Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 109 Á stuttum tíma hafa komið til kasta Læknafélags Íslands (LÍ) nokkur mál þar sem í ljós hefur komið að veikinda- réttur læknis hefur ekki verið réttilega ákveðinn. Fyrir þessu reynast tvær ástæður. Annars vegar að launagreiðandi er ekki með réttar upplýsingar um þjón- ustualdur læknisins vegna veikindarétt- ar. Hins vegar að ekki hefur verið gætt sérákvæðis í kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og LÍ um áhrif sérnáms í útlöndum á þjónustualdur lækna gagn- vart veikindarétti. Það er því mjög mikilvægt að kynna ákvæði um veikindarétt fyrir læknum eins og þau birtast í fyrrnefndum kjara- samningi. Hér er ekki fjallað um veik- indarétt þeirra sem ráðnir eru til vinnu samkvæmt tímavinnusamningi. Um veikindarétt lækna er fjallað í kaflanum Réttur starfsmanna vegna veik- inda og slysa, sem er 9. kafli fyrrnefnds kjarasamnings. Þar er fjallað bæði um réttindi og skyldur lækna sem lenda í veikindum. Í þessari grein er fyrst og fremst fjallað um réttindin samkvæmt þessum kafla. Réttindin felast í því að eiga rétt á því að vera fjarverandi frá vinnu vegna veik- inda á nánar tilgreindum launum í nánar tilgreindan tíma. Lengd veikindaréttar- ins fer eftir þjónustualdri hjá ríkinu og raunar fleiri aðilum. Veikindaréttarkafli kjarasamnings lækna er í meginatriðum efnislega samhljóða sambærilegum köfl- um í kjarasamningum annarra opinberra starfsmanna. Þess vegna er almennt vísað til lækna sem starfsmanna í kaflanum, en ekki lækna. Starfsmaður, sem ráðinn er til starfa á mánaðarlaunum í að minnsta kosti tvo mánuði, skal halda launum svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdög- um, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuð- um en rakið er hér á eftir (grein 9.2.1): Dögg Pálsdóttir framkvæmdastjóri og lögfræðingur LÍ doggp@lis.is Veikindaréttur lækna sem starfa samkvæmt kjarasamningi LÍ L Ö G F R Æ Ð I 4 3 . P I S T I L L 0-3 mánuðir í starfi 14 dagar Næstu 3 mánuðir í starfi 35 dagar Eftir 6 mánuði í starfi 119 dagar Eftir eitt ár í starfi 133 dagar Eftir 7 ár í starfi 175 dagar Eftir 12 ár í starfi 273 dagar Eftir 18 ár í starfi 360 dagar Við veikindarétt þeirra sem starfað hafa í allt að 7 ár getur bæst við réttur til mánaðarlauna í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða at- vinnusjúkdómi. Laun sem starfsmaður fær í þann viðbótartíma, eigi þetta við, eru einvörðungu dagvinnulaun, ekki heildarlaun eins og ella gilda í veikindum. Við mat á þjónustualdri læknis sam- kvæmt framangreindu skal fyrst horfa til þjónustualdurs hjá viðkomandi launa- greiðanda. Til viðbótar skal telja þjónustu- aldur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé. Hér þarf að hafa í huga að það eru ekki ein- göngu störf sem læknir sem hér telja heldur öll störf viðkomandi hjá þessum aðilum. Síðan er það ákvæði kjarasamningsins, sem iðulega gleymist. Í lokamálslið grein- ar 9.2.5 segir: Þar að auki skal sérfræðingi reiknaður til við- bótar sá tími sem það tekur lækni að jafnaði að afla sér sérfræðiviðurkenningar erlendis, þó aldrei meira en 10 ár. Þetta ákvæði er mjög mikilvægt. Það get- ur bætt allt að 10 árum við þjónustualdur læknis gagnvart veikindarétti. Algengast sýnist þó að það bæti við fjórum til 6 árum, allt eftir því hversu lengi læknir hefur verið erlendis í sérnámi og ef því er að skipta námi vegna undirsérgreinar. Taflan hér að framan um lengd veik- indaréttar sýnir þó að þessi ár geta skipt sköpum, orðið til þess að þjónustualdur hækkar upp í 7 ár og þar með lengt veik- indaréttinn um 42 daga, eða hækkað hann upp í 12 ár og lengt veikindaréttinn um 98 daga, eða upp í 18 ár og þar með lengt réttinn upp í hámarkið sem eru 360 dagar. Tilgangur þessa mikilvæga ákvæðis í lok greinar 9.2.5 er augljós. Það tryggir að þjónustualdur læknis skerðist ekki vegna sérnáms í útlöndum og gerir jafnsetta lækna sem stunda sérnám á Íslandi, sem með vinnu sinni hér halda áfram að safna þjónustualdri gagnvart veikindarétti, og lækna sem fara til útlanda í sérnámið. Það skiptir miklu að læknar gæti þess að hjá launadeild þeirrar heilbrigðisstofn- unar sem þeir starfa hjá á hverjum tíma samkvæmt framangreindum kjarasamn- ingi séu aðgengilegar upplýsingar um öll störf þeirra hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé. Hægt er að kalla eftir slíkum upplýsingum hjá Fjársýslu ríkisins eftir því sem LÍ veit best. Til viðbótar þurfa læknar að gæta að því að hjá launadeildinni séu upplýsingar um það hversu lengi þeir voru við sérnám í útlöndum. Loks ber að nefna að í þeim tilvikum að veikindaréttur læknis tæmist, annað- hvort af því að viðkomandi læknir hefur áunnið sér tiltölulega lítinn veikindarétt eða af því að veikindi læknisins eru mjög langvarandi, eiga læknar sem fá laun samkvæmt margnefndum kjarasamningi rétt til allt að þriggja mánaða veikinda- launa úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði LÍ.1 Eins og fram kemur á heimasíðu LÍ, lis. is, greiðir sjóðurinn 80% af grunni inn- greiðslna sjóðfélaga í sjóðinn síðustu 12 mánuði áður en greiðslur féllu niður, þó að hámarki 1.200.000 kr. á mánuði í þrjá mánuði. Hafi læknar spurningar um veikinda- rétt sinn eru þeir hvattir til að hafa sam- band við skrifstofu LÍ. 1. Úthlutunarreglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs lækna, lis.is/is/sjodir/fjolskyldu-og-styrktarsjodur/uthlutunarreglur - janúar 2022. Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is Örugg eyðing gagna Gagnaeyðing eyðir hverskyns gögnum og búnaði samkvæmt alþjóðlega viðurkenndu og vottuðu ferli, allt frá móttöku til eyðingar. Eyðingin sjálf gerist með tætingu og fer kurlið til endurvinnslu hjá viðurkenndum vinnsluaðila. Hafðu samband! Opið mánudaga - fimmtudaga 8:30 -17:00 og til 16:00 á föstudögum. Yfir 30 ára reynsla 1991- 2022 Við þökkum traustið Hvað verður um tölvubúnaðinn þinn? Hvað verður um gögnin þín? Hvað gerir þú við gamla farsímann? Geymir þú viðkvæmar upplýsingar á USB lykli?

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.