Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Page 13
Sjómannablaðið Víkingur – 13
heldur gekk hver beint af augum fram. En ásjónur þeirra
litu svo út: mannsandlit að framan, ljónsandlit hægra
megin á þeim fjórum, nautsandlit vinstramegin á þeim
fjórum og arnarandlit á þeim fjórum inn á við.“
Andlitin sem Esekíel lýsir þarna eru ekki hvaða andlit sem
er; ljónið er öflugast allra villidýra, örninn flottastur allra fugla,
nautin þóttu í þá tíð taka öðrum húsdýrum fram og loks er
maðurinn – þrátt fyrir alla sína galla – kóróna sköpunarverks-
ins.
Eitthvað kannast maður við þessa samsetningu, því bæði
þekkir maður þarna tákn guðspjallamannanna fjögurra, en líka
landvættirnar fjórar, sem standa vaktina á íslenska hundraðkall-
inum, sama hve hann hrapar í verði. Það
er nautið sem gætir Vestfjarða, bergrisi –
sem er nú bara venjulegur kall – sér um
Suðurland, örn er fyrir norðan en það er
dreki sem annast Austfirðinga, enda hafa
aldrei sést ljón á þeim slóðum. Svo er
Esekíel hrifinn af þessum makalausa
hæfileika englanna, að geta gengið bæði
út á hlið og afturábak eins og sjálfvirk
ryksuga, að hann þrítekur þetta fram.
Áfram heldur hann lýsingunni:
„Og verurnar hlupu fram og aftur eins
og glampi af leiftri ... eitt hjól stóð á
jörðinni hjá hverri af verunum fjórum.
Og hjólin voru á að líta eins og þegar blikar á krýsólít, og
öll fjögur voru þau samlík og þannig gjörð, sem eitt hjólið
væri innan í öðru hjóli. Þau gengu til allra fjögurra hliða;
þau snerust eigi, er þau gengu. Og hjólbaugar þeirra – þeir
voru háir og ógurlegir, og hjólbaugar þeirra voru alsettir
augum allt umhverfis á þeim fjórum. Og þegar verurnar
gengu þá gengu og hjólin við hliðina á þeim ... “
Nú ætla ég ekki að rekja lýsingu Ezekíels frekar, en hún
verður jafnvel enn flóknari þegar henni vindur lengra fram.
Hann var í engum vafa um að hér væru englar á ferð, en þar
var svissneskur maður að nafni Erik von Däniken honum
ósammála. Hann þóttist þekkja, að þetta hefði verið geimfar,
komið frá plánetu með jafnvel enn betur gefnum verum en við
erum. Bókin sem hann skrifaði um það hét „Voru guðirnir
geimfarar?“ og gekk alveg bráðvel í Íslendinga þegar hún kom
út árið 1962.
Það verður að játast, að útlit annarra engla er jafnvel ennþá
ankannalegra en þetta. Engillinn Metatrón hefur til að mynda
þrjátíu og sex vængjapör, er úr brennandi eldi og hefur 365.000
augu, og fullvíst er að hann fengi umsvifalaust örorkuvottorð út
á útlitið eitt, ef hann væri jarðneskur.
Englasögur
– síðan eru Egyptar einkennilega ófarsælir í hernaði –
Í Biblíunni, bæði Gamla og Nýja testamentinu og í apókrýfu rit-
unum, er fjöldi sagna um engla, margar þeirra þekkir flest fólk.
Áður hef ég getið þess, þegar Drottinn setti kerúb í varðstöðu
við hlið Paradísar. En Abraham átti töluverð viðskipti við engla.
Eitt sinn þegar Sara var orðin þess fullviss að hún væri óbyrja,
bauð hún Abraham af veglyndi sínu að barna frekar en ekki
neitt ambáttina, sem þau áttu og hét Hagar. Ekki þurfti að
ganga lengi á eftir Abraham með þetta, en þegar til kom varð
Sara afbrýðisöm og rak Hagar út í eyðimörkina í því skyni að
hún þornaði þar og morknaði í sólarhitanum. Þetta gerði hún
ekki einu sinni heldur tvisvar, en í bæði skiptin dúkkaði upp
engill og vísaði Hagar til vatns og vegar.
Þrjá gesti bar eitt sinn að tjaldi Abrahams. Hann hafði ekki
hugmynd um að þetta voru Drottinn, Mikael og Gabríel, en
sagði Söru að baka handa þeim brauð og slátraði sjálfur alikálfi.
Um þetta orti Böðvar Guðmundsson nýlega:
Og gestirnir settust og sögðu namm,
er Sara bar kálfasteikina fram
og setti á borð og mjólkurglas með
svo mötuðust þeir með rólegt geð.
Svo þakklátur var Drottinn að fá einu sinni góðan sveitamat,
að hann kom því um kring með almætti sínu, að Sara varð ólétt
þegar hún var 88 ára en Abraham hundrað. Þessu trúði Sara
ekki fyrr en hún tók á og undrar engan. Að þessu búnu setti
hann Gabríel og Mikael til þeirra verka að bjarga Lot áður en
þeir eyddu öllu öðru lífi í Sódómu, þar
sem hann bjó. Við það tækifæri varð
kona Lots fyrir óðaaukningu á kalsíum
og breyttist í klett sem heitir Jebel
Usdum og enn mun vera ferðamönnum
til sýnis í Landinu helga.
Ekki var þó viðskiptum engla við
Abrahamsfjölskylduna lokið, því engill
bjargaði Ísak syni hans frá afar ósann-
gjörnum fórnardauða, annar engill hafði
síðar milligöngu um að útvega honum
ágæta konu sem Rebekka hét. Sonur
þeirra glímdi hina frægu Jakobsglímu við
engil, sem þó kann að hafa verið Drott-
inn sjálfur, alla vega hrökk Jakob úr
mjaðmarliðnum en glímdi annars dável. Löngu seinna dulbjó
engill sig sem skýstrokk og ruddi Rauðahafinu úr vegi fyrir
Móses og Ísraelsþjóðinni, en drekkti að svo búnu gjörvöllum
Egyptalandshernum, en Egyptar hafa síðan verið einkennilega
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
Lot og fjölskylda flýja Sódómu.