Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Síða 16
16 – Sjómannablaðið Víkingur Það var byrjað að vora þegar ég gekk inn á sjómannastofuna í Walvis Bay í Namibíu um miðjan október á síðasta ári. Sjómannastofan er rekin af Mission for Seafarers en þeir starfrækja afdrep fyrir sjómenn í um 120 hafnarborgum um allan heim. Þar geta sjómenn kom- ið, stytt sér stundir og haft samband við fjölskyldur sínar í gegnum internet- þjónustu, nú eða fengið að hringja heim svo eitthvað sé nefnt. Ég hafði farið þangað í þeim tilgangi að hitta íslensk- an vélstjóra, Elfar Óskarsson, búsettan í Walvis Bay og í siglingum um öll heimsins höf. Í þjónustu Sæblóms Það var í byrjun október sem ég rakst á Elfar á flugvellinum í Frankfurt en þar vorum við báðir í millilendingu á leið til Namibíu, ég frá Íslandi en hann frá Hol- landi. Við erum búnir að þekkjast í rúm- an áratug og því var þetta skemmtileg tilviljun að hittast á förnum vegi í flug- stöð í Þýskalandi. Fór hann að segja mér frá því að hann hefði farið víða um heim á undanförnum árum og meðal annars komist í tæri við sjóræningja á einni af siglingum sínum. Það var einmitt sú frá- sögn sem leiddi til fundar okkar á ný í sjómannastofunni í Walvis Bay tæpum þremur vikum síðar. Elfar er borinn og barnfæddur Hús- víkingur sem yfirgaf heimabæ sinn og flutti alfarinn suður til Reykjavíkur rúmlega þrítugur, þá búinn að ráða sig í vinnu hjá Kælismiðjunni Frosti. Hann hafði reyndar lokið Vélskólanum í Reykjavík 1984 og starfaði lengi sem vél- stjóri á Kolbeinsey ÞH og einnig á Galta ÞH. Eftir fimm ára starf hjá Frost sá hann að Þróunarsamvinnustofnun Ís- lands var að auglýsa eftir vélstjóra til starfa á vegum stofnunarinnar við þróun- arstarf í Namibíu. Auglýsingin var freist- andi og áður en hann vissi af var hann lagður af stað frá Íslandi á framandi slóð- ir í sunnanverðri Afríku. Í fyrstu skyldi hann vera vélstjóri á namibíska rann- sóknarskipinu Welwitchia sem sinnti haf- og fiskirannsóknum í landhelgi Namibíu en síðan að taka að sér kennslu í vélfræði við Namibian Maritime & Fisheries Institute sjómannaskólann í Walvis Bay sem í daglegu tali er kallaður NAMFI. Mikill fjöldi Íslendinga vann árum saman við þróunarstörf í Namibíu en lengst var starfið þar tengt uppbygg- ingu NAMFI en Íslendingarnir voru bæði við kennslu og ráðgjöf þau ár sem þróunaraðstoð við Namibíu stóð yfir. Að öllu jöfnu fengu Íslendingarnir tveggja ára ráðningarsamninga og snéru þá aftur heim. En Elfar átti eftir að ílengjast því að þegar tveggja ára samningstíma hans var að ljúka voru að hefjast framkvæmdir við byggingu á nýrri aðstöðu fyrir vélstjórnarhluta sjó- mannaskólans og var hann settur yfir þá framkvæmd. Þar af leiðandi var samn- ingur hans framlengdur þar til þeim framkvæmdum var að fullu lokið en þá var komið fram á árið 2006. Framtíðin var þá með öllu óráðin en Elfar var búinn að festa rækilega rætur og hafði tekið ástfóstri við land og þjóð svo hug- urinn stóð ekki til að snúa aftur heim til Íslands. Það bar því vel í veiði þegar honum bauðst pláss á uppsjávarskipinu Que Vadis sem var í eigu Sæblóms en skipið hélt til veiða frá Angóla sem er næsta land norðan við Namibíu. Var skipið gert út til uppsjávarveiða frá Tombwa og gengu veiðar vel. En það voru í raun önnur vandamál sem urðu til þess að þessum veiðum var hætt. Stjórnkerfið í Angóla reyndist útgerðinni þyngri þrautin en svo að hægt væri að halda veiðum áfram og því var ákveðið að breyta skipinu til að það hentaði til veiða við strendur Marokkó í Vestur- Sahara. Við fall fjármálakerfisins á Ís- landi haustið 2008 varð útgerð skipsins gjaldþrota og var hún yfirtekin af BP skipum og fylgdi Elfar með skipinu. Ekki varð dvöl hans löng hjá nýjum eigenda en hann hætti í maí árið eftir þegar ekki höfðu fengist greidd laun. Texti: Hilmar Snorrason – Myndir: Elfar Óskarsson Elfar Óskarsson fyrir utan sjómannaheimilið í Walvis Bay í Namibíu. Mynd: Hilmar Snorrason

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.