Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 109
Á stuttum tíma hafa komið til kasta
Læknafélags Íslands (LÍ) nokkur mál
þar sem í ljós hefur komið að veikinda-
réttur læknis hefur ekki verið réttilega
ákveðinn. Fyrir þessu reynast tvær
ástæður. Annars vegar að launagreiðandi
er ekki með réttar upplýsingar um þjón-
ustualdur læknisins vegna veikindarétt-
ar. Hins vegar að ekki hefur verið gætt
sérákvæðis í kjarasamningi fjármála- og
efnahagsráðherra og LÍ um áhrif sérnáms
í útlöndum á þjónustualdur lækna gagn-
vart veikindarétti.
Það er því mjög mikilvægt að kynna
ákvæði um veikindarétt fyrir læknum
eins og þau birtast í fyrrnefndum kjara-
samningi. Hér er ekki fjallað um veik-
indarétt þeirra sem ráðnir eru til vinnu
samkvæmt tímavinnusamningi.
Um veikindarétt lækna er fjallað í
kaflanum Réttur starfsmanna vegna veik-
inda og slysa, sem er 9. kafli fyrrnefnds
kjarasamnings. Þar er fjallað bæði um
réttindi og skyldur lækna sem lenda í
veikindum. Í þessari grein er fyrst og
fremst fjallað um réttindin samkvæmt
þessum kafla.
Réttindin felast í því að eiga rétt á því
að vera fjarverandi frá vinnu vegna veik-
inda á nánar tilgreindum launum í nánar
tilgreindan tíma. Lengd veikindaréttar-
ins fer eftir þjónustualdri hjá ríkinu og
raunar fleiri aðilum. Veikindaréttarkafli
kjarasamnings lækna er í meginatriðum
efnislega samhljóða sambærilegum köfl-
um í kjarasamningum annarra opinberra
starfsmanna. Þess vegna er almennt vísað
til lækna sem starfsmanna í kaflanum, en
ekki lækna.
Starfsmaður, sem ráðinn er til starfa
á mánaðarlaunum í að minnsta kosti tvo
mánuði, skal halda launum svo lengi sem
veikindadagar hans, taldir í almanaksdög-
um, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuð-
um en rakið er hér á eftir (grein 9.2.1):
Dögg Pálsdóttir
framkvæmdastjóri og lögfræðingur LÍ
doggp@lis.is
Veikindaréttur lækna sem starfa
samkvæmt kjarasamningi LÍ
L Ö G F R Æ Ð I 4 3 . P I S T I L L
0-3 mánuðir í starfi 14 dagar
Næstu 3 mánuðir í starfi 35 dagar
Eftir 6 mánuði í starfi 119 dagar
Eftir eitt ár í starfi 133 dagar
Eftir 7 ár í starfi 175 dagar
Eftir 12 ár í starfi 273 dagar
Eftir 18 ár í starfi 360 dagar
Við veikindarétt þeirra sem starfað hafa
í allt að 7 ár getur bæst við réttur til
mánaðarlauna í 13 vikur eða 91 dag ef
óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða at-
vinnusjúkdómi. Laun sem starfsmaður
fær í þann viðbótartíma, eigi þetta við,
eru einvörðungu dagvinnulaun, ekki
heildarlaun eins og ella gilda í veikindum.
Við mat á þjónustualdri læknis sam-
kvæmt framangreindu skal fyrst horfa
til þjónustualdurs hjá viðkomandi launa-
greiðanda. Til viðbótar skal telja þjónustu-
aldur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum
og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar
eru að meirihluta til af almannafé. Hér
þarf að hafa í huga að það eru ekki ein-
göngu störf sem læknir sem hér telja
heldur öll störf viðkomandi hjá þessum
aðilum.
Síðan er það ákvæði kjarasamningsins,
sem iðulega gleymist. Í lokamálslið grein-
ar 9.2.5 segir:
Þar að auki skal sérfræðingi reiknaður til við-
bótar sá tími sem það tekur lækni að jafnaði að
afla sér sérfræðiviðurkenningar erlendis, þó
aldrei meira en 10 ár.
