarf við
aðra kollega við fósturgreiningar,“ segir
hún og nefnir til að mynda bæði barna-
hjartalækna og erfðalækna. Samstarf
grein anna sé lykill að aukinni þekkingu.
„Framfarir í fósturgreiningu hafa orðið
miklar, sem heillaði mig þegar ég ákvað
að velja fagið,“ segir hún. „En það sem
heillar mig helst við það er að ég geng
aldrei að neinu vísu. Núna er ég að fara á
vakt og veit ekki hvað bíður mín,“ segir
hún þar sem við sitjum á kaffistofunni á
kvennadeildinni við Hringbraut. „Starfið
er fjölbreytt og með því að snúa heim fæ
ég að taka á móti börnum en hefði lík-
legast þróast meira alfarið í átt að fóstur-
greiningum í Svíþjóð,“ segir hún.
„Það hjálpaði við ákvörðunin að koma
heim. Mig langaði ekki að sleppa takinu
af fæðingunum,“ segir hún. „Ég nýt fjöl-
breytileikans auk þess sem hér á landi er
auðveldara að fylgja sjúklingnum eftir.
Hér finnst mér ég hafa meiri stjórn á því
hvernig ég skipulegg vinnuna mína.“ Hún
sé einnig mjög ánægð með samstarfsfólkið
og kostur að hér sé fólk menntað víða um
heim. „Það verða því góðar umræður og
gott að fá stuðning við ákvarðanir sínar.“
Mygla og COVID hafa áhrif
Berglind kom heim í miðjum COVID-far-
aldrinum. Hún hlakkar til að sjá deildina
hér heima starfa án stöðugrar ógnar frá
veirunni. Hún segir þó einnig annan
vágest hafa truflað starfsemi fósturgrein-
ingarinnar: mygla. Nú hefur sónardeildin
flutt af kvennadeildinni í húsnæði
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð en
myglan hefur snert fjölda starfsmanna og
fólk hætt vegna vinnuaðstæðna.
„Það flækir starfsemina að vinna á
Berglind Þóra Árnadóttir nýtir reynslu sína af
Karólínska Solna til að hjálpa konum í hááhættu á
meðgöngu. Fjölbreytileikinn í starfi sé meiri hér en í
Svíþjóð en þar hafi sérhæfingin nýst til hlítar. Mynd/gag
fleiri en einum stað. Starfsfólk sónar- og
fæðingadeildar vinnur náið saman. Helst
þyrfti læknir að vera daglega á fóstur-
greiningardeildinni en við erum ekki
mönnuð til þess. Eins og staðan er núna
vinna þrír læknar að fósturgreiningum og
álagið kemur í bylgjum,“ segir hún.
„Við vinnum því að því að straumlínu-
laga starfsemina betur og laga að þessum
breytta veruleika þannig að sem best sé
haldið utan um konurnar.“ COVID hafi
haft víðtæk áhrif á starfsemina. „Tilfella-
fundir og annað þvíumlíkt hefur setið
á hakanum. Það er svo mikilvægt fyrir
svona litla einingu að halda í við það sem
er að gerast og hitta þá sem við störfum
með til að stuðla að framþróun í starf-
seminni,“ segir hún.
„Við höfum öll beðið eftir því að þessu
ástandi ljúki en nú er kannski svo komið
að við þurfum að laga okkur endanlega að
breyttum veruleika,“ segir hún.
Lífið í fastar skorður
Berglind og maður hennar, Þorsteinn
Ástráðsson, byrjuðu sérnám sitt í lækn-
ingum í Falun í Dölunum í Svíþjóð. „Það
er yndislegur fjölskyldustaður,“ segir hún.
„Við fengum fljótt leikskólapláss fyrir
drenginn okkar og leikskólakennararnir
urðu nánir okkur og hjálpuðu mér að
læra sænsku. Lífið var einfalt og gott. Svo
flæktist það með fleiri börnum,“ segir hún
og hlær en nú eru þau þrjú.
„Það er krefjandi að vera einn úti án
stórfjölskyldunnar,“ segir hún og lýsir
því hvernig læknar séu undirbúnir fyr-
ir að fara út í sérnám. „Mér fannst því
ekki erfitt að flytja út. Í minningunni var
miklu erfiðara að flytja aftur heim.“ Margt
þurfi að ganga upp hjá stórri fjölskyldu.
Þau séu nú ánægð hér og hún ekki aðeins
komin á kaf í vinnu heldur einnig tennis
og aðra afþreyingu sem hún stundaði
ytra. En eru þau þá alkomin heim?
„Við lögðum áherslu á að við værum
ekki endilega alkomin þótt við kæmum
aftur heim,“ segir Berglind. „Við erum hér
núna en hver veit hvað gerist seinna. Það
hjálpar manni við að aðlagast aftur enda
erfitt að hugsa til þess að vera kominn á
endastöð þótt maður sé kominn heim.“