Þetta ákvæði er mjög mikilvægt. Það get-
ur bætt allt að 10 árum við þjónustualdur
læknis gagnvart veikindarétti. Algengast
sýnist þó að það bæti við fjórum til 6
árum, allt eftir því hversu lengi læknir
hefur verið erlendis í sérnámi og ef því
er að skipta námi vegna undirsérgreinar.
Taflan hér að framan um lengd veik-
indaréttar sýnir þó að þessi ár geta skipt
sköpum, orðið til þess að þjónustualdur
hækkar upp í 7 ár og þar með lengt veik-
indaréttinn um 42 daga, eða hækkað hann
upp í 12 ár og lengt veikindaréttinn um
98 daga, eða upp í 18 ár og þar með lengt
réttinn upp í hámarkið sem eru 360 dagar.
Tilgangur þessa mikilvæga ákvæðis í
lok greinar 9.2.5 er augljós. Það tryggir að
þjónustualdur læknis skerðist ekki vegna
sérnáms í útlöndum og gerir jafnsetta
lækna sem stunda sérnám á Íslandi, sem
með vinnu sinni hér halda áfram að safna
þjónustualdri gagnvart veikindarétti, og
lækna sem fara til útlanda í sérnámið.
Það skiptir miklu að læknar gæti þess
að hjá launadeild þeirrar heilbrigðisstofn-
unar sem þeir starfa hjá á hverjum tíma
samkvæmt framangreindum kjarasamn-
ingi séu aðgengilegar upplýsingar um
öll störf þeirra hjá ríkinu, sveitarfélögum
og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar
eru að meirihluta til af almannafé. Hægt
er að kalla eftir slíkum upplýsingum hjá
Fjársýslu ríkisins eftir því sem LÍ veit best.
Til viðbótar þurfa læknar að gæta að því
að hjá launadeildinni séu upplýsingar um
það hversu lengi þeir voru við sérnám í
útlöndum.
Loks ber að nefna að í þeim tilvikum
að veikindaréttur læknis tæmist, annað-
hvort af því að viðkomandi læknir hefur
áunnið sér tiltölulega lítinn veikindarétt
eða af því að veikindi læknisins eru mjög
langvarandi, eiga læknar sem fá laun
samkvæmt margnefndum kjarasamningi
rétt til allt að þriggja mánaða veikinda-
launa úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði LÍ.1
Eins og fram kemur á heimasíðu LÍ, lis. is,
greiðir sjóðurinn 80% af grunni inn-
greiðslna sjóðfélaga í sjóðinn síðustu 12
mánuði áður en greiðslur féllu niður, þó
að hámarki 1.200.000 kr. á mánuði í þrjá
mánuði.
Hafi læknar spurningar um veikinda-
rétt sinn eru þeir hvattir til að hafa sam-
band við skrifstofu LÍ.
1. Úthlutunarreglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs lækna, lis.is/is/sjodir/fjolskyldu-og-styrktarsjodur/uthlutunarreglur - janúar 2022.
Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is
Örugg eyðing gagna
Gagnaeyðing eyðir hverskyns gögnum og búnaði samkvæmt alþjóðlega
viðurkenndu og vottuðu ferli, allt frá móttöku til eyðingar. Eyðingin sjálf gerist
með tætingu og fer kurlið til endurvinnslu hjá viðurkenndum vinnsluaðila.
Hafðu samband!
Opið mánudaga - fimmtudaga 8:30 -17:00 og til 16:00 á föstudögum.
Yfir 30 ára reynsla
1991- 2022
Við þökkum traustið
Hvað verður um
tölvubúnaðinn þinn?
Hvað verður um
gögnin þín?
Hvað gerir þú við gamla
farsímann?
Geymir þú viðkvæmar
upplýsingar á USB lykli?